Merkisdagur í dag..
20.2.2008 | 10:32
Í dag er mikill merkisdagur í Íslandssögunni, fyrsta Kaupfélagiđ var stofnađ á ţessum degi 1882 og svo var Samband Ísl. Samvinnufélaga einnig stofnađ á ţessum degi 1902. Fyrir mann eins og mig sem í raun er fćddur og uppalinn í Samvinnuhreyfingunni, ţá vekur ţessi dagur nú alltaf upp góđar minningar. Ég hef stundum velt ţví fyrir mér, ef ađ menn myndu skođa sögu samvinnuhreyfingarinnar á Íslandi af sanngirni og án ţess ađ blanda flokkspólitík inni hugsanir sínar, hvort ađ niđurstađan vćri ekki sú, ađ stofnun kaupfélaganna og félaga á ţeirra vegum, vegi ekki hvađ ţyngst í sjálfstćđisbaráttu ţjóđarinnar á síđustu öld. Kannski lögđu samvinnufélögin grunninn ađ velmeguninni sem viđ búum viđ í dag. Gríđarlega miklar breytingar hafa orđiđ á efnahagslífinu á Íslandi á undanförnum árum, samvinnufélögin flest eru hćtt starfsemi, ţeirra hugmyndafrćđi hćtti ađ henta fólkinu og félögin náđu ekki ađ ađlaga sig ađ breyttum ađstćđum á réttum tíma og ţví fór sem fór. Landsbyggđin á meiri varnarbaráttu nú en nokkru sinni fyrr og ţúsundir manna flytja á höfuđborgarsvćđiđ árlega af landsbyggđinni. Í dag eru nokkrar fyrirtćkjablokkir í eigu örfárra einstaklinga sem eiga nánast allt atvinnulífiđ og stjórna nánast öllu á Íslandi, fjármagni, fiskveiđum, verslun, flutningum á sjó, landi og í lofti, fjölmiđlum og svo mćtti lengi telja.
Kaupfélögin um land allt og Sambandiđ í Reykjavík og á Akureyri ráku umfangsmikla atvinnustarfsemi fast ađ einni öld og ég er einn af ţeim heppnu ađ mér finnst ađ hafa fengiđ tćkifćri til ađ kynnast Samvinnuhreyfingunni vel. Ég fékk m.a. tćkifćri til ađ sitja í stjórn Sambandsins fyrir hönd starfsmanna ţess á árunum 1984 - 1987 og ţađ var mikil lífsreynsla fyrir ungan mann ađ fá tćkifćri til ađ sitja í stjórn stćrsta fyrirtćkis landsins á ţeim tíma..
Ekki veit ég hvort Samvinnuhreyfing gengur í endurnýjun lífdaga á Íslandi aftur ? , kannski í einhverri mynd ef fólki ofbýđur eins og fyrir rúmum 100 árum ţegar menn tóku sig saman og stofnuđu kaupfélögin. Ég reyndar held ađ ţessi ţróun sé hafin erlendis og komi fram nú í formi MLM (Multi Level Marketing ) fyrirtćkja sem vaxa í raun međ miklum hrađa viđast hvar í heiminum.
Annars vil ég nota tćkifćriđ og óska tveimur heiđursmönnum til hamingju međ afmćliđ í dag, ţeim Halldóri Bjarnasyni fyrrverandi tengdaföđur mínum og Gunnari Erni Gunnarssyni bakara og samstarfsmanni í nokkur ár sem er 50 ára dag..
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ
Magnús G
Athugasemdir
Ég hef sem sagt fćtt dóttur mína á miklum merkisdegi án ţess ađ vita af ţví. Kv frá landsbyggđinni.
Solveig Friđriksdóttir, 25.2.2008 kl. 09:11
Takk fyrir alla hjálpina í flutningunum ;)
hefđum ekki getađ ţetta án ţín.
Love Sigrún
Sigrún Ásta (IP-tala skráđ) 25.2.2008 kl. 09:25
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.