Jólanótt..
25.12.2007 | 02:37
Jólanótt finnst mér alltaf eitthvað svo notaleg, maður slappar af eftir góðan mat á aðfangadag, búinn að gleðjast með sínum nánustu, vonandi að sem flestir hafi tækifæri til þess, sjá gleðina í andlitum allra þegar pakkarnir koma úr umbúðunum.
Ég átti mjög notalegt aðfangadagskvöld, flottur forréttur hjá Helgu, Rjúpurnar og Hamborgarhryggurinn voru frábær og Kaffiísinn klikkar aldrei. Notalegt og afslappað aðfangadagskvöld.. Ég skrapp í aftansöng í Digraneskirkju sem var nú bara nokkuð þétt setin. Séra Yrsa Þórðardóttir þjónaði og gerði það vel, hún lagði út frá frelsinu í ræðu sinni og held ég nú að það hafi verið tímabært að minna á hvað við erum nú heppin að búa á Íslandi við allt þetta frelsi.. jafnvel þó við megum ekki fara á sjó nema hafa kvóta.
Ég er búinn að kveikja á friðarkertinu mínu á svölunum og vona að það færi sem flestum frið í sálinni.
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G.
Athugasemdir
Gleðileg jól Maggi minn. Bestu kveðjur frá Sólvallagötunni
Eyþór Árnason, 25.12.2007 kl. 22:48
Komdu nú sæll og blessaður kæri skólabróðir og gleðilega jólarest ! Díses hvað það er langt síðan að ég hef komið inn á síðuna þína ! Ég er farin að skammast mín...sorry... Af okkur er allt gott að frétta. Fór til Kaupmannahafnar í byrjun des. svona kerlingarferð..hrikalega gaman..mikið hlegið og borðað..humhum.. Það varð ekkert af því Maggi minn að við skólasystkinin hittumst núna í haust yfir kaffibolla,kannski látum við verða af því á nýju ári. Til hamingju með stúdentinn þinn, þetta er yndislegt !! Hafðu það ávallt sem best kæri vinur.
Tökum á móti nýju ári fagnandi eins og venjulega (ekki satt)
Knúsíknús þín vinkona Magga Scheving og Ási minn fær að fylgja líka.
Margrét G.Scheving (IP-tala skráð) 28.12.2007 kl. 00:17
Kæra skólasystir, ég var farinn að halda að þú værir búin að gleyma mér og adressuna ínná síðuna mína, takk fyrir jólakortið líka og ég vona svo sannarlega að þú og þínir hafið átt gleðileg jól. Þú verður nú að fara að drífa í þessu kaffi góða mín, kíldu á þetta með vorinu.. Takk fyrir hamingjuóskirnar með stúdentinn... Ég óska þér og þínum svo gleðilegs árs og takk fyrir skemmtilega að samveru á árinu sem var að líða....
Hafðu það svo eins og þú vilt..
MG..
Magnús Guðjónsson, 2.1.2008 kl. 00:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.