Færsluflokkur: Bloggar
Alvöru Samhjálp
9.4.2009 | 00:18
Metaðsókn í ókeypis súpu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki grunaði mig að
6.4.2009 | 10:44
Óttast áhlaup á Kaupþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Skuldir verða færðar niður
5.4.2009 | 13:54
Það er ljóst að gríðarleg skuldaniðurfærsla á sér stað þessa dagana og gríðarlegir fjármunir eiga eftir að tapast í þeim gjaldþrotum nú eru til meðferðar hjá skiptastjórum og í þeim gjaldþrotum sem framundan eru og eru óumflýjanleg við óbreytt ástand. Það er mörgum hulin ráðgáta afhverju Samfylkingin "Jafnaðarmannaflokkur Íslands" flokkur sem kennir sig við alþýðu landsins vill ekki skoða þá tillögu sem jafnar stöðu alþýðunnar í landinu. Tillaga Frasóknarflokksins er tilllaga um jöfnuð sem og margar góðar tillögur eins og Borgarahreyfingarinnar sem er í raun alveg sama tillagan með öðru orðalagi. Ég heyrði ekki þennan þátt á Bylgjunni þar sem Ólína brá fyrir sig ódýrum rökum um hagsmunatengsl SDG við Kögun, reyndar kemur mér það ekki á óvart því auðvitað óttast SF tillögur sem virka fyrir fólkið í landinu. Gömlu bankarnir þrír sem komnir eru á framfæri skilanefnda og eru í raun gjaldþrota í framhaldi af greiðsluþrotinu sem varð í haust og varð til þess að Ríkið yfirtók starfssemi þeirra. Mér er sagt að útgefin skuldabréf af þessum "gömlu" bönkum gangi á 1-2 % af nafnverði þeirra sem merkir á mannamáli að þeir eru einskis metnir og þar með allir milljarðarnir sem þeir hafa lánað til húsnæðiskaupa og til fyrirtækja á Íslandi eru einskis virði.
Það hlýtur að vera nokkuð ljóst að lándrottnar Íslensku bankanna sem nú eru fallnir í valinn, gera sér grein fyrir því að gríðalegar niðufærslur munu eiga sér stað, eignir falla í verði sem aldrei áður, fyrirtækin eru að stöðvast mörg hver og eru ekki með greiðslugetu til að greiða upp skuldir sínar og tap verður óflýjanlegt. Íslenska Ríkið stofnaði þrjá nýja banka í Október á grunni þeirra gömlu yfirtók kröfur bankanna og veitti fólki hliðrun á greiðslum með frystingu. Afhverju gátu þeir það ? Vegna þess að það er enginn að krefja þá um greiðslur vegna þess að þeir eru nýir og skudirnar sitja gömlu bönkunum ennþá. Það mun hinsvegar eiga sér stað yfirfærsla einhverntíma á einhverju gengi, kannski 50% kannski bara 20% og satt að segja held ég að það verði bara nær 20% prósentum sem gengið verður, alla vega ætti það ekkert að vera hærra.
Ríkinu er í lófa lagið að færa öll húsnæðislánin í Íbúðalánasjóð á kaupgenginu þ.e.a.s. 20% og þannig myndast rúm fyrir 20% leiðréttingu og jafnvel enn meira ef þörf er á og miklu fleira fólki þar með gefinn kostur á að standa við sínar skuldbindingar. Það sama á við um fyrirtækin ef þau fá ekki leiðréttingu, þá fara á þau á Hausinn með miklu meiri afskriftum og ómældu tjóni fyrir þjóðfélagið í heild.
Það gengur ekki að fólk sem gefur sig útfyrir að vera jafnaðarmenn gangi erinda kröfuhafanna og fríi þá allri ábyrgð á óábyrgum lánveitinum og ætlist til að almenningur í landinu beri sökina á þessum óförum öllum einir og sér. Ég er löngu hættur að skilja fyrir hvað þessi blessaða Samfylking stendur og hvaða hagsmuni hún er að verja og til hvers. Ég skil alveg Sjálfstæðisflokkinn og fyrir hvað hann stendur enda tala þingmenn hans sumir eins og að sjálfstæðisflokkurinn sé lýðveldið s.b.r. ræða á Landsfundinum um daginn þar sem einn þingmaðurinn sagði að Sjálfstæðisflokkurinn mætti aldrei missa tökin á fiskveiðiauðlindinni.
Að lokum þetta, mér finnst þær hugmyndir sem SF og VG hafa komið með til hjálpar heimilum og fyrirtækjum í landinu bara alls ekki traustvekjandi og allt of flóknar í framkvæmd ..
