Þú ert
8.4.2008 | 00:01
það sem þú gerir, ekki það sem þú segir. Ég var einhvern veginn harkalega minntur á þessa speki þegar ég sá kastljósið í kvöld, þar sem samfylkingarmaður úr samtökunum Fagra Ísland var að svara fyrir stefnu SF í umhverfismálum, fyrir kosningar og eftir kosningar og þáttöku í ríkisstjórn.
Annars er alltaf gott að hafa þetta á hreinu í hverju sem menn eru að gera, hver og einn er fyrirmynd fyrir einhvern og það er ekki trúverðugt að segja t.d. börnunum sínum að það sé hættulegt að reykja og að þau skuli alls ekki gera það, en reykja sjálfur. Þeir sem tala alltaf um að gera hlutina verða aldrei neitt annað en einhverjir gúmmítöffarar, hinir sem gera eru alvöru..
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)