Þá er bara að byrja
26.1.2009 | 13:16
,að byrja á endurreisninni. Þetta er fullkomlega eðlilegt framhald af atburðum síðustu vikna. Nú getur þjóðin tekið höndum saman og byrjað að byggja upp á nýjan leik.
Nú er ríkisstjórnin frá og nú reynir á okkur, þjóðina og þá miklu samvinnu sem verður að vera á næstu vikum, mánuðum og árum til að við getum haldið reisn okkar sem þjóð.
Stöndum saman og vinnum saman að endurreisninni.
Nú eigum við leik.
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G.
![]() |
Stjórnarsamstarfi lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Utanþingsstjórn strax
26.1.2009 | 11:40
Afhverju í ósköpunum reynir nú ekki ríkisstjórnin og ríkisstjórnarflokkarnir að sýna okkur smá virðingu, fólkinu í landinu. Að standa hér í einhverjum hrossakaupum um hver eigi að vera hvað og hver eigi að víkja fyrir hverjum er hreinn dónaskapur við þjóðina. Ljóst er að leiðtogar ríkisstjórnarinnar eru báðir veikir, ekki veit ég hversu mikið, en ég óttast að það sé alvarlegra en látið er í ljósi. Því miður treysti ég því ekki að verið sé að segja mér satt um raunveruleg veikindi þessa ágæta fólks. Það er svo margt sem sagt hefur verið af stjórnvöldum undanfarnar vikur, mánuði og ár sem er tóm vitleysa þegar á reynir.
Við lögðum til eftirfarandi utanþingsstjórn um daginn og gerum það aftur hér með.
Ólafur Jóhann Ólafsson framkvæmdastjóri, forsætisráðherra og upplýsingamálaráðherra (PR)
Jón Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra, seðlabankastjóri og Forstjóri NIB, utanríkis, dóms og kirkjumálaráðherra.
Jón Sigurðsson fyrrverandi, seðlabankastjóri, viðskiptaráðherrra og form. Framsóknarflokksins verði, fjármála og viðskiptaráðherra.
Vilhjálmur Egilssson framkvæmdastjóri SA verði Sjávarútvegs, landbúnaðar, iðnaðar og umhverfismálaráðherra.
Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi, verði heilbrigðis, félags og menntamálaráðherra.
Þessi stjórn á að sitja í umboði alþingis og stjórnmálaflokkarnir eiga að nota tímann til að "taka til heima hjá sér" og setja hagsmuni þjóðarinnar fram yfir flokkshagsmuni og hagsmuni einhverra einstaklinga. Ég verð eiginlega að segja að mér fannst það hálf ömurlegt að fylgjast með viðbrögðum fjölmiðlamanna við fréttum um veikindi Geirs og hvernig þeir gengu á erfaprinsa og prinsessur sjálfstæðisflokksins, nokkrum mínútum eftir þessi tíðindi.
Það skiptir sem betur fer miklu minna máli fyrir þessa þjóð hver er formaður sjálfstæðisflokksins í framtíðinni, heldur en verið hefur undanfarið.
Samfylkingin virðist nú bara hanga saman í kringum Ingibjörgu Sólrúnu og ekkert annað. Ég er löngu hættur að botna í þeim og hvaða hagsmuni þeir standa fyrir. Reyndar verð ég að segja að mér dauðbrá þegar ég sá ISG í sjónvarpinu á Laugardaginn, hún var ekki mjög frískleg og einhvern veginn fannst mér að hún ætti frekar að hvíla sig.
Hafið það eins og þið viljið
MG
![]() |
Vilja taka að sér verkstjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)