Færsluflokkur: Bloggar
13. september
13.9.2008 | 12:02
Talan 13 hefur alltaf verið í einhverju uppáhaldi hjá mér, ég veit eiginlega ekki af hverju en það skiptir engu máli, hún er bara í uppáhaldi. Í dag reikar hugurinn til systur minnar sem er að ná þeim merka áfanga að verða 50 ára í dag, innilega til hamingju með daginn kæra Svanhvít, ég skil ekkert í þér að þú skulir ekki halda veislu. Í dag reikar líka hugurinn austur á Tannastaðatanga víð Ölfusá, þar sem ég var við veiðar með föður mínum fyrir 22 árum síðan og hann féll snögglega frá, fékk hjartaáfall eftir að hafa verið búinn að setja í 3 laxa í beit. Það er nú varla hægt að hugsa sér að fara við betri aðstæður. Blessuð sé minning hans.
Ég var svo heppinn i fyrrakvöld að ætla í bíó og fór inná netið að kíkja á hvaða myndir væru í boði og endaði á því að kaupa mér 2 miða á tónleika með Herði Torfa. Ég er búinn að vera hrifinn að söngvunum hans Harðar í áratugi og oft hef ég ætlað á tónleika með honum. Nú gerðist það og tónleikarnir voru í einu orði sagt frábærir.
Í dag er Hollvinadagur Bifrastar, Samvinnuskólans og það verður ball með Upplyftingu á Bifröst í kvöld, ég á margar góðar minnigar frá Bifrastarárunum og ætli ég skelli mér ekki bara uppí Bifröst seinnipartinn og upplifi eitthvað af þeirri frábæru stemmningu sem var í Bifröst. vona bara að Magga Scheving mæti.
Breiðablik á spila í dag við Fram og vonandi vinna okkar menn og tryggja sig nokkuð nálægt toppnum þetta árið, annars fer nú alveg að koma að því að Breiðablik þurfa að vinna annaðhvort Íslandsmeistartitil og eða Bikarinn, þetta er allt of gott lið til að hafa aldrei unnið titil.
Áfram Breiðablik
Hafið það eins og þið viljið um helgina..
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Leiðinlegt að tapa þessum leik
10.9.2008 | 23:43
en það var stór stund hjá nokkrum ungum knattspyrnumönnum í Laugardalnum í kvöld þegar þeir fengu að leiða leikmenn liðanna inná völlinn..
Smelli inn tveimur myndum frá leiknum í kvöld;
Hákon leiddi leikmann nr. 8 hjá Skotum
Hér eru bæði liðin og allir krakkarnir, þar af 3 félagar Hákonar úr Breiðablik, Kristófer, Alfons og Pétur.
Þetta var skemmtilegt augnablik og vonandi á ég eftir að sjá Hákon ganga inná Laugardalsvöllinn aftur eftir nokkur ár og þá til að spila fyrir Íslands hönd, hver veit ?
Hafðu það eins og þú vilt
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Leikur í kvöld
10.9.2008 | 12:18
Ég tek undir með Ólafi Stefánssyni, það eru forréttindi að vera Íslendingur. #How do you like Iceland" spyrjum við oft gesti og sérstaklega fræga gesti sem sækja okkur heim og við viljum bara heyra að fólki líki vel við land og þjóð, hver vill það ekki ? Þetta er ekkert öðruvísi hér en annarsstaðar, ég hef verið svo lánssamur að búa í þremur erlendum löndum, Englandi og tveimur Afríkuríkjum, Namibíu og Marokkó. Það eru alveg sömu spurningar sem íbúar þessara landa spurðu mig gestinn, How do you like .......... og auðvitað viltu þeir bara heyra eitthvað gott til að auka þjóðarstoltið sitt.
