Dapurlegt
14.1.2009 | 23:49
að sjá þessa frétt og er hún í raun dapurlegt framhald á þeirri stöðu sem búið er að setja LHG í á undanförnum áratugum. Ég átti því láni að fagna að fá tækifæri til að starfa hjá LHG þegar ég var unglingur og fram undir tvítugt. Ég minnist þess tíma með miklu þakklæti, enda var nóg að gera á þeim árum þegar við börðumst fyrir yfirráðum yfir auðlindinni okkar, fiskinum í sjónum. Nú þegar þessi auðlind verður hugsanlega sú verðmætasta til skamms tíma, þá er ekki rétt að skerða rekstur LHG meira. Þessar aðgerðir tel ég að séu staðfesting á tengslaleysi Ríkisstjórnarinnar og einstakra ráherra við raunveruleikann. Mig langar að minna á að margir þeirra sem hugsanlega fá uppsagnarbréf núna lögðu sig í lífshættu, fyrir rúmum 30 árum til að brjóta yfirgang og hroka BRETA á bak aftur. Ég sendi starfsmönnum LHG allar mínar bestu hugsanir og óskir og vona að menn átti sig áður en það er um seinan.
Uppsagnir hjá Gæslunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þér Magnús og eins og þú þá starfaði ég aðeins hjá Gæslunni, birjaði '72 sama ár og við íslendingar réðumst í 50 sml lögsöguna var að vísu settur í land áður en alvaran hófst á hafinu ásamt öðrum lærlingum eða nemum eins og við vorum kallaðir sem vorum að hefja okkar sjómennskuferil, flestir okkar þá 14-15 ára gamlir. Ég réð mig síðan sem messagutti um borð í VS TÝ ex Hvalur 9 í skólafríinu um jól og áramót sama ár, ákaflega góður tími með góðum mönnum, rekst marga þeirra öðruhvoru og heilsumst við enn þegar við hittumst - svona er félagskapurinn og virðingin hjá Gæslunni, að gleyma ekki neinum.
Ég ber mikla virðingu fyrir þessu fólki öllu
Jón Snæbjörnsson, 15.1.2009 kl. 15:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.