Að segja satt eða segja það sem hlustandinn vill heyra....
4.12.2007 | 22:35
Þetta er mér hugleikið nú um stundir, af gefnu tilefni. Hér í þessu samfélagi verður maður oft fyrir þvi að manni er sagt það sem "segjandinn" heldur að maður vilji heyra og þá heldur hann að allir séu ánægðir og glaðir og verði þannig um alla tíð...Þetta er nú stundum kallað lýgi og eða hvít lýgi ef þetta er ekki mjö alvarlegt og eða hagræðing á sannleikanum og svo framvegis.. Mér var tamið í uppeldinu að vera heiðarlegur og segja satt, þó að það væri kannski ekki alltaf auðvelt eða þægilegt og þessum lífsreglum hef ég fylgt nánast undantekningalaust. Ég hef reynt að framlengja þessi gildi til barnanna minna og það hefur tekist vel.. Ég mun aldrei refsa þeim og eða neinum fyrir að segja sannleikann, einfaldlega vegna þess að ef maður refsar þeim sem segir sannleikann, þá fer hann að segja það sem þú vilt heyra og allt fer í vitleysu og engu er að treysta lengur. Ég hef ákveðið að segja bara alltaf satt, það er svo miklu einfaldara.
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G.
Athugasemdir
Já sinn er siðurinn í hverju landi. Þetta finnst mér mjög mikilvægur þáttur og geri mitt allra besta til að innræta það hjá börnunum mínum að það sé alltaf mikilvægast að segja satt og rétt frá. Stöddakveðja
Solveig Friðriksdóttir, 6.12.2007 kl. 10:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.