Kominn í fjörðinn fagra, Fáskrúðsfjörð..
13.6.2008 | 00:53
Kom hingað í kvöld, allt klárt til brottfarar, vagninn kominn aftaní hjólið og veðurspáin eins góð og hugsast getur og ég klár í málið. Það verður mér sérstakalega ljúft að fara fyrsta spölinn yfir á Stöðvarfjörð og koma þangað á afmælisdegi föður míns heitins sem er í dag, þ. 13. júní og hefði hann orðið 79 ára gamall ef hann hefði lifað til dagsins í dag. Ég fékk þennan fína rúnt í kvöld með mági mínum honum Jóa Veigu og ryfjuðum við upp hver bjó í hvaða húsi hér áður fyrr og hver býr þar nú.. Alltaf jafngaman að sjá hvað umgengnin er góð í kringum starfsstöðvar Kaupfélagsins hér á staðnum. Vonandi halda Fáskrúðsfirðingar sem allra lengst í Kaupfélagið sitt sem er búin að vera undirstaða þessa byggðarlags í 75 ár nú í ágúst n.k. til hamingju með það.
Hlakka til að leggja í ann og stefni á Djúpavog í það minnsta á fyrsta legg, vonandi aðeins lengra..
Hafið það eins og þið viljið um helgina
Magnús á Strönd
Þessi var tekin í fyrra með Árbæ, æskuheimili föður míns í bakgrunni.
Athugasemdir
Gangi þér vel pabbi minn, vonandi færðu gott veður
Sigrún Ásta (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 08:19
Gangi þér vel á þínum fyrsta legg í hjólaferðinni, hlakka til að fylgjast með þér strákur Þú hefur allan þann efnivið sem til þarf til að verkefnið þitt heppnist, svo segir spáin þín.
Til hamingju með afmælisdag föður þíns.
Vala (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 08:25
Gangi þér sem best, hjólaðu samt varlega og passaðu þig á bílunum.
Sjáumst í Barcelona.
Halldóra Ósk (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 11:43
"Tutu" eins og við segjum í sveitinni.
Þetta er bara frábært hjá þér og njóttu vel !
Þin vinkona Svana
Svana (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 12:08
takk fyrir góðar óskir, ég er kominn á Höfn og allt gengið ljómandi vel rúmir 200 km á tveimur dögum og kallinn í fínu formi...
Hafið það eins og þið viljið
MG.
Magnús Guðjónsson, 14.6.2008 kl. 23:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.