Færsluflokkur: Bloggar
AGADIR, BORG SEM VERT ER AÐ SKOÐA...
29.8.2007 | 23:06
Kominn heim aftur frá Agadir sem er í 650 km fjarlægð frá Laayoune, fór fljúgandi þangað í gegnum Casablanca á mánudagsmorguninn og sömu leið til baka í gærkvöldi. Ég set inn upplýsingar um Agadir sem ég tók út af netinu og hvet ykkur til að skoða þessa borg sem áfangastað á næstu árum, flott borg með merkilega sögu..
Lýsingin á borginni er eftirfarandi;
It has a population of 678,596 (2004; census figures for the agglomeration include the nearby cities of Inezgane and Aït Melloul); the population of the city proper is estimated at 200,000. The mild winter climate (January average midday temperature 20°C/68°F) and good beaches have made it a major "winter sun" destination for Northern Europeans. The current mayor is Tariq Kabbaj.
The city is located on the shore of the Atlantic Ocean, near the foot of the Atlas Mountains, just north of the point where the Souss River flows into the ocean.
Today, Agadir is an important fishing and commercial port, the first sardine port in the world, (exporting cobalt, manganese, zinc and citrus).It is also a famous seaside resort with a long sandy beach. Because of its large buildings, wide roads, modern hotels, and European-style cafés, Agadir is not a typical city of traditional Morocco, but it is a modern, busy and dynamic town. Agadir is famous for its sea food and agriculture.
Ég er ákveðinn í því að fara í frí einhverntíma til Agadir og njóta borgarinnar í botn..
Hafið það eins og þið viljið, ég hef það gott í sólinni og sandinum í Marokkó.
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagsrúnturinn í 35 ° C / Vin í eyðimörkinni
26.8.2007 | 19:26
Góðan daginn, mættur aftur við tölvuna og nýkominn heim úr sunnudagsrúntinum með Gumma verkstjóra. Víð fórum útí litla vin í eyðimörkinni og fengum okkur te sem boðið er uppá þar, ekta Marokkó te sem er bara frábært, grænt te með Myntulaufi og töluvert af sykri ef vill.. Við fórum einnig í smáskoðunarferð um nýju hverfin í Laayoune en gríðarlega miklar byggingaframkvæmdir standa yfir í borginni og held ég bara að það sé meira að gerast í byggingabransanum hér en á höfuðborgarsvæðinu á Íslandi og er þá mikið sagt. Ég skrapp líka í Stórmarkaðinn og keypti mér ýmislegt nauðsynlegt og ónauðsynlegt sem gott er að eiga, eins og gengur. Við Gummi ætlum að kíkja aðeins á mannlífið á High Street í kvöld, en hér gerast hlutirnir ekki fyrr en að það fer að kólna á kvöldin og og þá lifnar allt við. Er að hlusta á Bjarna Fel lýsa þvi að VALUR sé að vinna Keflavík og BREIÐABLIK ætli að vinna Víking, þetta internet er náttúrulega bara yndislegt og léttir manni svo margt. Ég vona bara að Valur og Breiðablik vinni í kvöld þó að sé á brattan að sækja eftir að Guðmann vara rekinn útaf.
Set inn eina eða tvær myndir eftir daginn og bið og vona að allir hafi það eins gott og þeir vilja.
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kominn aftur í hitann og sólina.
