Glæsilegur
10.7.2009 | 15:48
árangur hjá Gunnlaugi að hlaupa þessa vegalengd á fimm til sex dögum, þetta hlýtur að vera um eitt og hálft marþon á hverjum degi og það ekki á jafnsléttu. Gunnlaugur er gott vitni um hvað hægt er að gera með góðum fókus og miklum aga í æfingum og mataræði. Málefnið sem hann styrkir er líka frábært þ.e.a.s. Grensásdeildin sem er að vinna frábært starf í endurhæfinu á þeim sem veikjast eða slasast og hafa skerta getu í framhaldi af því.
Eftirtektarvert framtak og hetjudáð sem ég dáist af.
Góða helgi og hafið það eins og þið viljið.
Magnús G.
Gunnlaugur hleypur síðasta áfangann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Margt ágætt
17.6.2009 | 12:07
er eftir Forsætisráðherranum haft í þessari frétt og ekkert skrítið að hún tali fallega á 17. júní. Jóhanna bendir á margar hættur sem framundan eru og þær stærstu að mínu mati eru hættan á "landflótta" að það verði "brain drain" og margt af okkar best menntaða og kjarkmesta fólki fari úr landi vegna þess að það hefur enga VON. Að fólkið sem er að missa allar eigur sínar og stendur til boða að borga niður glæpsamlegt gáleysi "gömlu bankanna" og sér ekki fram úr því, til lengri tíma held ég að þetta sé þjóðinni hættulegast og geti orðið til þess að við náum okkur miklu síðar á strik aftur. Því miður þá gefur Forsætisráðherrann okkur ekki mikla VON, enda var kannski aldrei við því að búast.. Reyndar hef ég eftir því sem ég eldist og þroskast farið að fylgjast meira með því sem fólk gerir og hlusta minna á það sem það segir og því miður kemur núverandi ríkisstjórn ekki vel útúr því.
Gleðilega hátíð.
Heyjum á ný sjálfstæðisbaráttu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hefur Franek mikla reynslu af
16.6.2009 | 17:31
Stýra þarf skipinu af varfærni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Er lýðræðið í hættu
16.6.2009 | 16:38
á Íslandi undir stjórn þessara svokölluðu jafnaðarmanna og velferðarflokka. Er það nýja stefnan að hleypa ekki að óþægilegum upplýsingum sem sem geta hugsanlega gefið fólki raunsanna mynd af stöðunni en ekki þá mynd sem forsjárhyggjufólkið Jóhanna og Steingrímur halda að sé eða vona að sé eða vilja að sé. Að beita tólistarhæfileikum sínum með þeim hætti sem Forseti Alþingis gerði í dag er misheppnuð leið til að drepa niður lýðræðið, þangað til allavega, verður lokað fyrir þá möguleika sem við höfum enn til að koma skoðunum okkar á framfæri.. Ég hvet Sigmund Davíð, Tryggva Herbertsson og fleiri raunsæja menn til áframhaldandi dáða í að opna augu fólks fyrir staðreyndum.
Einleikur forseta á bjöllu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Það er erfitt að átta sig á
7.6.2009 | 15:31
staðreyndum þessa máls en ég óttast að Eiríkur Bergmann hafi rétt fyrir sér í þessu máli. Það sem veldur mér síauknum vonbrigðum hjá ríkisstjórninni sem ætlaði að vera "gagnsæ jafnaðarmannstjórn" er að breytast í einhverja hálfgerða "mafíu" þar sem ekkert fréttist fyrr en gjört er eins og þessir samningar við Breta og Hollendinga. Jafnaðarmennskan felst í því að keyra almenning svo neðarlega í skítinn með aðgerðarleysi gagnvart vanda heimilanna að það á sér engin fordæmi. Þessi ríkisstjórn verður að fara að koma með einhverjar aðgerðir sem færa fólkinu í landinu VON um bjartari framtíð ef hún á verða á vetur setjandi.
Óskiljanleg ákvörðun stjórnvalda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sjómannadagurinn
7.6.2009 | 15:17
er mér alltaf hugleikinn og dregur fram minningar um það þegar ég var á sjó sjálfur og ekki síst um alla þá sem hafa sótt sjó við Íslandsstrendur um aldir og þannig gert þessa þjóð að því sem hún er. Íslenskir sjómenn eru og hafa alltaf verið til fyrirmyndar og þeir eru afkastameiri en aðrir sjómenn þegar kemur að vinnu. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi alla ævi að tengjast sjónum og sjómönnum með beinum eða óbeinum hætti í uppvexti mínum og við þau störf sem ég hef valið mér að sinna.
Ég óska öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn.
Í vikunni fór ég með góðvini mínum og sjómanninum Magnúsi Þórarinssyni og Steinari syni hans uppá Arnarvatnsheiði til veiða og útiveru. Við áttum stórkostlegan tíma á heiðinni í frábæru veðri og aðstæðum til veiða og útiveru. Oft höfum við fengið fleiri fiska en nú en samt var aflinn ágætur, 9 fiskar í allt og af þeim fékk ég fjóra á nýju flugustöngina mína Sage Fli nr. 4 sem er gríðarlega skemmtileg stöng í silungsveiði. Það besta við svona ferðir í ósnortinni náttúrunni er að maður hreinsar hugann og tekur á því líkamlega og endurnærist einhvernveginn andlega. Á Arnarvatnsheiðinni hugasar maður ekki um útrásarvíkinga, stýrivexti, eignaupptöku eða annað sem tengist "kreppunni" maður nýtur þess bara að vera til.
