Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
Kominn heim í Kópavog..
30.6.2008 | 15:58
Shellmótið að baki, okkar menn þ.e.a.s. Breiðablik 1 lenti í 4 sæti mótsins og þeir töpuðu bara einum leik af 10 sem þeir spiluðu, gerðu 3 jafntefli og unnu 6 leiki. Frábær árangur. Þessir dagar í Vestmannaeyjum voru ákaflega gefandi og skemmtilegir. Nú tekur við nýtt tímabil hjá mér frá og með morgundeginum.. Fríið sem ég ætlaði mér alltaf að vera í í einn mánuð er nú á enda og alvara lífsins tekur við. Ég er enn að vandræðast með doða í vinstri hendinni sem háir mér töluvert sérstaklega á lyklaborðinu á tölvunni og við allar fínhreyfingar.
Það eru tvö gullkorn sem eru mér ofarlega í huga þessa dagana og þau eru;
"Þú verður að læra þá erfiðu lexíu lífsins, að ekki munu allir óska þér góðs (Dan Rather) og svo;
"Okkar stærsta stund er ekki að tapa aldrei, heldur að rísa upp eftir hvern ósigur. (Confusius)
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G.
Hvað gerir maður ekki fyrir knattspyrnumenn ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Góður gangur í Vestmannaeyjum í dag..
27.6.2008 | 00:07
hjá Hákoni og félögum í A liði Breiðabliks. Þeir unnu alla leikina í dag nokkuð sannfærandi þó þeir hafi verið miserfiðir. Keflavík unnu þeir 6 - 0, Skagann 7 -1 og Þór 4 - 0. Vænta má erfiðari mótherja á morgun og að leikirnir verði jafnari. Hákon hefur átt fína leiki í nýrri stöðu á vellinum, annarsvegar í markinu í 2 leiki og einn leik sem aftasti maður í vörn, venjulega hefur hann spilað sem fremsti maður í sókn. Veðrið hefur verið indælt, nokkrir skúrir hafa fallið á okkur í dag en milt og hægt veður annars og engum til ama.. Þetta mót er frábærlega skipulagt af IBV og ekki síður af fararstjórunum okkar hér í Breiðabliki þeim Ingu Gísla og Möggu Skúla.
Ég hlakka til morgundagsins og fá að stússast í kringum strákana og taka myndir af leikjunum, myndirnar getið þið séð inná www.shellmot.is og svo rekið þið ykkur áfram inní Breiðablik.
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G
Mynd tekin af strákunum fyrir fyrsta leik í morgun..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Barcelona - Vestmannaeyjar
25.6.2008 | 01:05
Kominn heim frá Barcelona eftir frábæra ferð og frábæra ráðstefnu í Saint Jordi Höllinni með 17.000 dreifingaraðilum frá Evrópu. Svo er Barcelona alltaf jafn skemmtileg að koma til og ég er að byrja að þekkja borgina aðeins betur enda búinn að koma þangað 4 sinnum á 4 árum. Nú er stefnan tekin á Shellmót í Vestmannaeyjum með Hákoni og hans félögum í Breiðabliki. Veðurspáin er frábær og vonandi rætist hún, svo mótið og veran í Eyjum verði skemmtilegri. Því miður er höndin min ekki orðin nógu góð síðan um daginn og ennþá er ég dofinn í hálfri hendinni og það veldur mér orðið nokkru hugarangri og stefni ég á að hitta sérfræðing á næstu dögum vegna þessa..
Næstu dagar munum snúast um fótbolta og fótbolta, bara gaman
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G.