En í hverju felast forréttindin? Í mínum huga fyrst og fremst í aðgengi að þjónustu hverju nafni sem hún nefnist, hvort sem hún er rekin af hinu opinbera, sveitarfélögum eða fyrirtækjum og einstaklingum. Samfélaginu, náttúru landsins og umhverfinu öllu. Ágætur samstarfsmaður minn til nokkurra ári sagði eitt sinn við mig að Ísland væri land fyrir stráka með dellur. Stangveiði, skotveiði, sjóstöng ekkert mál, vélsleðaferðir, motorcross, vatnasport, hraðbátar, selglbátar, ekkert mál. Fjallgöngur, göngur um óbyggðir, útlegur um sumar og vetur, jeppaferðir yfir ár og á jöklum. Hjólreiðar á þjóðvegum og vegleysum, allt í boði. Sem betur fer eru líka til stelpur sem hafa sömu dellur og strákar þannig að þetta er land fyrir alla. Hugsið ykkur alla uppbygginguna í Íþróttamannvirkjum á síðustu 10 árum, Knatthúsin, íþróttahúsin, sudlaugarnar, göngustígana, heilusræktarstöðvarnar, ótrúlegt.
Það eru auðvitað forréttindi að vera Íslendingur og það veit maður svo vel þegar maður hefur búið annarsstaðar. En að leiknum í kvöld, ég fæ að upplifa forréttindi af því að ég ætla að fara með góðan vin minn sem bundinn er við hjólastól/rafskutlu á leikinn og KSÍ býður okkur báðum á leikinn endurgjaldslaust og það er hluti af þessum forréttindum að vera Íslendingur. Takk KSÍ fyrir þetta frábæra boð.
Ég fæ reyndar líka sérstakt tækifæri til að vera stoltur faðir í kvöld því að yngri sonur minn fær að leiða einhvern leikmann Íslands eða Skotlands inná völlinn í kvöld og ekki var laust við að minn maður væri spenntur í morgun og pælingar um á hverjum hann myndi lenda.
Ég er viss um að Íslenska landsliðið í fótbolta gefur okkur ærna ástæðu til að njóta þeirra forréttinda að vera Íslendingar í kvöld, eins og þeir gerðu svo eftirminnilega á laugardaginn í Osló.
Hafið það eins og þið viljið
Áfram Ísland.
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það hafðist og gott betur..
7.9.2008 | 23:03
Marbella komst í mark, enginn dáinn, allir heilir og glaðir. Marbella er semsagt þríþrautarliðið okkar sem var nafnlaust þangað til í gærkvöldi í Edinborgarhúsinu, þar sem við fögnuðum því að hafa komist í klakklaust í mark í fyrstu þríþrautinni okkar allra. Okkur gekk vel og vorum nálægt þeim tímum sem við settum okkur að ná. Að vísu gleymdi Bella sundbolnum heima, en það reddaðist og ég datt þegar ég kom á skiptistöðina á Ísafirði, var búinn að gleyma því á lappirnar voru fastar við pedalana og ég hentist á hausinn en slapp með skrámur og lítilisháttar handarmeiðsl, þetta var samt töff. Uppúr stendur að ferðin vestur var rosalega skemmtileg, gaman að keppa og skemmta sér með þessum frábæru vestfirðingum. Ég er strax farinn að hlakka til næstu þríþrautar á Ísafirði og stefni á að taka þátt aftur á næsta ári. Ég vil nú nota tækifærið og þakka liðsfélögum mínum Öldu og Berglindi fyrir frábæra daga og skemmtun og svo þeim Guðrúnu og Steina fyrir að mæta og hvetja okkur svona vel. Ekki má svo gleyma að þakka Guðjóni Má fyrir samfylgdina vestur og Adda fyrir að koma með okkur á ballið í Edinborgarhúsinu, ball sem var í daufara lagi fyrir vestfirsk böll.
7. september er mikill merkisdagur hjá mér og vekur alltaf upp blíðar minningar um skemmtilegan dag fyrir 23 árum þegar við Helga giftum okkur.
Hafið það eins og þið viljið.
