Bloggfćrslur mánađarins, október 2007
LOKSINS KOM NÝTT BLOGG..
22.10.2007 | 12:49
Jćja kominn heim til Íslands í ţetta frískandi veđurfar eins og einhver kallađi ţađ.. Verđ nú bara ađ segja ađ ég var ekkert farinn ađ sakna svona veđurs eins og er hér í dag.. Síđan á um hina helgina hefur ansi margt gerst, ég fór međ krökkunum til Tenerife, fljúgandi og siglandi á tvíbytnu og átti 2-3 yndislega daga á Tenerife ađallega í afslöppun og viđ ađ leika mér í GoKart og fótbolta ofl.. Ég var ađ keyra Körtu í fyrsta sinn á ćvinni og ég skil ekkert í ţví afhverju ég var ekki ađ keyra í Brasilíu um helgina í F1 djö er gaman ađ leika sér á Körtum.. Mikiđ rosalega gaman var ađ fá krakkana mína til mín og og ég er alltaf ađ átta mig betur og betur á ţví hvađ ég er heppinn ađ eiga svona frábćr börn, sem eru alltaf ađ veita mér meiri og meiri gleđi og fyrir ţađ er ég óendanlega ţakklátur...
Ég er byrjađur í Babbanum aftur og rosalegar harđsperrur eru búnar ađ hrjá mig síđan á laugardaginn en ég nć ţeim úr mér í tímanum í dag og verđ fínn á eftir. Ţađ sem er best viđ ađ koma heim eftir svona langan tíma er ađ hitta allt ţetta frábćra fólk sem ég ţekki og tel til vina og kunningja minna og é g er búinn ađ hitta ótrúlega marga á ţessum fáu dögum sem liđnir eru síđan ég kom heim.. Ég fór međ Stjána vini mínum á Dýrfirđingaball á laugardaginn og ţađ var nú bara eins og vera á balli í Félagsheimilinu á Ţingeyri og mjög gaman ađ hitta alla ţessa góđu Dýrfirđinga og fyrrverandi sveitunga mína til margra ára..
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ
Magnús G.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Ótrúleg uppákoma..
13.10.2007 | 20:47
Marokkomenn eru alltaf ađ koma mér meira og meira á óvart.. Í gćr var ég á viđskiptafundi međ einujm af okkar ágćtu samstarfsađilum og ég sagđi honum ađ tvö af ţremur börnum mínum og kćrasti dóttur minnar vćru ađ koma til mín síđar um daginn. Hann sagđi ţá strax; ţú verđur ađ koma međ ţau í mat til mín á morgun í hádeginu, ţađ verđur veisla, RAMADAN er búin og ţá höldum viđ veislu, mćtiđ kl. 1345. Skal gert herra minn sagđi ég. Auđvitađ mćttum viđ svo í veisluna sem var einhver sú flottast sem viđ höfum komiđ í öll sömul, endur og heilgrilluđ lömb á borđ borin ásamt Kous Kous og ávöxtum og fl. 0fl. Viđ hittum Lögreglustjórann í Laayoune í veislunni og spjölluđum heilmikiđ viđ hann um heima og geima og allt ţar á milli. Ţetta matarbođ var mikil reynsla fyrir okkur öll og ékki síst krakkana sem sáu alveg nýja mynd af Marokkó og siđunum hér. Eftir veisluna fórum viđ svo í bíltúr um bćinn okkar og út í Eyđimörkina.. Núna rétt áđan var svo hringt í mig af lögreglustjóranum og hann spurđi mig hvort ég vćri heima, úps á nú taka mann hugsađi ég, sagđi ég eitthvađ viđ hann í dag sem ekki passađi. Ég sagđi honum nú bara ađ koma og hitta og ţađ gerđi hann viđ annan mann sem var sá hinn sami og bauđ okkur í matinn í dag, klyfjađur ađ pökkum og pinklum. Hann fćrđi okkur öllum gjafir, Sigrúnu silfur skart og okkur strákunum hefđbundna kufla og Hákoni skó til viđbótar.. Viđ stóđum hér orđlaus af undrun og sáum hér enn eina nýja mynd af ţessu góđa fólki sem hér býr og er alltaf ađ koma mér á óvart...
Á morgun förum ég og krakkarnir yfir á Kanarí og verđum saman ţar í nokkra daga og svo heim til Íslands á miđvikudaginn... Glćsilegur dagur ađ kveldi kominn frábćrt ađ hafa krakkana hér og leyfa ţeim ađ upplifa ađeins lífiđ hér í Marokkó..
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ
Magnús G...
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
Ađ opna föstuna ........
