Að taka ábyrgð á sjálfum sér og börnunum okkar...

Það  að  taka ábyrgð á sjálfum  sér hefur verið mér  hugleikið  að  undanförnu og  er nú  ýmislegt  sem  upp í  hugann,  eins og  andlegt og líkamlegt atgervi,  holdarfar,  reykingar,  áfengisdrykkja,   ástundun í  námi og  vinnu og  síðast  en ekki síst  umhyggja og ábyrgð  á  börnunum okkar..    Af  hverju er  ég  nú að velta  þessu  fyrir  mér  hér í  eyðimörkinni  á  meðan  landar mínir  eru á  fullu í  jólastressinu og  hendast á  milli  Kringlunnar og  Smáralindar að  skoða  piparkökuhús eða hitta ameríska  Coka  Cola  jólasveina.  Auðvitað  á þetta ekki við um þá  sem búa á  landsbyggðinni  þ.e.a.s.  a.m.k.  ekki þá  sem búa  fyrir austan og vestan þeir skjótast  ekki í  Kringluna um hverja helgi og  njóta því  fjarlægðarverndar..  En  að  efninu,  oft  heyrir  maður einhvern  segja, ég  lenti  í þvi  að vera  rekinn úr  skólanum,  eða ég lenti í því  að missa bílprófið  (helv. löggan tók mig)  og svo mætti  lengi  telja,  í  stað  þess að segja  ég  kom mér  í þessar aðstæður og  tek  ábyrgð á  gjörðum mínum  og  breyti  öðruvísi næst, þannig að sagan endurtaki sig ekki og  lifa  þannig ábyrgu lífi.   En  það  sem  er  mér hugleiknast þessa dagana er  ábyrgði á  eigin heilsu og heilsu barnanna okkar á Íslandi.    Ég  var  svo  heppinn að engill settist á  öxlina á  mér  fyrir  rúmum 5 árum,  hvíslaði einhverju í eyrað á  mér, sem ég hlustaði á   og  síðan hefur heilsa  mín bæði andleg og líkamleg  tekið  slíkum stakkaskiptum að ég  trúi  því  varla  sjálfur að hægt sé uppskera  jafn mikið  á  jafn stuttum tima  og  5 árum.  Góð heilsa og  heilbrigður lífstíll  verður mér  æ  hugleiknari af  þvi  að  uppskeran  tekur engan  enda  og  alltaf  er  að koma meira  í hús  efitir því sem tíminn líður.  Það er mér alltaf  erfiðara og  erfiðara  að  sjá  vini og kunningja  sem eru að eldast  eins og  ég og eru enn í  þessum gamla  óholla  lífsstíl,  reykja,  drekka of mikið  af  kaffi og  áfengi,  eru 10 - 30 kg. of  þungir,  alltaf þreyttir, með slen og orkulausir  og þrá  sófann sinn   eftir  vinnu.  Við  verðum að taka  ábyrgð á  okkur,  ef  ekki okkar vegna  þá  barnanna okkar vegna, því  þau eiga  rétt á því að  hafa okkur í formi  eins  lengi og kostur er..   Það ergir  mig  einnig mjög  að  horfa uppá  Íslensk börn og  unglinga,  vera komin  í  þá  stöðu  að vera í hópi  feitustu  barna í heimi  og við þessi  vel menntaða þjóð  horfum á  og  gerum ekkert í  málinu.   Tökum nú ábyrgð á börnum  okkar og  nærum  þau  rétt svo  þau eigi  skemmtilegt  líf  framundan, full af orku og til í hvað sem er...  Mér  svona  datt þetta í  hug  af  því að  ég  hef  bara séð eitt barn  hér í  Sahara eyðimörkinni  sem er  of þungt..   Það er ýmislegt sem manni dettur í hug þegar maður er einn i eyðimörkinni..

Hafið það eins og þið viljið

Magnús G..  Wink

WTS DUBLIN  2007 009

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Heyr heyr, það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Hverjir eru fyrirmyndirnar, það erum við foreldarnir ekki satt?? Og svo merkilegt sem það er og tekur fólk langan tíma að átta sig á að þá gera börnin eins og við gerum en ekki endilega það sem við segjum þeim að gera. Verum góðar fyrirmyndir, hef sagt það oft og segi það enn og aftur.

Solveig Friðriksdóttir, 10.12.2007 kl. 13:02

2 Smámynd: Life will never be the same...!!

Aldrei er góð vísa of oft kveðin!

Ég er ein af þeim sem var svo heppinn að engillinn kom við hjá mér í sömu ferð og þér Magnús og þvílíkt líf sem ég hef öðlast!

Ég var að koma úr ræktinni, hljóp 5 km., tók sprett síðustu 500 m. og móð eftir því og það er ALLTAF einhver sem spyr mig "Díana mín, ertu nokkuð að ganga frá þér?"

Mér finnst þetta svo fyndin spurning, til hvers fer maður í ræktina ef ekki til að taka á og hækka púlsinn örlítið???

Upp úr sófanum með okkur og tökum ábyrgð, heyr heyr Magnús!

Þú hefur það svo bara.... kv. Díana Mjöll.

Life will never be the same...!!, 11.12.2007 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband