Bloggfćrslur mánađarins, janúar 2008
Í gćr var MEGA PARTÝ........
29.1.2008 | 00:12
Jćja ţá er mađur nćstum ţví búinn ađ koma sér fyrir í Ásakórnum, allar gardínurnar komanar á sinn stađ og myndir á veggina, bćkurnar í hillurnar, tölvan tengd og svo framvegis........
Hiđ raunverulega innflutningspartý var svo í gćr ţegar hingađ mćttu einir 15 10 ára guttar í stórafmćli Hákonar sem varđ 10 ára ţann 13. janúar s.l. Íbúđin stóđst álagiđ, engar skemmdir, allir sluppu óslasađir og saddir, enda hesthúsuđu ţeir 6 stórum pizzum, hellingi af brauđstöngum, skúffuköku, íspinnum ofl.. Kók, fanta og appelsín í lítravís rann ljúft ofan í ţessa kalla og af hávađanum ađ dćma ţá skemmtu ţeir sér hiđ besta.
Ţetta var frábćrt partý og gaman ađ halda ţađ hér í nýju íbúđinni okkar....
Hafiđ ţađ svo eins og ţiđ viljiđ
Magnús G.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
Fluttur í Ásakórinn............................
23.1.2008 | 00:09
Jćja jćja ţá er ég fluttur í Ásakór 9 íbúđ 303, kominn međ símann og netiđ og og kössunum fćkkar á gólfinu. Ég get nú bara ekki minnst á ţessa flutninga án ţess ađ ţakka börnunum mínum öllum fyrir hjálpina, Hákoni fyrir burđ og kannski sérstaklega fyrir ađ vera góđur á međan á öllum hamaganginum stóđ. Sigrún Ásta, vann međ mér alla helginu eins og SLEGGJA Í HELV'ITI og hún fćr frábćrar ţakkir fyrir fórnfýsi og dugnađ. Steinar tengdasonur fćr frábćrar ţakkir fyrir allan burđinn og hjálpina. Friđjón Kristjánsson fyrir burđinn á borđinu og ţunguhlutunum á laugardaginn og Guđjón Már fyrir hjálpina viđ ađ koma öllu á sinn stađ innandyra, en hann átti ekki mikiđ heimangengt um helgina vegna vinnu. Víđ Hákon sváfum hér á Laugardaginn og viđ sváfum mjög vel og okkur dreymdi ekkert sem mér er sagt ađ sé betra en ađ dreyma eitthvađ slćmt.. Íbúđin er mjög skemmtileg og ég er mjög ánćgđur međ íbúđina og stađinn, svona í jađri bćjarins og stutt í náttúruna. Ţađ er gott útsýni til Esjunnar og í Hvalfjarđarkjaftinn og út á sundin blá og svo í suđur uppí Rjúpnahćđina og suđureftir í átt ađ Heiđmörkinni. Ég klárađi ađ ţrífa Gullsmárann í kvöld og fékk frábćra hjálp frá Völu valkyrju og vorum viđ ekki nema rétt um klukkutíma ađ ţrífa allt, inní alla skápa og ryksugađ og skúrađ útí öll horn..
Viđ Hákon ćtlum ađ halda uppá afmćliđ hans á Sunnudaginn hér í Ásakór og bjóđa bestu vinum hans.
Miđađ viđ síđustu fréttir af vígstöđvunum í Reykjavík ţá sannast ţađ enn og aftur ađ "ŢAĐ ER GOTT AĐ BÚA Í KÓPAVOGI" og ég er viss um ađ ţiđ sem ennţá búiđ í Reykjavík eruđ velkomin í Kópavog, ţađ er nóg pláss, ef ég man rétt ţá eigum viđ land austur undir Hornafjörđ..
Ţađ eru auđvitađ allir velkomnir í heimsókn í Ásakórinn..
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ...
Magnús G..
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
Ţađ var sagt mér ..............
