Frábær saga sem ég fékk..

Þegar  ég opnaði  póstinn minn í  dag  var  þessi  frábæra saga  í  póshólfinu mínu,   mig  langar  að  deila  henni  með  ykkur  til  umhugsunar;

Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað.
Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli.
 Síðan bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og
skrifa það fyrir neðan nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau
blöðunum til  kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern
nemanda og  safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.  Síðan
fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir. Þegar þeir lásu  þetta
urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu  skrifað.
Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu  máli.
Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða við
foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu ánægðari með
sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.
 Lífið hélt áfram.
 Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn ákvað
að vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og
spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði talað
mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna
henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var
það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn
hafði fengið honum fyrir mörgum árum. "Þakka þér fyrir að gera þetta,því
eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli" sagði móðir Magnúsar.
 Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt
þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af Því
sem þeim þótti vænst um. Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún
niður og grét, bæði syrgði hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa
snert nemendur sína með þessu uppátæki.
 Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að
lífið endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður.
Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu
þér mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það oft áður en
það  verður of seint.
 Eitt af því sem þú getur gert er að senda þetta áfram. Ef þú gerir það ekki
þá hefur þú misst af tækifæri til þess að gera eitthvað gott fyrir þá sem
eru þér mikilvægir. Ef þú hefur fengið þetta bréf þá er það af því að
einhverjum þykir vænt um þig og að alla vega einni persónu finnst þú vera
mikilvæg/ur. Sendu þetta áfram. Sýndu að þér er annt um vini þína. Mundu að
þú uppskerð eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur einhverjum. Vona að
dagurinn verði þér finn og sérstakur því þú skiptir miklu máli!

Þetta  er eitt af því sem ég  legg inn  í  þennan  fallega  dag.

Hafið  það eins og þið  viljið..

Magnús G.  Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband