Það var sagt mér ..............

Það  var  einhver  velunnari  minn  sem sagði  mér að þetta væri  nú  að verða pínlegt  með  bloggsíðuna  mína,  aldrei  neitt nýtt   og   komið  langt inná  nýja  árið,  ég  var  farin að halda að þú  værir  dauður  drengur...  og svo  frv.    Alltí  lagi  ég  samþykki  þetta  bara  og reyni að bæta  úr og koma  með  fullan poka  af  afsökunum,  þó  ég  reyndar  sé  þeirrar  skoðunar að,  afsakanir séu  bein  leið  til helvítis,  fyrirgefið  orðbragðið.   Það  er  búið að vera  ótrúlega mikið að  gera  hjá  mér og  ég  er ekki  fluttur  ennþá,  flyt  kannski um helgina.  vonandi..  Íbúðin  er  orðin  klár  til  innflutnings,  eina  vandamálið er að  það hefur ekki verið hægt  að  ganga frá  kaupsamningi ennþá  vegna tæknilegra  vandamála, en þau leysast  nú í næstu  viku..

Ég  lofa  því að  vera  duglegri að blogga þegar ég  verð  fluttur  inn og  örugglega  þegar  ég  verð kominn niður til Marokkó  aftur..  Annars átti  Hákon  minn stórafmæli  um  daginn  þann.  13  janúar,  hann varð  10 ára  og  við fórum  á  Pizza  Hut  í  tilefni  dagsins.  Við  ætlum svo að halda  Mega  Partý  þegar  við  verðum fluttir  inn í  Ásakórinn..

 Takk fyrir  að  heimsækja  síðuna  mína 

Hafið það eins og þið  viljið 

Magnús G. GetLost

Á Players í Desember


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Jæja, er bara minn mættur á sviðið !! Loksins, loksins  Það er gott Maggi minn að það sé nóg að gera hjá þér, bara gaman af því !! Af mér er allt gott að frétta eins og venjulega !! Hress og kát !! Hvenær ferðu út aftur ?  Ég bið að heilsa þér  minn og hafðu það gott.

Knúsíknús

mbk (magga bloggar krúttlegast var það ekki það sem þetta þýddi ?)

Magga Scheving

Margrét G. Scheving (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 13:58

2 identicon

jæja nú skaltu fara að koma með blogg um flutningana.....

Sigrún Ásta (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 10:58

3 identicon

Nú fer ég að verða  það heyrist ekkert frá þér !!

Margrét G. Scheving (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 18:23

4 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Takk fyrir öll  knúsin  Magga mín og  ég þori ekki öðru en að hlíða og  blogga aðeins..

Hafðu það eins og þú vilt

Magnús Guðjónsson, 23.1.2008 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband