Laugardagurinn fyrir páska...
22.3.2008 | 22:16
Ţessi laugardagur hefur veriđ fínn og ýmislegt reikađ um hugann sem minnir á ţennan dag. Fyrir 35 árum var ég á sjó á trillu frá Reykjavík. Áhöfnin var auk mín Fađir minn heitinn, Friđgeir bróđir minn og Jón Ţór Sigurđsson sem bjó í sama húsi og viđ á Hlíđarveginum í Kópavogi.. Grásleppuverđtíđin ţetta áriđ var ađ byrja og viđ ađ fara međ fyrstu trossurnar. Viđ lónuđum úti viđ 7 baujuna, karlinn hann pabbi var ađ leggja lokahönd á netin og gera ţau klár til ađ leggja ţau og bađ mig um ađ lóna um svćđiđ á međan. Ég sá nokkra fugla sem hringuđu sig yfir einhverju og ţeir vöktu athyglí mína. ég Hélt í áttina ađ fuglunum og ţegar viđ áttum nokkra tugi metra ófarna ađ fuglunum spratt karlinn upp og sagđi ađ ţađ vćri mađur í sjónum beint framundan bátnum, sem og var. Ţarna var kornungur mađur sem hafđi falliđ fyrir borđ á Vita-varđskipinu Árvakri sem fór út nokkru á undan okkur. Viđ drógum manninn um borđ og settum á fullu ferđina í land og komum manninum heilum undir lćknishendur. Ekki voru netin lögđ ţennan laugardaginn enda ágćtur afli ađ bjarga manni og vonandi hefur ţessum ágćta manni vegnađ vel í lífinu.
Dagurinn í gćr var flottur, ég nýtti mér nálćgđina viđ náttúruna og gekk hringinn í kringum Elliđavatn í stórkostlegu veđri, ég mćtti nokkurhundruđ hestamönnum sem nýttu góđa veđriđ til útreiđa. Örugglega frábćrt hobby hestamennskan, sérstaklega á svona dögum. Í gćrkvöldi fór ég svo á hátíđarfund AA samtakanna í Laugardalshöllinni og ţetta var frábćr fundur og stórkostlegt ađ upplifa ţann góđa anda sem ríkti á fundinum. Strax eftir fundinn fór ég á tónleika til styrktar XA radio ţar sem fram komu frábćrir listamenn sem allir gáfu vinnu sína, skemmtilegir tónleikar og vonandi safnađist nóg fyrir sendinum.
Á skírdag gekk ég á Helgafell í roki og frosti, ansi hressilegt og ţó ađ Helgafelliđ sé nú ekki hátt var bara helv. hvasst uppi, fínn dagur skírdagur..
Annars ćtla ég ađ taka ţví eins rólega og ég bara get nú um páskana og slappa eins vel af og framast er í bođi.
Gleđilega páska og hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ um páskana..
Magnús G
Athugasemdir
Ţetta hefur veriđ góđur dagur ţarna fyrir 35 árum. Gleđilega páska Maggi minn.
Eyţór Árnason, 23.3.2008 kl. 00:41
Já takk Eyţór, ţetta var nú einn af ţessum góđu dögum og ég held ađ pabbi gamli hafi lýst ţessari veiđiferđ sem ţeirri stystu og bestu sem hann hafđi fariđ og sennilega er ţađ bara ágćt lýsing á ţessum degi.. Gleđilega páska til ţín og ţinna og skilađu bestu kveđjum..
Magnús Guđjónsson, 23.3.2008 kl. 21:29
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.