25.8.2007 | 17:05
Jæja þá er maður kominn aftur til Marokkó, eftir rúma 2 mánuði á Íslandi. Tíminn á Íslandi leið eins og örskot og ég hafði mörg og skemmtileg verkefni að vinna að. Ég átti frábæran tíma með Hákoni mínum og fylgdi honum í fótboltanum og hann gerði mig hvað eftir annað ótrúlega stoltan og mikið á ég að þakka fyrir að eiga hann. Ég átti líka stuttar en yndislegar stundir með fullorðnu börnunum minum Guðjóni Má og Sigrúnu Ástu, sem er nátturlega bara frábærir krakkar sem viðhalda foreldrastoltinu og sanna fyrir mér að börnin þroskast þrátt fyrir uppeldið. Takk krakkar mínir öll fyrir frábærar stundir í sumar. Ég átti líka frábærar stundir með vinum og félögum við veiðar, í ógleymanlegri gönguferð í Hellisfjörð með Svanhvíti Ara frá Norðfirði og fl. og fl. Veðrið á Íslandi var frábært allan tímann sem ég var heima og oft var veðrið svo gott að ég hélt að ég væri annarsstaðar en á Íslandi. Ég fór í tvær flottar helgarferðir til Kölnar á Extravaganca og til London um verslunarmannahelgina með Hákoni. Þessar ferðir voru bara frábærar og gáfu mér mikla orku.
Nú fara í hönd nokkrar góðar vikur hér í Marokkó, við uppbyggingu á FDM og á nætu vikum verða ótrúlega miklar breytingar og sumarstarfið fer að skila sér, ég hlakka mikið til næstu vikna og allra þeirra fjölbreyttu verkefna sem framundan eru.
Set inn mynd af nokkrum úlföldum sem fengu sér vatnssopa fyrir utan skrifstofuna hjá mér í fyrradag, bara heimilislegt að fá svona gesti.
Bestu kveðjur og óskir um að allir hafi það eins og þeir vilja ..
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fékk smá frí í nokkra daga...
20.7.2007 | 10:37

Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laayoune
9.6.2007 | 18:03
Bærinn sem ég bý í hér í Marokko heitir Laayoune og er höfðustaður þessa hluta Marokko, hér búa á bilinu 3 - 500.000 manns, tölur eru aðeins á reiki og reyndar skiptir þetta engu máli í raun. Fólkið sem þennan ágæta bæ byggir er mjög vingjarnlegt og vill allt fyrir mann gera..
Bærinn er hér í miðri Sahara eyðimörkinni og ber auðvitað keim af því, mikill sandur og lítill gróður, þó samt ótrúlega mikill miðað við eyðimörk. Laayoune þíðir í raun uppspretta og var bærinn nefndur ´þetta vegna ´þess að hér var vatn á einum af fáum stöðum í mörkinni.. Í útjaðri bærjarins er stöðuvatn og töluverður gróður þar í kring..
Alltaf sama góða veðrið og litlar breytingar á því... ósköp notalegt...
Í gær varð slys um borð í einu af skipunum okkar og einn af okkar ágætu starfsmönnum frá Namibíu, varð fyrir meiðslum, hann er nú kominn undir læknishendur og er á góðum batavegi..
Ég hlakka orðið mikið til að koma til Íslands í næstu viku og hitta mína nánustu....
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Marókkó te er alveg frábært....
8.6.2007 | 16:08
Eitt af því góða sem ég er búinn að uppgötva hér í Marokko er teið þeirra sem er bara snilldin ein.. Grænt te og Mynta blandað saman í tinkattli með passlega mikið af sykri, hrikalega gott. Teið drekkum við úr litlum glerglösum. Ég fór í gær og keypti mér forláta teketill sem er nú eiginlega listaverg út af fyrir sig og einnig bakka og glös... Herlegheitin voru svo testuð í gærkvöldi af nokkrum útvöldum sem komu til mín í te. Ótrúlegt en satt þá hældu konurnar mér fyrir teið og sögðu að þetta væri með því besta sem gerðist.... Það verður örugglega boðið uppá te í Gullsmáranum þegar ég kem heim því ég tek græjurnar með mér heim í næstu viku..
Hér er annars alltaf sama góða veðrið, reyndar búið að vera sérlega gott alla þessa viku logn og heldur hlýrra en áður.. annars er oft nokkur gola hér við ströndina..
Læt þetta duga í bili..
