Hver stjórnar SÍ
29.1.2009 | 12:41
ég er nú farinn að halda, samkvæmt þessu að það skipti engu máli hver er Seðlabankastjóri ef IMF ræður öllu um peningmál á Íslandi. Það er rosalegt sjálfstæði að ráða ekki einu sinni hvaða stýrivextir eru í landinu. Við verðum að fara að fá fólk í SÍ sem getur talað máli þjóðarinnar við IMF af þekkingu og með rökum sem þeir skilja. Ég held að Vilhjálmur Egilsson væri góður kostur fyrir okkur sem Seðlabankastjóri, hann hefur þekkingu á þjóðlífinu, er hámenntaður hagfræðingur, hefur unnið hjá IMF ef ég man rétt, eða verið í stjórn IMF. En síðast en ekki síst þá treysti ég honum til að stýra SÍ af skynsemi.
Hafið það eins og þið viljið ..
Vilhjálmur: Óskiljanleg ákvörðun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.