Leikur í kvöld

Ég  tek undir með Ólafi Stefánssyni,  það eru forréttindi að vera Íslendingur.  #How do you like Iceland" spyrjum við oft gesti og sérstaklega fræga gesti sem sækja okkur heim og við viljum bara heyra að fólki líki vel við land og þjóð,  hver vill það ekki ?  Þetta er ekkert öðruvísi hér en annarsstaðar, ég hef verið svo lánssamur að búa í þremur erlendum löndum,  Englandi og tveimur Afríkuríkjum,  Namibíu og Marokkó.  Það eru alveg sömu spurningar sem íbúar þessara landa spurðu mig gestinn,  How do you like ..........  og auðvitað viltu þeir bara heyra eitthvað gott til að auka þjóðarstoltið sitt. 

En í hverju felast forréttindin?  Í mínum huga  fyrst og fremst í aðgengi að þjónustu hverju nafni sem hún nefnist, hvort sem hún er rekin af hinu opinbera, sveitarfélögum eða fyrirtækjum og einstaklingum.  Samfélaginu, náttúru landsins og umhverfinu öllu.  Ágætur samstarfsmaður minn til nokkurra ári  sagði eitt sinn við mig að  Ísland væri land fyrir stráka með dellur.  Stangveiði, skotveiði, sjóstöng  ekkert mál, vélsleðaferðir, motorcross, vatnasport, hraðbátar, selglbátar, ekkert mál.  Fjallgöngur, göngur um óbyggðir, útlegur um sumar og vetur,  jeppaferðir yfir ár og á jöklum.  Hjólreiðar á þjóðvegum og vegleysum, allt í boði.  Sem betur fer eru líka til stelpur sem hafa sömu dellur og strákar þannig að þetta er land fyrir alla.   Hugsið ykkur alla uppbygginguna í Íþróttamannvirkjum á síðustu 10 árum, Knatthúsin, íþróttahúsin, sudlaugarnar, göngustígana, heilusræktarstöðvarnar, ótrúlegt.  

Það eru auðvitað forréttindi að vera Íslendingur og það veit maður svo vel þegar maður hefur búið annarsstaðar.   En að leiknum í kvöld,  ég  fæ að upplifa forréttindi af því að ég ætla að fara með góðan vin minn sem bundinn er við hjólastól/rafskutlu á leikinn og  KSÍ  býður okkur báðum á leikinn endurgjaldslaust og það er hluti af þessum forréttindum að vera Íslendingur.  Takk KSÍ  fyrir  þetta frábæra boð.  

Ég  fæ reyndar líka sérstakt tækifæri til að vera stoltur faðir í kvöld því að yngri sonur minn fær að leiða einhvern leikmann Íslands eða Skotlands inná völlinn  í kvöld og ekki var laust við að  minn maður væri spenntur í morgun og pælingar um á hverjum hann myndi lenda.

Ég  er viss um að Íslenska landsliðið í fótbolta gefur okkur ærna ástæðu til að njóta þeirra forréttinda að vera Íslendingar í kvöld, eins og þeir gerðu svo eftirminnilega á laugardaginn í Osló.

Hafið það eins og þið viljið

Áfram Ísland.

Magnús G. Wink

ÞRÍÞRAUIN Á ÍSAFIRÐI 059


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þar er ég sammála þér að vera Íslendingur eru forréttindi... ég kemst því miður ekki á leikinn en ég get bara opnað hurðina á íbúðinni minni og horft svo á þetta í sjónvarinu og þá er eins og ég sé stödd á vellinum, ég bý svo nálægt vellinum!

Ótrúlega held ég að það verði gaman fyrir Hákon að að fá að leiða einhvern inn á völlinn... ég get ímyndað mér spennuna þar sem að ég myndi sjálf örugglega vera að springa!!!

Hafðu það sem best!

Ásdís og Jóhannes Árni

Ásdís frænka (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband