Ótrúleg uppákoma..
13.10.2007 | 20:47
Marokkomenn eru alltaf að koma mér meira og meira á óvart.. Í gær var ég á viðskiptafundi með einujm af okkar ágætu samstarfsaðilum og ég sagði honum að tvö af þremur börnum mínum og kærasti dóttur minnar væru að koma til mín síðar um daginn. Hann sagði þá strax; þú verður að koma með þau í mat til mín á morgun í hádeginu, það verður veisla, RAMADAN er búin og þá höldum við veislu, mætið kl. 1345. Skal gert herra minn sagði ég. Auðvitað mættum við svo í veisluna sem var einhver sú flottast sem við höfum komið í öll sömul, endur og heilgrilluð lömb á borð borin ásamt Kous Kous og ávöxtum og fl. 0fl. Við hittum Lögreglustjórann í Laayoune í veislunni og spjölluðum heilmikið við hann um heima og geima og allt þar á milli. Þetta matarboð var mikil reynsla fyrir okkur öll og ékki síst krakkana sem sáu alveg nýja mynd af Marokkó og siðunum hér. Eftir veisluna fórum við svo í bíltúr um bæinn okkar og út í Eyðimörkina.. Núna rétt áðan var svo hringt í mig af lögreglustjóranum og hann spurði mig hvort ég væri heima, úps á nú taka mann hugsaði ég, sagði ég eitthvað við hann í dag sem ekki passaði. Ég sagði honum nú bara að koma og hitta og það gerði hann við annan mann sem var sá hinn sami og bauð okkur í matinn í dag, klyfjaður að pökkum og pinklum. Hann færði okkur öllum gjafir, Sigrúnu silfur skart og okkur strákunum hefðbundna kufla og Hákoni skó til viðbótar.. Við stóðum hér orðlaus af undrun og sáum hér enn eina nýja mynd af þessu góða fólki sem hér býr og er alltaf að koma mér á óvart...
Á morgun förum ég og krakkarnir yfir á Kanarí og verðum saman þar í nokkra daga og svo heim til Íslands á miðvikudaginn... Glæsilegur dagur að kveldi kominn frábært að hafa krakkana hér og leyfa þeim að upplifa aðeins lífið hér í Marokkó..
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G...
Athugasemdir
Mikið öfunda ég þig að vera í Agadir,ég var þar í 3 vikur fyrir 11 árum síðan.Fólkið var alveg yndislegt og allir vildu allt fyrir mann gera.Mér fannst svo gaman að sjá hvað þeir báru mikla virðingu fyrir eldra fólki,og hvað þeir voru góðir við börn.Langar að fara þangað aftur,gaman að sjá geiturnar éta uppi í trjánum,mér er sagt að það sé bara í Agadir sem þær eru.
maggas (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 21:27
Ég veit ekki hvernig súlan sést úr Kópavoginum, en þú skreppur bara einn rúnt á Sæbrautinni til að skoða hana. Vertu svo velkominn heim. ( þetta virðast vera hinir fínustu kyrtlar sem þið hafið fengið þarna úti)
Eyþór Árnason, 14.10.2007 kl. 22:32
Þetta er greinilega svakalega mikil upplifun og algjör forréttindi fyrir börnin að fá að kynnast því að kannski er ekki allt eins og fréttastöðvar bera það á borð!!!
Hlakka til að sjá þig um helgina!
Þú hefur það svo bara líka...
Life will never be the same...!!, 16.10.2007 kl. 10:29
Kominn heim og búinn að sjá súluna hennar ONO. Hún sést flott úr Kópavogi, þannig að maður þarf ekkert að leita til þessara þorpa í nágrenninu. Reyndar sagði mér kona sem ég hitti á Laugardagskvöldið, ( að vísu verstfirsk valkyrja ) að þetta væri hin flottasta frigðarsúla. Það verður ekki logið á Vestfirðinga..
MG.
Magnús Guðjónsson, 22.10.2007 kl. 12:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.