Ömurlegur vitnisburður ef sannur reynist
24.2.2009 | 10:19
um skólayfirvöld á Selfossi. Því miður þekki ég einelti frá nokkrum hliðum og þetta er eitthvert versta ofbeldi sem í gangi er og getur skaðað þolendur þess varanlega. Bara það að rætt skuli um eineltismál í heilu bæjarfélagi með þessum hætti skaðar ímynd þess svo mikið að bæjaryfirvöld verða að taka á málinu og sýna hvort þau er þess verð að stjórna bænum. Það er hægt að taka á eineltismálum af fagmennsku, ég hef upplifað það, en það verður oft óbætanlegur skaði fyrir þann sem verður fyrir eineltinu. Takið á þessu, verjið þolendurna og upplýsið gerendurna og losið ykkur við þessa óværu úr skólunum.
Einelti látið viðgangast á Selfossi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.