Austanvindur..... og...........

Það  er búið að vera ansi svalt hér í  Sahara eyðimörkinni undanfarið,  kannski 12 gráður á nóttunni og  rétt um 20 gráður yfir hádaginn,  þetta er  skítkalt  hér  og  er  peysuveður  alla  daga,  nema í  dag  brast hann á með austanvindi..  Það er nú  flest  ef  ekki allt gott sem kemur að austan,  alla vega austan af fjörðum og  haldiði  ekki bara að hann hafi hent  sér  í  32 gráðurnar  í  dag  og ég verð að segja að það var nú bara notalegt....Húsin nefnilega  kólna  líka og eru lengi að hitna og það hefur verið kalt  á  nóttunni fyrir svona  einhleypa  kalla  hér í  eyðimörkinni undanfarið..  Það  er  búið  að vera skemmtilega mikið að gera hjá mér  undanfarna daga og ekki timi fyrir blog  færslur,  ég ætla nefnilega helst að klára hálfan eða allan heiminn áður en ég kem heim eftir rétta viku,  til jólahalds  og  smá  hvíldar og flutnings í nýju íbúðina  mína..  Mér  hefur verið hugleikið  undanfarið, þetta  að eiga sér  draum  eða drauma.  Ég er svo  heppinn  að eiga mér draum og ég er svo  þakklátur fyrir að  geta  lifað drauminn minn  alla daga,  og  ég  er alltaf að nálgast hann meir og meir..  Ég  man þegar  ég var lítill drengur austur á  Búðum í  Fáskrúðsfirði, að alast upp  á bryggjunni innan um  glæsilegar  söltunarstelpur og  flotta  síldarsjómenn  á  klofstígvélum,  svörtum að  neðan og rauðum að ofan.  Ég man að ég dæmdi þessa kalla á  því hvernig þeir brutu uppá stigvélin  sín og  ef  brotið var  nákvæmt þá  langaði mig að  ræða við þá  annars ekki..  Á  þessum árum langaði mig  að verða skipstjóri  og mig dreymdi um að verða officeri  á Varðskipi, af  því það voru  stærstu skipin þá,  sem maður  sá,  bátarnir voru flestir  um og innan við 100 tonn á þessum árum.  Ég  lét  þennan draum rætast og  fór í stýrimannaskólann og fékk tækifærið  til að vera stýrimaður á Ægi  fyrir tæpum 29 árum síðan eða þegar  ég var 19 ára gamall.  Mér  er enn í  fersku minni  vellíðanin sem fór um mig allan þegar þessi draumur minn rættist.   En  síðan eru nú liðin mörg ár,  síldin horfin og komin aftur  og  Fáskrúðsfjörður eina síldarsöltunarplássið á Íslandi núorðið.   Leyfum okkur  að dreyma og förum á eftir draumunum okkar því þegar þeir rætast þá  líður okkur svo vel  og  höfum hugfast  það sem Walt Disney  sagði  "If you can dream it, you can do it"    Leyfum líka börunum okkar að dreyma,  ekki draga úr  þeim,  við vitum  aldrei  hvað það hefur í för með sér..    Bið að heilsa í jólastressið á Íslandi  og  endilega hafið það eins og  þið viljið............ 

Magnús G. Whistling

IMG_1963


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hehehe fyndið hvernig þú valdir þér menn að spjalla við    barnshugurinn er ekki að flækja málin.

En satt og rétt, þurfum að passa draumana okkar og rækta þá.

Kveðja frá ítalíu....ca 5 - 12 stiga hiti hér og LOGN (það þykir mér best af öllu)

Halldóra

Halldóra Skúla (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband