Ég fór á stefnumót
3.9.2008 | 00:01
fyrir 25 árum síðan við flotta stelpu sem var í Háskólanum og vann með skólanum sem þjónn á Torfunni. 2. september 1983 sá ég Breiðablik líka tapa fyrir Þrótti á Kópavogsvelli, sem voru auðvitað vonbrigði eins og í gær þegar Breiðablik tapaði fyrir KR. En þetta vonbrigðiskast stóð ekki lengi þarna um árið en svo var þessu stefnumóti fyrir að þakka, stefnumóti sem stóð í 23 ár. Að mæta á þessu stefnumóti var eitt mitt mesta gæfuspor í lífinu og allt sem fylgdi á eftir gerði mig að betri manni. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að deila súru og sætu þennan tíma og fyrir börnin okkar þrjú sem við eigum saman. Elsta barnið okkar á meira að segja afmæli í dag og auðvitað óska ég Guðjóni Má til hamingju með daginn sinn þann 22 í röðinni.
Vandið ykkur á stefnumótunum þau geta staðið ansi lengi.
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)