Set inn tvær myndir; önnur af Magnúsi Þórarinssyni að landa 3 punda urriða og hina af ca. 3 punda bleikju sem ég fékk á bleikan nobbler, báðir fiskarnir veiddir ofarlega í Austurá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Reyndur og farsæll
2.6.2009 | 20:01
maður Angantýr Valur. Ég er sannfærður um að SPKEF mun verða í góðum höndum Anagantýs. Ég vona bara að þessi blessaða ríkisstjórn fari að koma fótunum undir bankakerfi landsins sem er allt meira og minna óstarfhæft og getur illa eða ekki veitt fyrirtækjum og fólki nauðsynlega þjónustu.
Sparisjóðsstjóraskipti í Keflavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Endurnýjun
29.5.2009 | 17:08
Í vetur sem leið nýtt ég tímann nokk vel og tók mig til og sótti ein 7 námskeið á vegum Slysavarnaskóla sjómanna og Tækniskólans (Skipstjórnarskólans) í þeim tilgangi að endurnýja skipstjórnarréttindin mín sem ég aflaði mér fyrir næstum 30 árum síðan, ótrúlegt en satt. Þessi námskeið voru öll fræðandi og flest skemmtileg og kom mér á óvart hvað mikið sat eftir frá sjómannsárunum sem í raun lauk 1984 en það var í síðasta sinn sem ég var skráður á skip sem stýrimaður, 25 ár eða hálf ævin. Námskeiðin sem ég sótti voru; Grunnnámskeið í slysavarnaskólanum, líf og léttbátar, lyfjakistu og framhaldseldvarnir, allt fræðandi og skemmtileg námskeið sem búa mann undir erfiðar aðstæður ef þær koma upp. Námskeið sem þessi þekktust ekki þegar ég var á sjó, að undaskildum, skyndhjálparnámskeiðum, veru á slysadeildinni og eldvarnarnámskeiði sem var hluti af stýrimannsnáminu á sínum tíma. Þessi námskeið tóku 13 virka daga með hléum, hvert námskeið frá 2 - 4 daga. Námskeiðin í Tækniskólanum voru 3, GMDSS sem er fjarskiptanámskeið sem tók 8 virka daga eða 2 vikur og kemur í staðinn fyrir að hafa Lofskeytamann um borð í skipunum, ARPA samlíkir og Ratsjárnámskeið og að lokum Endurnýjun skipstjórnarréttinda. Þessi námskeið hvort um sig tóku 3 daga og voru bráðskemmtileg og munu örugglega nýtast mér vel.
Það er í raun ótrúlegt að hugsa til þess að maður þurfi að eyða næstum einum og hálfum mánuði í vinnu og greiða rúmlega 500.000,00 kr. til að endurnýja atvinnuréttindi sem tók um 6 ár að afla sér hér áður fyrr. Reikna má með heildarkostnaður einstaklings við svona endurnýjum með vinnutapi sé ekki langt frá 1.500.000,00 kr
Ég hinsvegar sé ekki eftir hvorki tímanum né peningunum í þessa endurnýjun og í sannleika sagt þá leið mér ótrúlega vel að fá loksins skírteinið mitt í hendurnar í vikunni. Þessi atvinnuréttindi veita mér enn meira frelsi en ég hafði áður og það finnst mér gott..
Nú er bara að sjá hvort einhver treystir manni fyrir skipi og áhöfn - það kemur í ljós.
Ég get í það minnsta titlað mig sem Skipstjóra og eða Capt. Guðjónsson hvort sem er hér eða á erlendri grundu því réttindin eru alþjóðleg.
Þetta er bara skemmtilegt og ég er pínulítið montinn yfir þessu.
Hafið það eins og þið viljið og njótið helgarinnar.
Capt. Gudjonsson
Hér er sönnunin, skírteinið sjálft..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Kemur varla á óvart
25.5.2009 | 10:08
að Josefsson vilji ekki bendla nafn sitt við þessa verklausu ríkisstjórn öllu lengur. Maður er löngu hættur að vera hissa á þessu verkleysi, úrræðaleysi og kjarkleysi ríkisstjórnarinnar og orðinn sorgmæddur yfir því að þjóðin skuli hafa kosið yfir sig þennan þingmeirihluta. En þjóðin fær víst ekki betri ríkisstjórn en hún á skilið og þetta er það sem kom uppúr kössunum þ. 25. apríl s.l. Ég hef á tilfinningunni að Ísland sé að breytast í Kúbu norðursins, hvert fyrirtækið á fætur öðru endar í ríkisseigu og þarfir þegnanna eru hundsaðar. Á dauða mínum átti ég von en ekki því að þurfa að lifa svona tíma í þessu fallega landi.
Josefsson hótaði að hætta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við fyrsta lestur snöggreiddist ég
14.5.2009 | 13:56
Seðlabankinn í klemmu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)