Yfir 1000 hafa sótt um greiðsluaðlögun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Hvað ætla þau að gera
23.3.2009 | 00:53
sem mynda þessa ríkisstjórn sem nú situr? Gera til að fólk missi ekki alla von um framtíð í þessu ágæta landi. Ég var að horfa á Silfur Egils nú rétt í þessu og hlustaði í á SJS fjármálaráðherra svara spurningunni um hvað á á gera fyrir heimilin í landinu ? Það er eitthvað markvisst og hnitmiðað sem þarf að gera, það má alls ekki hlusta á tillögur Framsóknarflokksins, Tryggva Þórs Herbertssonar, Lilju Mósesdóttur, Borgarhreyfingarinnar, hagsmunasamtaka heimilanna um að leiðrétta handvirkt skuldir heimilanna, með einhverskonara niðurfærslu, hvað svo sem við köllum þessa aðgerð. Á maður bara að trúa því að þetta fólk sem segist vera félagshyggjufólk og vera í pólitík til að gæta að velferð borgaranna, ætli sér að hunsa allar skynsamlegar og félagslegar tillögur til lausnar fyrir boragana í þessu landi. Sú félagshyggja sem þetta fólk sýnir okkur í verki þessar vikurnar er ekki sú félagshyggja sem ég vil og örugglega ekki saklaust fólk sem hefur verið rænt. Fólk þessa lands hefur verið rænt eigum sínum í gegnum vísitölutryggingar sem styðjast við heimatílbúna verðbólgu, gengishrun krónunnar sem féll vegna áhlaups bankanna á krónuna til að framkalla ímyndaðan hagnað í bókum bankanna á síðasta ári í þeirri von að leikurinn gæti haldið áfram. Að hlusta á talsmann SF í Silfrinu áðan halda því fram að helstu rökin fyrir því að ekki megi leiðrétta neitt gagnvart heimilinum væri vegna þess að forsætis, fjármála og viðskiptaráðherrarnir í ríkisstjórninni væru alfarið á móti þessum tillögum sem fram eru komnar, eru léttvæg rök. Það er farið að fara ótrúlega mikið í taugarnar á mér að hlusta á þetta sama fólk snúa útúr öllum skynsamlegurm tillögum með sömu vitleysisrökunum um að það megi ekki hjálpa neinum sem hugsanlega kannski þarf ekki á því að halda. Afhverju gengur þessi ríkisstjórn ekki fram fyrir skjöldu og sýnir fólki það traust og höfðar til samkenndar fólks sem ekki þarf á niðurskriftum að halda, að það bara afþakki aðstoðina. Þetta gæti verið stærsta skrefið í því að endurvekja traustið sem nauðsynlegt er að endurvekja í landinu. Ríkisstjórn Íslands og talmenn þeirrar stefnu sem hún fylgir verða að fara að koma fram með lausnir fyrir fólk sem er að missa vonina eða brjóta odd af oflæti sínu og nýta sér tillögur annarra sem fram eru komnar. Það er nefnilega þannig að ef við ætlum að komast útúr þessari kreppu þá þarf fólk að vera í standi andlega og með einhverja von í brjósti til að berjast.
Þessi blessaða ríkisstjórn virðist því miður vera VONLAUS og er á góðri leið með að skapa algert vonleysi meðal þjóðarinnar.
Það sem þessi þjóð þarf nú er fyrst og fremst VON og TRAUST og það skylda stjórnmálamanna sem vilja láta eitthvað eftir sig liggja að leggja sitt að mörkum til að skapa þetta tvennt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Liverpool eru langbestir
22.3.2009 | 17:52
Ótrúlegir yfirburðir á Anfield. Enn einum stjörunuleiknum að ljúka, áfram Liverpool.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Kjarkur
22.3.2009 | 17:50
er það sem þarf í stjórnmálum og Kristján Þór hefur hann. Það ætla ég að vona að hann nái kjöri sem formaður af því að ég held að það yrði gott fyrir þjóðina.
Kristján Þór í formannskjör | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Skemmtilegur leikur
18.3.2009 | 23:29
Frábær sigur í Skopje | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til hamingju Blikar...
18.3.2009 | 23:24
Breiðablik lagði Fjölni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loksins vakna VG
18.3.2009 | 15:38
Vill fella niður 4 milljónir af höfuðstól húsnæðislána | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ég er ekki í vafa um að
18.3.2009 | 15:21
Kristján Þór Júlíusson hlýtur að vera einhver allra besti kosturinn sem sjálfstæðismenn eiga, þegar talað er um nýjan formann fyrir flokkinn. Kristján talar mál sem fólk skilur, vegna þess að hann skilur fólkið landinu. Þó að ég sé ekki í sjálfstæðisflokknum þá tel ég það vera algert stórmál hver verður formaður þess flokks á næsta landsfundi. Kristján Þór Júlíusson væri skynsamlegur kostur fyrir sjálfstæðismenn og landsmenn alla. Ég skora á hann að bjóða sig fram til formanns.
Kristján Þór íhugar framboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)