Fékk smá frí í nokkra daga...
20.7.2007 | 10:37
Um helgina skrapp ég austur á firði að vitja æskustöðvanna, ég byrjaði í fæðingarbænum Norðfirði og fór þaðan í frábæra gönguferð í Hellisfjörð undir góðri leiðsögn vinkonu minnar á Norðfirði. Gönguferðin var ógleymanleg, stórkostleg náttúrufegurð og frábært veður í góðum félagsskap gerðu það að verkum að dagur sem þessi er a.m.k. einnar viku virði. Hellisfjörður er stuttur fjörður sem liggur inn úr Norðfjarðarflóanum, sunnan við Norðfjörð. Á árum áður var þarna stór og mikil hvalstöð og má sjá leifar af henni ennþá á tanganum sem gengur út í fjörðinn. Tveir sumarbústaðir eru í firðinum og falleg á liðast niður dalinn. Í fjörunni liggur gamall bátur sem ég hefði áhuga á að vita hvenær lenti þar og hvað hann er búinn að vera lengi, ef einhver hefur upplýsingar um það.. Það er ótrúlegt hvað ég fæ mikla orku við það að koma á austfirði og einhvern veginn næ ég tenglum við upprunann. Ég fór líka á Fáskrúðsfjörð, Stöðvarfjörð, Eskifjörð, Reyðarfjörð og Egilsstaði og hitti allstaðar gott fólk sem ég er svo lánsamur að þekkja á þessum stöðum. Þessir dagar voru frábærir og fylltu mig af orku.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.