Lítil haustlægð....
29.8.2008 | 18:09
Ég er svo heppinn að barnsmóðir mín skráir hjá sér ýmis skemmtileg atvik sem verða í samskiptum við börnin okkar og eitt þeirra var í morgun, þegar fyrsta haustlægðin kom upp að landinu með tilheyrandi roki og rigningu. Eftirfarandi er lýsing á samskiptum milli þeirra mæðgina í morgun;
Hákon Örn 10 ára heyrði í veðrinu þegar hann vaknaði og sagði strax : Ég er EKKI að fara i skólann í þessu veðri !! og sneri sér þar með snarlega á hina hliðina. Svo náði ég honum nú framúr með herkjum og meðan hann sat og borðaði horfði hann út um gluggann og tautaði : Mamma það er ekki hægt að fara út í þessu veðri, sjáðu ljósastaurana, þeir sveiflast til þeir eru að brotna af og trén eru að leggjast á hliðina ! Hann var búinn að klæða sig í allt nema sokkana og þegar ég kom með sokka handa honum sagði hann : Viltu ná í aðra Háa sokka utanyfir þessa, svo mér verði ekki kalt á tánum hefurðu ekki séð veðrið ! Það á ekki að vera skóli í svona veðri !! Ég fer ekki í skólann ég fýk bara ef ég fer út ! Ég var alveg að missa þolinmæðina og tautaði eitthvað um aumingjaskap og væl og það að vera alinn upp á mölinni, Guðjón og Sigrún væru nú t.d. alinn upp í Norðanstormum og Stórhríð vestur á fjörðum og myndu nú í mesta lagi kalla þetta golu !! En þeim stutta var slétt sama um einhvern snjó vestur á fjörðum í gamla daga (1988 !) en lét sig samt hafa það og klæddi sig í síðerma bol og þykka hettupeysu, flíspeysu yfir - svo í regnstakk með hettu og sagði síðan : Viltu finna HÚFUR ég þarf allavega tvær og hetturnar yfir það !
Svo fórum við í skólann og hann tuðaði alla leiðina yfir þessum ósköpum .. og veinaði svo allt í einu þegar við vorum alveg að koma að skólanum og sáum unglingsstúlku í hnébuxum : Sérðu þetta KrakkaFífl hún fer með berar lappir í skólann í þessu veðri !!!!!!!!
Með góðfúslegu leyfi frá þeim mæðginum er þetta birt hér.
Hafið það eins og þið viljið um helgina.
Magnús G.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)