Magnús G.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ekki datt mér í hug
5.9.2008 | 10:15
þegar ég keypti hjólið mitt af Jóa Vald í Hvelli í mars 2003 að ég ætti eftir að fá mér annað hjól síðar, racer til að keppa á. Þegar ég keypti hjólið og ákvað að hjóla á því heim, þá þurfti ég að hjóla upp smiðjuveginn ca. 300 mtr og ég hélt að þetta yrði mitt síðasta og í alvöru þá var ég að hugsa um að snúa við og fá að skila hjólinu aftur. Ég var að niðurlotum kominn þegar fór að halla undan brekkunni og ég gat látið mig renna niður allan Kópavogsdalinn og heim í Smárann. Síðan þetta gerðist eru liðin rúm 20 kg. og að baki um 5000 km, hringvegurinn að verða búinn. Í þessum skrifuðum orðum er ég að taka mig til og fara vestur á firði, eins og ég gerði líka 2003, til að keppa í þríþrautarliði í Vasa 2000 þríþrautinni sem verður í Bolungarvík og Ísafirði á morgun. Já á dauða mínum átti ég von en að ég ætti eftir að keppa í íþróttum skall á á mér eins og Katarína á New Orleans forðum. Í liðinu með mér eru Berglind Hlynsdóttir á Þingeyri og Alda Gylfadóttir á Ísafirði og við ætlum að gera okkar besta og aðeins betur ef það er það sem þarf. Þetta verður allavega gaman og til þess er leikurinn gerður.
Já svona er lífið
Njótið helgarinnar og hafið það eins og þið viljið
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég fór á stefnumót
3.9.2008 | 00:01
fyrir 25 árum síðan við flotta stelpu sem var í Háskólanum og vann með skólanum sem þjónn á Torfunni. 2. september 1983 sá ég Breiðablik líka tapa fyrir Þrótti á Kópavogsvelli, sem voru auðvitað vonbrigði eins og í gær þegar Breiðablik tapaði fyrir KR. En þetta vonbrigðiskast stóð ekki lengi þarna um árið en svo var þessu stefnumóti fyrir að þakka, stefnumóti sem stóð í 23 ár. Að mæta á þessu stefnumóti var eitt mitt mesta gæfuspor í lífinu og allt sem fylgdi á eftir gerði mig að betri manni. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að deila súru og sætu þennan tíma og fyrir börnin okkar þrjú sem við eigum saman. Elsta barnið okkar á meira að segja afmæli í dag og auðvitað óska ég Guðjóni Má til hamingju með daginn sinn þann 22 í röðinni.
Vandið ykkur á stefnumótunum þau geta staðið ansi lengi.
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Því miður
1.9.2008 | 23:50
varð ég að loka fyrir gestabókina á síðunni minni og einnig fyrir athugasemdir við bloggfærslurnar, vegna óskemmtilegrar reynslu sem ég varð fyrir hér á síðunni í gær. Ákveðinn einstaklingur sem tæplega hefur verið með sjálfum sér setti inn færslu í gestabókina mína og af tillitssemi við þennan einstakling og þá sem hann vitnaði í ákvað ég að fjarlægja færsluna og takmarka aðganginn. Ég vona að þið sem eruð að skoða síðuna mína verðið ekki fyrir óþægindum vegna þessa. Þessi síða mín á að vera til gamans en ekki vettvangur fyrir skítkast og lygar um fólk.
Ég held að orðatiltæki dagsins hljóti að vera; Það er oft gott að þegja og vera talinn heimskur, en tala og taka af allan vafa.
Þakka ykkur fyrir skilninginn og hafið það eins og þið viljið.
Magnús G.
Bloggar | Breytt 2.9.2008 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
September
1.9.2008 | 13:16
er klárlega mánuðrinn minn og ég er glaður að hann er byrjaður og ekki byrjar hann leiðinlega, veðrið er frábært eins og svo oft í september. Í kvöld verður undanúrslitaleikur í bikarnum og liðið mitt er að spila og ég hef fulla trú á að þeir fari í úrslitin núna.. Áfram Breiðablilk. Mánuðurinn er fullur af merkisdögum fyrir mig og mína, ég og börnin mín tvö eldri eigum afmæli í mánuðinum, ég ætla vestur að keppa í þríþraut og vonandi austur líka í framhaldinu. Það verður Mega sportráðstefna í Háskólabíó á afmælisdaginn minn, það verður Galadinner daginn áður. Mér sýnist september vera orðinn fullur af skemmtilegum uppákomum núþegar og ég veit að ég kem vel útúr þessum september og hann á eftir að færa mér mikla gæfu.
