Aðdáunarvert hjá

þeim sem fóru og vörðu Lögreglumennina í nótt fyrir fámennum hópi "mótmælenda" sem sýndu af sér hrottaskap gagnvart fólki sem er að vinna sína vinnu.   Lögreglumenn þessa lands eru borgarar eins og við og okkur öllum ber að sýna þeim tillhlýðilega virðingu.  Ég tel að lögreglan hafi staðið sig með miklum sóma í þessu ófremdar ástandi og sinnt sínum skyldum vel.   Auðvitað munu koma upp tilvik sem ágreiningur er um og verður um hvort einstakir lögreglumenn hafi stigið feilspor en þau eru örugglega færri en feilspor sumra mótmælenda,  að horfa á "mótmælendur" hrækja á Lögregluna við stör er ósæmandi.   Ef ég væri lögreglumaður og einhver hræki á mig, fengi hann einn á lúðurinn jafnvel tvo.  Sýnum lögreglumönnunum virðingu og gefum þeim frið til að vinna sína vinnu og þá fáum við örugglega að vera í friði fyrir piparúða og táragasi. 

Enn og aftur, ég tek ofan fyrir fólkinu sem tók af skarið í nótt og gekk fram fyrir skjöldu og varði allt of fáa lögreglumenn. 

 


mbl.is Munu hafa uppi á ofbeldismönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Algjörlega sammála þér. Mótmælendur sem koma í friðsamlegum tilgangi á Austurvöll (og víðar) láta ekki ofbeldi gegn lögreglunni líðast. Ofbeldismennirnir mega vita það og sleppa því að mæta.

rin@visir.is (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 20:44

2 Smámynd: Alma Jónsdóttir

alveg sammála, tek ofan hattinn fyrir þessu fólki sem stóð vörð um lögreglumennina.
það eru bara alltaf einhverjir sauðir á ferð sama hvar er.

Alma Jónsdóttir, 22.1.2009 kl. 20:48

3 Smámynd: Páll Jónsson

Ég tek undir með þér Magnús. Ég er að velta fyrir mér að fara á mótmælafundinn gegn ofbeldi á sunnudaginn en fyrst svona sómafólk er meðal mótmælenda í dag þá er ég strax bjartsýnari. 

Páll Jónsson, 23.1.2009 kl. 00:40

4 Smámynd: Páll Jónsson

bjartsýnni jafnvel

Páll Jónsson, 23.1.2009 kl. 04:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband