Bloggfćrslur mánađarins, ágúst 2007
Á morgun byrjar nýr mánuđur.....September
31.8.2007 | 20:43
Á morgun byrjar uppáhaldsmánuđurinn minn, September. Ég veit ekki afhverju, en einhvernveginn ţá er september venjulega mjög viđburđarríkur hjá mér og stórir og merkilegir hlutir í lífi minu hafa oft gerst í september eđa átt upptök sín í ţeim ágćta mánuđi. En hvađ er svona merkilegt viđ ţennan mánuđ ? Ég er fćddur í september, ég byrjađi sambandiđ viđ Helgu sem ég var međ í 23 ár í september, frumburđurinn minn hann Guđjón Már er fćddur í september og einkadóttir mín hún Sigrún Ásta er fćdd í september. Afdrifaríkar ákvarđanir hef ég oft tekiđ í september, og ţessi góđi mánuđur hefur oft valdiđ straumhvörfum í ţví sem ég er ađ gera og vinna viđ eđa vinna ađ. Ég veit ađ sá september sem byrjar á morgun á eftir ađ verđa einn af ţeim eftirminnilegustu, ţegar fram líđa stundir, ţađ er margt sem mun gerast jákvćtt og skemmtilegt og ég hlakka mikiđ til. Hér í Laayoune er allt međ hefđbundnum hćtti, veđriđ ágćtt, svolítill vindur í 2 daga en annars fínt. Reyndar er í gangi kosningabarátta núna og verđur mađur nokkuđ mikiđ var viđ hana, ađallega í formi plakata á ólíklegustu stöđum og miklum fjölda dreifimiđa sem fjúka um götur og torg. Kosiđ verđur ţ. 8. september og fljótlega eftir ţađ eđa ca. 13 september byrjar RAMADAN sem er föstumánuđur múslíma og stendur í 28 daga. Ramadan getur veriđ snúinn fyrir okkur sem ekki erum múslímar og t.d. lokar veitingahúsiđ sem sćkjum oftast í hádeginu allan Ramadan, ţannig ađ viđ verđum kannski bara líka ađ fasta í hádeginu. Annars hef ég ţađ frábćrt, búin ađ vera erilsöm vika međ mörgum óvćntum verkefnum sem öll hafa veriđ leyst farssćllega og ţá verđa flestir kátir.. set inn mynd af húsinu sem ég bý í í Laayoune.
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ
Magnús G.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
AGADIR, BORG SEM VERT ER AĐ SKOĐA...
29.8.2007 | 23:06
Kominn heim aftur frá Agadir sem er í 650 km fjarlćgđ frá Laayoune, fór fljúgandi ţangađ í gegnum Casablanca á mánudagsmorguninn og sömu leiđ til baka í gćrkvöldi. Ég set inn upplýsingar um Agadir sem ég tók út af netinu og hvet ykkur til ađ skođa ţessa borg sem áfangastađ á nćstu árum, flott borg međ merkilega sögu..
Lýsingin á borginni er eftirfarandi;
It has a population of 678,596 (2004; census figures for the agglomeration include the nearby cities of Inezgane and Aďt Melloul); the population of the city proper is estimated at 200,000. The mild winter climate (January average midday temperature 20°C/68°F) and good beaches have made it a major "winter sun" destination for Northern Europeans. The current mayor is Tariq Kabbaj.
The city is located on the shore of the Atlantic Ocean, near the foot of the Atlas Mountains, just north of the point where the Souss River flows into the ocean.
Today, Agadir is an important fishing and commercial port, the first sardine port in the world, (exporting cobalt, manganese, zinc and citrus).It is also a famous seaside resort with a long sandy beach. Because of its large buildings, wide roads, modern hotels, and European-style cafés, Agadir is not a typical city of traditional Morocco, but it is a modern, busy and dynamic town. Agadir is famous for its sea food and agriculture.
Ég er ákveđinn í ţví ađ fara í frí einhverntíma til Agadir og njóta borgarinnar í botn..
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ, ég hef ţađ gott í sólinni og sandinum í Marokkó.
Magnús G.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagsrúnturinn í 35 ° C / Vin í eyđimörkinni
26.8.2007 | 19:26
Góđan daginn, mćttur aftur viđ tölvuna og nýkominn heim úr sunnudagsrúntinum međ Gumma verkstjóra. Víđ fórum útí litla vin í eyđimörkinni og fengum okkur te sem bođiđ er uppá ţar, ekta Marokkó te sem er bara frábćrt, grćnt te međ Myntulaufi og töluvert af sykri ef vill.. Viđ fórum einnig í smáskođunarferđ um nýju hverfin í Laayoune en gríđarlega miklar byggingaframkvćmdir standa yfir í borginni og held ég bara ađ ţađ sé meira ađ gerast í byggingabransanum hér en á höfuđborgarsvćđinu á Íslandi og er ţá mikiđ sagt. Ég skrapp líka í Stórmarkađinn og keypti mér ýmislegt nauđsynlegt og ónauđsynlegt sem gott er ađ eiga, eins og gengur. Viđ Gummi ćtlum ađ kíkja ađeins á mannlífiđ á High Street í kvöld, en hér gerast hlutirnir ekki fyrr en ađ ţađ fer ađ kólna á kvöldin og og ţá lifnar allt viđ. Er ađ hlusta á Bjarna Fel lýsa ţvi ađ VALUR sé ađ vinna Keflavík og BREIĐABLIK ćtli ađ vinna Víking, ţetta internet er náttúrulega bara yndislegt og léttir manni svo margt. Ég vona bara ađ Valur og Breiđablik vinni í kvöld ţó ađ sé á brattan ađ sćkja eftir ađ Guđmann vara rekinn útaf.
Set inn eina eđa tvćr myndir eftir daginn og biđ og vona ađ allir hafi ţađ eins gott og ţeir vilja.
Magnús G.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Kominn aftur í hitann og sólina.
25.8.2007 | 17:05
Jćja ţá er mađur kominn aftur til Marokkó, eftir rúma 2 mánuđi á Íslandi. Tíminn á Íslandi leiđ eins og örskot og ég hafđi mörg og skemmtileg verkefni ađ vinna ađ. Ég átti frábćran tíma međ Hákoni mínum og fylgdi honum í fótboltanum og hann gerđi mig hvađ eftir annađ ótrúlega stoltan og mikiđ á ég ađ ţakka fyrir ađ eiga hann. Ég átti líka stuttar en yndislegar stundir međ fullorđnu börnunum minum Guđjóni Má og Sigrúnu Ástu, sem er nátturlega bara frábćrir krakkar sem viđhalda foreldrastoltinu og sanna fyrir mér ađ börnin ţroskast ţrátt fyrir uppeldiđ. Takk krakkar mínir öll fyrir frábćrar stundir í sumar. Ég átti líka frábćrar stundir međ vinum og félögum viđ veiđar, í ógleymanlegri gönguferđ í Hellisfjörđ međ Svanhvíti Ara frá Norđfirđi og fl. og fl. Veđriđ á Íslandi var frábćrt allan tímann sem ég var heima og oft var veđriđ svo gott ađ ég hélt ađ ég vćri annarsstađar en á Íslandi. Ég fór í tvćr flottar helgarferđir til Kölnar á Extravaganca og til London um verslunarmannahelgina međ Hákoni. Ţessar ferđir voru bara frábćrar og gáfu mér mikla orku.
Nú fara í hönd nokkrar góđar vikur hér í Marokkó, viđ uppbyggingu á FDM og á nćtu vikum verđa ótrúlega miklar breytingar og sumarstarfiđ fer ađ skila sér, ég hlakka mikiđ til nćstu vikna og allra ţeirra fjölbreyttu verkefna sem framundan eru.
Set inn mynd af nokkrum úlföldum sem fengu sér vatnssopa fyrir utan skrifstofuna hjá mér í fyrradag, bara heimilislegt ađ fá svona gesti.
Bestu kveđjur og óskir um ađ allir hafi ţađ eins og ţeir vilja ..
Magnús G.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)