Sól Sól Sól og aftur sól..
6.6.2007 | 11:08
Ég hef heyrt í nokkrum á Íslandi undanfarna daga og allir hafa verið að tala um veðrið og hversu fádæma leiðinlegt það hefur verið, rígning alla daga og rok með suma dagana.. Ég heyrði líka í einni vinkonu minni um daginn á MSN og hún spurði hvort maður fengi ekki leið allri þessari sól, dag eftir dag.. hvort að íslenska veðrið væri ekki bara betra, allavega fjölbreyttara..
Það er fjölbreyttara, því að flesta daga er veðrið hér nánast eins Sól, Sól, Sól og aftur sól og ca. 27 gráður á celsíus og kólnar lítiillega á kvöldin. Ég hef áður búið við svipaðar veðuraðstæður og ég skal segja ykkur að það er ekki hægt að fá leið að góðu veðri. Ég vona svo að það fari að stytta upp hjá ykkur þarna fyrir norðan því ég er koma heim í næstu viku og mig langar ekkert sérstaklega í rigninu, ef mig langar í rigningu þá fer ég bara í sturtu..
Athugasemdir
Sæll Maggi. Ég verð að segja að 27 gráður yfir daginn og lítið eitt lægra á kvöldin, hljómar vel í mín eyru. Það væri allt í lagi að geta farið, þó ekki væri nema einhvern milliveg, í þessari veðráttu hér á klakanum.
Maríus S. (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 16:28
ég er svo sammála, það er ekkert varið í fjölbreytt veður.
Sigrún Ásta (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 10:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.