Ein mynd frá Barcelona til gamans...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ísbirnan dáin og
19.6.2008 | 15:50
ég að ná mér í hendinni, allur að koma til, bólgan að hverfa og tilfinningin að koma til baka. Annars var þetta góð áminning um hvers virði heilsan er og að hafa alla útlimi fúnkerandi rétt og góðu standi. Annars af Ísbjarnarmálinu á Skaga og öllu ruglinu í Umhverfisráðuneytinu og ráðherranum varðandi þetta mál. Skilur ekki konan að flækingsísbirnir sem koma hingað eiga ekki marga valkosti og við landsmenn eigum það ekki heldur. Það á að vera aðgerðaráætlun í gangi þegar blessaðir birnirnir ganga á land hér, þreyttir og sársvangir og að niðurlotum komnir, það á að lina þjáningar þeirra strax og koma í veg fyrir að alvarleg slys verði á búfénaði og fólki sem á vegi þeirra hugsanlega verða. Ég er ekki á móti náttúruvernd en við verðum að gæta skynsemi í því sem við gerum og það fer ekki vel að reyna að draga ísbirni inní pólitískan fíflaskap, eins og gert hefur verið.
Nú er ég á leiðinni til Barcelona í nokkra daga og svo beint í framhaldinu til Vestmannaeyja á Shellmót í fótbolta.
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kominn í Kópavog
17.6.2008 | 12:41
eftir að hafa fokið vestur á Klaustur í gær, þ.e.a.s. þegar það var lens en á milli fauk ég útaf veginum en slapp óskaddaður til Kalla á Icelandair Hotel á Klaustri, sem aumkaði sig yfir mig og lánaði mér herbergi til þvotta og hvíldar í 3 tíma. Frábært að eiga fólk eins og Kalla og Svönu að þegar maður þarf á því að halda. Frábært fólk sem rekur glæsilegt Hótel á Klaustri sem ég hvet alla til að nýta sér á ferðum sínum. Ég tók ákvörðun um það í gær að segja stopp vegna þessa doða sem er í vinstri hendinni og hefur heldur ágerst og ég var farinn að hafa minni stjórn á hreyfingum en áður, þannig að þetta var bara að verða hættulegt. Það er talið að ég sé bólginn rétt neðan við úlnliðinn og bólgan þrýsti á taugarnar sem orsaki þetta. Þetta á að jafna sig á nokkrum dögum.. Ég er samt ánægður með túrinn rúmir 400 km á 4 dögum og langtimum í mótvindi.. Ég klára bara hringinn þegar Ísbjörninn er kominn í búr og höndin í lag.
Set inn tvær myndir úr ferðinni þegar ég fór af stað
og svo eina af búnaðinum, tjaldinu, fararskjótanum og kerrunni.
Hafið það eins og þið viljið á Þjóðhátíðardaginn og passið ykkur á Ísbjörnunum, þeir eru hættulegir.
Magnús G
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hjólað heim.....
16.6.2008 | 10:03
Dagur 1.
Kominn á Djúpavog eftir fyrsta legg á leiðinni heim. Það gekk ljómandi vel í dag, lagði í hann kl. 1150 frá Búðum í Fáskrúðsfirði og fór á Stöðvarfjörð í einni lotu. Hvíldi í korter og hélt svo áfram sem leið lá um Breiðdalinn og suður í Berufjörð.. 100 km lágu í dag og engin óhöpp eða óvæntar uppákomur á leiðinni.. Náttúran skartar sínu fegursta og maður sér náttúruna, gróðurinn, lækina, fossana, fuglana og fegurð og mikilleik fjallanna. Fínn dagur að kveldi kominn og ég fer að leggjast til hvílu í litla Gula tjaldinu mínu sem rúmar mig og mig ..
Dagur 2.
Fór af stað um 10 leytið og hjólaði sem leið lá yfir á Höfn og kom þangað um 2130 107 km á mæli, veður gott en smá vindur á köflum sem tafði mig um eina 2 tíma. Gist á tjaldsvæðinu á Höfn í flottu veðri.. Enn í nokkuð góðu formi en smá doði í vinstri hendinni eftir daginn..
Dagur 3.
Fór frá Höfn um 11 leytið og hjólaði í vesturátt án þess að hafa ákveðinn næturstað í huga, endaði á Hótel Freysnesi um 0030 eftir 135 km vegalengd og helvíti var gott að taka bara herbergi í nótt enda rigning þegar ég kom þangað og ég hefði örugglega ekki getað tjaldað vegna doða í vinstri hendinni sem hefur aukist nokkuð mikið.. Ég var heppinn í gær að að vera hreinlega ekki drepinn, fékk bíl á móti mér rétt vestan við Smyrlabjörg og hann stefndi bara beint á mig og ég alveg úti í kanti mín megin. Ég held að bílsstjórinn hljóti að hafa sofnað eða verið í annarlegu ástandi, þetta er það svartasta sem ég hef séð á öllum þessu hjólaferðum mínum og ég var ansi lengi að jafna mig á þessari uppákomu. Annars hef ég það fínt að öðru leyti en höndin ergir mig mikið, á mjög erfitt með að t.d. skrifa vegna doða í 2 fingrum og smá stjórnleysi á höndinni, sennilega klemmt taug, sem jafnar sig aftur .
Fróður maður sagði mér að ég væri hálfnaður til Reykjavíkur frá Fáskrúðsfirði hér í Freysnesi
Ég ætla að leggja í hann um 12 leytið og fara vonandi á Klaustur í næsta legg.
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G í Freysnesi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Kominn í fjörðinn fagra, Fáskrúðsfjörð..
13.6.2008 | 00:53
Kom hingað í kvöld, allt klárt til brottfarar, vagninn kominn aftaní hjólið og veðurspáin eins góð og hugsast getur og ég klár í málið. Það verður mér sérstakalega ljúft að fara fyrsta spölinn yfir á Stöðvarfjörð og koma þangað á afmælisdegi föður míns heitins sem er í dag, þ. 13. júní og hefði hann orðið 79 ára gamall ef hann hefði lifað til dagsins í dag. Ég fékk þennan fína rúnt í kvöld með mági mínum honum Jóa Veigu og ryfjuðum við upp hver bjó í hvaða húsi hér áður fyrr og hver býr þar nú.. Alltaf jafngaman að sjá hvað umgengnin er góð í kringum starfsstöðvar Kaupfélagsins hér á staðnum. Vonandi halda Fáskrúðsfirðingar sem allra lengst í Kaupfélagið sitt sem er búin að vera undirstaða þessa byggðarlags í 75 ár nú í ágúst n.k. til hamingju með það.
Hlakka til að leggja í ann og stefni á Djúpavog í það minnsta á fyrsta legg, vonandi aðeins lengra..
Hafið það eins og þið viljið um helgina
Magnús á Strönd
Þessi var tekin í fyrra með Árbæ, æskuheimili föður míns í bakgrunni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Er að leggja í ann...
12.6.2008 | 13:39
austur á Fáskrúðsfjörð í dag. Ég ætla að heimsækja æskustöðvarnar enn einu sinni og í þetta sinn ætla ég að hjóla heim. Ég fer með Flugi austur í kvöld og farangurinn er hjólið mitt góða, aftanívagninn og allt sem ég þarf til næstu 5-6 daga svo sem tjald, svefnpoka næringu ofl. Veðurspáin er flott, hægviðri og þurrt og ef hún rætist þá verður það yndælt.
Hafið það eins og þið viljið í góða veðrinu..
Magnús G.
Skelli inn mynd úr fyrri hjóaferðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hjólað í blíðunni, Hellisheiðarvirkjun og fl.......