6.10.2007 | 00:03
Ég upplifđi skemmtilega reynslu í kvöld. Eins og ég hef veriđ ađ blogga ţá er núna föstumánuđur múslíma svokallađ Ramadan og á ţessum tíma breytist margt. Múslímar fasta frá sólarupprás til sólarlags og ţegar sólin gengur undir ţá opna ţeir föstuna. Mér var semsagt bođiđ ađ vera viđstaddur föstuopnun hjá einum af okkar ágćtu viđskiptafélögum hér, hann býr vel eins og flestir í stórri íbúđ međ mikiđ af mósaiki og skrauti um allt. Viđ Karim vinur minn mćttum kl. 1820 í matinn og vorum međ fyrstu mönnum, einn mćttur á undan okkur félögunum. Á nćstu mínútum streymdu inn karlmenn, engar konur, og ţegar yfir lauk ţá vorum viđ orđnir 16 held ég og hófst nú athöfnin á bćn. Múslimar biđja 5 sinnum á dag og ein bćnin er á bilinu hálf sjö til sjö. Bćnin tekur ca. 5 mínútur og tóku allir ţátt í henni nema ég og einn annar kristinn mađur sem var á stađnum.. Bćnin var leidd af einum gestanna og hinir fylgdu honum í bćnahaldinu. Ađ aflokinni bćninni ţá hófst matarveisla hin mesta og gćddum viđ okkur á margskonar góđgćti sem allt var í raun hefđbundinn marakóskur matur, byrjađ á góđri fiskisúpu og svo kom fiskur, kjöt og margt fleira sem ég kann ekki ađ nefna. Veislan stóđ í rúman klukkutima og ţá tćmdist húsiđ allt í einu eiginlega án ţess ađ mađur tćki eftir ţví og menn fóru flestir í stóru Moskuna í bćnum ađ biđjast fyrir. Í dag er 22 dagur í Ramadan og bara rúm vika eftir.. mér er sagt ađ Ramadan ljúki 14. október n.k.
Ţetta var bara skemmtileg reynsla og fćrir mann ađeins nćr fólkinu hér og auđgar lífiđ.
Ég var Las Palmas í tvo daga og kom heim um kl. 1600 í dag, Las Palmas er bara nokkuđ skemmtilegur stađur og mikiđ um ađ vera ţar. Ég á örugglega eftir ađ fara ţangađ aftur í frí og njóta ţess sem í bođi er ţar. Skelli inn einni mynd af Las Palmas
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ
Bestu kveđjur úr sólinni og sandinum i Sahara Magnús G.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
Íslendingar fara víđa....
4.10.2007 | 23:20
Er staddur í Las Palmas og rakst á ţennan líka fína Íslending sem heitir Geymslugámur. Ég rakst á vininn niđur á höfn og hann hafđi ţađ gott..
Set inn mynd af honum ef einhver skyldi ţekkj´ann
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ, hér er sólin gengin til viđar en samt blíđa og koppalogn..
Magnús G.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
Í HAM !!!!!!!!
2.10.2007 | 16:55
HÁKON ÖRN Í HAM,
GUMMI BEN Í HAM
BECKHAM
HÉR FYRIR NEĐAN ERU UPPÁHALDS KNATTSPYRNUMENNIRNIR MÍNIR Í AUGNABLIKINU OG ŢAĐ EIGA ŢEIR SAMEIGINLEGT, ÁSAMT ŢVÍ AĐ NOTA ALLIR SAMA NĆRINGARPROGRAMMIĐ.
HÁKON ÖRN ER FRAMHERJI HJÁ 6 FLOKKI BREIĐABLIKS YNGRA ÁRS. SHELLMÓTSMEISTARI BĆĐI INNAN OG UTANHÚSS, AUK FLEIRI TITLA Á ÁRINU OG SPILAĐI TIL ÚRSLITA UM ÍSLANDSMEISTARATITIL MEĐ SÍNU LIĐI Í ÁGÚST S.L. , MJÖG SPRĆKUR STRÁKUR.
GUMMI BEN ER FRAMHERJI HJÁ ÍSLANDSMEISTURUM VALS OG ÁTTI SITT BESTA TÍMABIL Í MJÖG LANGAN TÍMA OG AF SUMUM TALINN VERA LYKILLINN AĐ SIGRI VALS Í SUMAR.
DAVID BECKHAM ER SPÁNARMEISTARI MEĐ REAL MADRID OG ER TALINN EIGA MJÖG STÓRAN ŢÁTT Í ŢVÍ AĐ REAL VANN SPÁNARDEILDINA Í VOR. NÚ LEIKMAĐUR LA GALAXY Í LOS ANGELES OG EINHVER ALLRA BESTI KNATTSPYRNUMAĐUR HEIMS.
ŢEGAR ŢESSIR STRÁKAR ERU Í HAM ŢÁ ER FÁTT SEM STÖĐVAR ŢÁ OG LIĐIN ŢEIRRA.
TIL HAMINGJU ALLIR MEĐ FRÁBĆRT FÓTBOLTASUMAR OG FÓTBOLTAÁR..
HAFIĐ ŢAĐ EINS OG ŢIĐ VILJIĐ
BESTU KVEĐJUR ÚR SÓLINNI HÉR Í AGADIR
MAGNÚS G
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
CASABLANCA
1.10.2007 | 09:54
Nú sit ég hér á flugvellinum í Casablanca og bíđ eftir flugi. Ég var einmitt ađ hugsa um Humprey Bogart og Ingrid Bergmann sem léku í ţeirru frćgu mynd Casablanca sem var gerđ á stríđsárunum ef ég man rétt.. Ţađ er svo skrítiđ ađ mađur tengir eiginlega allt viđ ţessa mynd og alltaf koma ţau uppí hugann... Ég er hér á flugvellinum í 12 sinn á ţessu ári en hef aldrei komiđ til Casa ţ.e.a.s. borgarinnar, úr ţessu verđ ég ađ fara ađ bćta .. Hver var aftur frćga setningin sem Humprey sagđi i ţessari mynd ???? Ćtli Casablanca vćri svona ţekkt borg ef ţessi mynd hefđi ekki veriđ gerđ ??
Ţađ er ýmislegt sem manni dettur í hug ţegar manni leiđist á flugvöllum....
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ
Magnús G.
Bloggar | Breytt 2.10.2007 kl. 14:09 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)