Byrjaði mánuðinn á því að hjóla í gegnum Heiðmörkina í morgun og ég get ekkert lýst því hvernig það var, eins og veðrið var í morgun, þið verðið bara að prófa og upplifa sjálf.
Hafið það eins og þið viljið í september.
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lítil haustlægð....
29.8.2008 | 18:09
Hákon Örn 10 ára heyrði í veðrinu þegar hann vaknaði og sagði strax : Ég er EKKI að fara i skólann í þessu veðri !! og sneri sér þar með snarlega á hina hliðina. Svo náði ég honum nú framúr með herkjum og meðan hann sat og borðaði horfði hann út um gluggann og tautaði : Mamma það er ekki hægt að fara út í þessu veðri, sjáðu ljósastaurana, þeir sveiflast til þeir eru að brotna af og trén eru að leggjast á hliðina ! Hann var búinn að klæða sig í allt nema sokkana og þegar ég kom með sokka handa honum sagði hann : Viltu ná í aðra Háa sokka utanyfir þessa, svo mér verði ekki kalt á tánum hefurðu ekki séð veðrið ! Það á ekki að vera skóli í svona veðri !! Ég fer ekki í skólann ég fýk bara ef ég fer út ! Ég var alveg að missa þolinmæðina og tautaði eitthvað um aumingjaskap og væl og það að vera alinn upp á mölinni, Guðjón og Sigrún væru nú t.d. alinn upp í Norðanstormum og Stórhríð vestur á fjörðum og myndu nú í mesta lagi kalla þetta golu !! En þeim stutta var slétt sama um einhvern snjó vestur á fjörðum í gamla daga (1988 !) en lét sig samt hafa það og klæddi sig í síðerma bol og þykka hettupeysu, flíspeysu yfir - svo í regnstakk með hettu og sagði síðan : Viltu finna HÚFUR ég þarf allavega tvær og hetturnar yfir það !
Svo fórum við í skólann og hann tuðaði alla leiðina yfir þessum ósköpum .. og veinaði svo allt í einu þegar við vorum alveg að koma að skólanum og sáum unglingsstúlku í hnébuxum : Sérðu þetta KrakkaFífl hún fer með berar lappir í skólann í þessu veðri !!!!!!!!
Með góðfúslegu leyfi frá þeim mæðginum er þetta birt hér.
Hafið það eins og þið viljið um helgina.
Magnús G.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sigurbjörn Einarsson biskup er látinn..
28.8.2008 | 20:06
heyrðí ég í útvarpinu í dag og satt að segja varð mér svolítið um. Sigurbjörn er búinn að vera svo stór partur af trúarlífinu hér á Íslandi allan minn aldur, enda byrjaði hann sem biskup árið sem ég fæddist. Hann var örugglega áhrifamesti prestur og biskup sem á Íslandi hefur verið alla vega á síðustu öld kannki sá áhrifamesti í sögunni. Ég verð að játa að ég er ekki kirkjurækinn maður og veit ekki hvernig það er mælt að vera trúaður en ég held og tel mig nokkuð trúaðan mann og alltaf leið mér óskaplega vel að hlusta á Gamla Biskupinn predika, á jólum og við önnur tækifæri. Þjóðin hefur misst einn af sínum mestu og bestu fræðimönnum og leiðtogum. Á þessum tímamótum er mér eftst í huga þakklæti til þessa merka manns og ég á eftir að sakna þess að sjá hann ekki í sjónvarpinu á jólunum, þar sem hann fylgist með messu í dómkirkjunni.
Hugsið ykkur hann forfallaðist einungis 2 sinnum frá messu og í seinna skiptið var fyrir nokkrum dögum. Blessuð sé minning Sigurbjörns Einarssonar.
Magnús G.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)