Skrapp út að hjóla sem ..
5.8.2008 | 15:56
er nú varla í frásögur færandi á þessum bæ. Ég nýtti mér góða veðrið í dag of renndi mér í Hafnarfjörð og kíkti á höfnina og ætlaði í raun að taka mynd af bát sem ég sá þar um daginn. Bátuirinn heitir því fallega nafni Sigrún Ásta alveg eins og dóttir mín og það vill svo til að að ég myndir af Guðjóni VE, Hákoni ÞH (þessum gamla) og Helgu RE og hélt að ekki væri til neinn bátur sem héti Sigrún hvað þá Sigrún Ásta.. Sigrúnu Ástu fann ég ekki, hún var sennilega á sjó, en ég fann þennan í staðinn, sjá mynd..
Hafið það eins og þið viljið
Maggi Guðjóns
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.