Góđa veislu gjöra skal....
27.11.2007 | 19:02
Viđ héldum flotta veislu í gćrkvöldi. Í veislunni voru allir Íslendingar í Laayoune og ein Namibíukona, einn rússi og tveir heimamenn. Flott veisla ađ mér fannst, viđ Eiríkur elduđum međ smá ađstođ frá nokkrum messaguttum sem lögđu okkur liđ viđ hin ýmsu verk. Matseđillinn var; Foi Gras (franskt), reyktur lax og grafinn lax (skoskt) og Laxahrognakaviar(skoskur) ţetta voru forréttirnir, ţeir svínvirkuđu. Í ađalrétt var svo úrbeinađar lambahryggjarsneiđar (íslenskar) međ "Steamuđu" grćnmeti, kartöflum, grćnum baunum , rauđkáli og sósu. Miđađ viđ eldađ magn og afganga ţá líkađi maturinn bara vel sýndist mér.. Í góđum veislum skiptir reyndar meira máli ađ gestirnir séu góđir, en minna máli skiptir ađ maturinn sé framúrskarandi, hann verđur alltaf góđur í minningunni ef ţađ var skemmtilegt í veislunni. Hér er samankominn ótrúlega skemmtilegur og samhentur hópur sem nćr frábćrlega vel saman og ég er viss um ađ viđ eigum eftir ađ halda margar skemmtilegar veislur á komandi árum. Ég vil nú eiginlega bara nota ţennan vettvang til a ţakka öllum sem voru í veislunni fyrir ađ vera ţar og gera hana svona skemmtilega. Hér í Marokko er annars búiđ ađ vera hálfkalt síđan ég kom, ţađ voru bara 14 - 15 gráđur í Casa og svo hér fer hitinn í rétt rúmar 20 gráđur yfir hádaginn og mađur er eiginlega bara í yfirhöfn ţessa dagana.. Svo er búiđ ađ rigna svolítiđ sem er frábćrt á ţessum slóđum og rigningin hér er mjög velkomin... Nokkrir stífir dagar framundan í fundarhöldum og ferđalögum, ţannig ađ ekki reikna međ bloggi fyrr en um helgi..
Set inn eina svarthvíta mynd úr veislunni.
Hafiđ ţađ eins og ţiđ viljiđ
Magnús G.
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.