11.6.2008 | 12:01
Ég hef aðeins verið að testa hjólið mitt undanfarna daga og fór eina þokkalega ferð í gær. Hjólaði uppí Hellisheiðarvirkjun og fékk svona glimrandi veður á leiðinni og lenti ekki í neinum alvarlegum aðstæðum á þessari fjölförnu leið. Bílsstjórar stóru trukkanna mega þó alveg láta flauturnar vera þegar þeir nálgast hjólafólk, svona flaut getur sett fólk alveg úr jafnvægi og orsakað alvarleg slys. Ég fékk þessar líka fínu móttökur hjá OR í Hellisheiðarvirkjun, var boðið súkkulaði, kaffi, vatn og hvað eina, frábærar móttökur. Ég fékk líka smá leiðsögn um þetta glæsilega hús og hvað háhitaorkuver í rauninni er. Ég verð nú að segja að áhugi minn á þessari grein er miklu meiri eftir en áður, þeir meira að segja skila vatninu sem þeir nota ekki aftur niður í jörðina og það nýtist svo aftur og aftur, þvílík verðmæti.
Ég vil nú þakka sérstaklega Guðmundi Atla og Gulaugu Þórs fyrir frábæra fræðslu og móttökur og þarna fer ég aftur og fæ meiri fræðslu. Kíkið á tengilinn hér fyrir neðan.
http://www.or.is/UmOR/Veiturogveitusvaedi/Virkjanir/Hellisheidarvirkjun/
Um síðustu helgi var ég á ættarmóti á Hörgslandi á Síðu, ættarmóti sem litaðist af mikilli bleytu enda rigndi og rigndi hrikalega sem setti auðvitað strik í reikninginn og skemmdi svolítið stemmninguna, en alltaf gaman að hitta ættingjana og það verður bara betra veður næst.
Ætla að skutla mér út í góða veðrið, hafið það eins og þið viljið..
Magnús G.
Fjallganga á ættarmóti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vinir eða viðhlæjendur.....
6.6.2008 | 11:39
Það eru ýmsir mannkostir sem mér eru hugleiknir þessa dagana eins og heiðarleiki, áreiðanleiki og sannsögli. Mér hafa verið gefnar ærnar ástæður til að velta þessum hlutum fyrir mér undanfarna daga og vikur.
Einnig hef ég velt fyrir mér viðbrögðum fólks við sannleikanum og raunveruleikanum og af þessu tilefni langar mig að skeyta eftirfarandi tilvitnum sem ég rakst á nýlega og vekur vonandi einhverja til umhugsunar um raunverulega vini og svo viðhlæjendur..
segir í Um vináttuna eftir Marcus Tullius Cicero.
"Það er fáránlegt að mönnum gremjist ekki það sem þeim ætti að gremjast en reiðist aftur á móti að ástæðulausu. Umvöndunin er það sem vekur reiði þeirra en ekki yfirsjónin. Þeir ættu þvert á móti að vera leiðir yfir mistökum sínum og gleðjast yfir að vera sagt til syndanna."
"Það er því við hæfi að vanda um við vini sína og það ber að gera af einurð en án harðneskju. Sá sem vandað er um við verður að taka því með þolinmæði og án þess að reiðast. Aftur á móti er ekkert eins skaðlegt vináttu og skjall, mjúkmælgi og fagurgali. Það má nefna það hvaða nafni sem er, það á ekki annað skilið en vera stimplað sem löstur og einkennir helst hverflynda svikahrappa sem ávallt tala eins og hver vill heyra, hver svo sem sannleikurinn er. Hræsni er ekki aðeins fyrirlitleg í hvívetna af því að hún afbakar sannleikann og hindrar menn í að greina rétt frá röngu heldur er hún vináttunni sérlega skaðleg því að hún eyðir einlægni og án hennar er vinátta einskis virði."Cicero sem fæddist 106 f. Kr.
Þessi orð Cicero eru í fullu gildi ennþann dag í dag eftir 2114 ár.
Nú stefni ég á ættarmót austur á Síðu næstu 2 dagana, það verður gaman að hitta ættingja sem maður hefur suma ekki séð í áraraðir, hlakka til þessa ættarmóts..
Hafið það eins og þið viljið um helgina
Magnús G.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)