18.1.2008 | 11:38
Ţađ var einhver velunnari minn sem sagđi mér ađ ţetta vćri nú ađ verđa pínlegt međ bloggsíđuna mína, aldrei neitt nýtt og komiđ langt inná nýja áriđ, ég var farin ađ halda ađ ţú vćrir dauđur drengur... og svo frv. Alltí lagi ég samţykki ţetta bara og reyni ađ bćta úr og koma međ fullan poka af afsökunum, ţó ég reyndar sé ţeirrar skođunar ađ, afsakanir séu bein leiđ til helvítis, fyrirgefiđ orđbragđiđ. Ţađ er búiđ ađ vera ótrúlega mikiđ ađ gera hjá mér og ég er ekki fluttur ennţá, flyt kannski um helgina. vonandi.. Íbúđin er orđin klár til innflutnings, eina vandamáliđ er ađ ţađ hefur ekki veriđ hćgt ađ ganga frá kaupsamningi ennţá vegna tćknilegra vandamála, en ţau leysast nú í nćstu viku..
Ég lofa ţví ađ vera duglegri ađ blogga ţegar ég verđ fluttur inn og örugglega ţegar ég verđ kominn niđur til Marokkó aftur.. Annars átti Hákon minn stórafmćli um daginn ţann. 13 janúar, hann varđ 10 ára og viđ fórum á Pizza Hut í tilefni dagsins. Viđ ćtlum svo ađ halda Mega Partý ţegar viđ verđum fluttir inn í Ásakórinn..
Takk fyrir ađ heimsćkja síđuna mína
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ
Magnús G.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
Gleđilegt nýtt ár og takk fyrir öll ţau gömlu..
1.1.2008 | 23:47
Jćja ţá eru jólin liđin og áramótin líka og nýtt ár hafiđ áriđ 2008. Ég er viss um ţetta ár verđur fullt af nýjum tćkifćrum og ákorunum til ađ takast á viđ .. Ég átti góđan jóladag framan af degi og fór í ţennan líka fína göngutúr uppí Ásakór og aftur til baka og á bakleiđinni lenti ég í byl og stórhríđ sem er nú bara skemmtilegt hér á Stór Kópavogssvćđinu.. Jólahelgin fékk heldur snöggan endi hjá mér síđdegis á jóladag, ţegar mér bárust fréttir af hinu hörmulega slysi sem varđ um borđ í einu af skipunum okkar. Í ţessu slysi létust tveir frábćrir starfsmenn, annar ţeirra heimamađur í Marokko og svo skipstjóri skipsins Helgi Jóhannsson, ţeirra er beggja sárt saknađ og missir fjölskyldna ţeirra er ţó auđvitađ mestur og votta ég ţeim mína dýpstu samúđ. Međ okkur Helga hafiđ tekist sérstakur og góđur vinskapur á ţessum fáu mánuđum sem kynni okkar vörđu og mun ég sakna ţess ađ geta ekki átt viđ hann hressilegar og skemmtilegar samrćđur í framtíđinni, en minningin um góđan mann lifir. Eđlilega hefur tíminn undanfarna daga fariđ í mál tengd ţessu hörmulega slysi og töluverđ vinna fylgir ţví ađ fá lík flutt milli landa.
Áramótin hjá mér voru hefđbundin, viđ vorum öll saman eins og undanfarin rúm 20 ár,, börnin okkar Helgu, viđ vorum heima hjá Helgu ásamt móđiur Helgu og systur og hjá okkur voru okkar kćru vinir Bergţóra og Kristján og Friđjón og Mímí og Eríkur fađir Kristjáns. Maturinn var hefđbundinn, rjúpusúpa frá mér og Kalkúnn og kaffiís frá Helgu.. allt gott. Raketturnar fengu frí en viđ sendum tvćr tertur til himins í rokinu í gćrkvöldi, varla stćtt, en ótrúlega miklu skotiđ upp samt.. Viđ skutumst áđan feđgar og tókum Darra Gunnarsson frćnda okkar međ í smá rakettushow sem gekk flott, viđ skutum upp í Kórahverfinu... ţetta áriđ .. Ég fór í skemmtilegt fertugsafmćili í dag hjá vestfirskri blómarós og ţađ skemmtilegasta viđ afmćliđ var ađ ţađ var svona ekta afmćli međ tertum, kaffi og appelsíni, alltaf gaman ađ hitta fólk sem mađur hefur ekki hitt áđur. Á morgun hefst ég handa viđ parketlögn og frágang í Ásakór og stefni ađ flutningi á nćstu dögum..
Ég vil ţakka öllum fyrir áriđ sem var ađ líđa og óska öllum gleđi og gćfu á nýu ári
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ á nýja árinu
Magnús G.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)