MG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mér var boðið í mat í gærkvöldi...
7.6.2007 | 11:51
Í gærkvöldi fórum við í ´"smá"matarboð hjá fjármálastjóranum okkar og ég hélt að þetta yrði svona huggulegt með ostum osfrv. og þannig byrjaði það um áttaleytið. Við sátum og spjölluðum eins og gengur og um kl. 2330 kom matur, marókóskur matur, þvílík veisla, smá synishorn frá Noregi reyktur lax í forrétt, lambalæri í aðalrétt 1 og kjúklingar í aðalrétt 2 og svo cream caramel og ávextir á eftir.. Við fórum heim um 0130 og mér leið eins og úlfinum í sögunni um Rauðhettu eftir allt átið. En uppúr stendur að þetta var hrikalega gott allt saman og ótrúlega skemmtilegt að upplífa svona menninguna hér. Mér er sagt að Marokkomenn meðhöndli gesti sína almennt á einstakan hátt og hiki ekki við að eyða mánaðarlaunum sínum í eina góða veislu fyrir góða gesti. Frábært kvöld og frábær matur.. Hér er auðvitað sama gamla góða veðrið Sól og 30 gráður, ekkert vesen með yfirhafnir hér, bara ein skyrta eins og venjulega..
Ísland - Svíþjóð puff, mikið er feginn að hafa ekki þurft að horfa á þann hildarleik í sjónvarpinu og ég verð að segja að þjóðarstoltið varð fyrir svolitlum hnekki í gærkvöldi þegar aftur og aftur og aftur rann yfir sjáinn á BBC World, Svíar krömdu Íslendinga ´5-0 í Stokkhólmi í kvöld, reyndar það jákvæða í þessu er, að það skuli vera tilefni til Breaking News á einni stærstu og virtustu sjónvarpsstöð í heimi að Íslendingar tapi í fótbolta, ætli Eyjólfur viti af þessu.
Góðar stundir..
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sól Sól Sól og aftur sól..
6.6.2007 | 11:08
Ég hef heyrt í nokkrum á Íslandi undanfarna daga og allir hafa verið að tala um veðrið og hversu fádæma leiðinlegt það hefur verið, rígning alla daga og rok með suma dagana.. Ég heyrði líka í einni vinkonu minni um daginn á MSN og hún spurði hvort maður fengi ekki leið allri þessari sól, dag eftir dag.. hvort að íslenska veðrið væri ekki bara betra, allavega fjölbreyttara..
Það er fjölbreyttara, því að flesta daga er veðrið hér nánast eins Sól, Sól, Sól og aftur sól og ca. 27 gráður á celsíus og kólnar lítiillega á kvöldin. Ég hef áður búið við svipaðar veðuraðstæður og ég skal segja ykkur að það er ekki hægt að fá leið að góðu veðri. Ég vona svo að það fari að stytta upp hjá ykkur þarna fyrir norðan því ég er koma heim í næstu viku og mig langar ekkert sérstaklega í rigninu, ef mig langar í rigningu þá fer ég bara í sturtu..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þá er maður kominn með sína eigin bloggsíðu...
3.6.2007 | 23:23
Jahá nú er maður kominn með bloggsíðu eins og allir hinir, tilgangurinn er að senda einhverjar smá fréttir af mér héðan frá Marokko á næstunni og skella kannski inn einni og einni mynd..af umhverfinu.. Lífið hér í Laayoune er ansi frábrugðið því sem við eigum að venjast á Íslandi í dag, en hér er gott fólk, vingjarnlegt og hjálpsamt, verkefnið okkar hér gengur vel og það er gríðarega góður andi í hópnum. Við vorum með ekta sjómannadagskaffi í dag, þar sem við hittumst 15 íslendingar og fengum frábærar pönnukökur og alles hjá Kollu og Þóru..
Skemmtileg vika framundan með mikið að skemmtilegum verkefnun..
MG.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)