Hver stjórnar SÍ
29.1.2009 | 12:41
ég er nú farinn að halda, samkvæmt þessu að það skipti engu máli hver er Seðlabankastjóri ef IMF ræður öllu um peningmál á Íslandi. Það er rosalegt sjálfstæði að ráða ekki einu sinni hvaða stýrivextir eru í landinu. Við verðum að fara að fá fólk í SÍ sem getur talað máli þjóðarinnar við IMF af þekkingu og með rökum sem þeir skilja. Ég held að Vilhjálmur Egilsson væri góður kostur fyrir okkur sem Seðlabankastjóri, hann hefur þekkingu á þjóðlífinu, er hámenntaður hagfræðingur, hefur unnið hjá IMF ef ég man rétt, eða verið í stjórn IMF. En síðast en ekki síst þá treysti ég honum til að stýra SÍ af skynsemi.
Hafið það eins og þið viljið ..
Vilhjálmur: Óskiljanleg ákvörðun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég sem hélt að
28.1.2009 | 14:50
Ferðamannaiðnaðurinn væri ein að þessum stoðum sem gætu hjálpað okkur að skapa fleiri störf og afla þjóðinni aukins gjaldeyris. Er ekki einhver skammsýni í gangi hér. Kreppan fer ekki þó við gefumst upp fyrir henni, nýtum frekar allar okkar matarholur.
Skrifstofum Ferðamálastofu lokað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þá er bara að byrja
26.1.2009 | 13:16
,að byrja á endurreisninni. Þetta er fullkomlega eðlilegt framhald af atburðum síðustu vikna. Nú getur þjóðin tekið höndum saman og byrjað að byggja upp á nýjan leik.
Nú er ríkisstjórnin frá og nú reynir á okkur, þjóðina og þá miklu samvinnu sem verður að vera á næstu vikum, mánuðum og árum til að við getum haldið reisn okkar sem þjóð.
Stöndum saman og vinnum saman að endurreisninni.
Nú eigum við leik.
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G.
Stjórnarsamstarfi lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Utanþingsstjórn strax
26.1.2009 | 11:40
Afhverju í ósköpunum reynir nú ekki ríkisstjórnin og ríkisstjórnarflokkarnir að sýna okkur smá virðingu, fólkinu í landinu. Að standa hér í einhverjum hrossakaupum um hver eigi að vera hvað og hver eigi að víkja fyrir hverjum er hreinn dónaskapur við þjóðina. Ljóst er að leiðtogar ríkisstjórnarinnar eru báðir veikir, ekki veit ég hversu mikið, en ég óttast að það sé alvarlegra en látið er í ljósi. Því miður treysti ég því ekki að verið sé að segja mér satt um raunveruleg veikindi þessa ágæta fólks. Það er svo margt sem sagt hefur verið af stjórnvöldum undanfarnar vikur, mánuði og ár sem er tóm vitleysa þegar á reynir.
Við lögðum til eftirfarandi utanþingsstjórn um daginn og gerum það aftur hér með.
Ólafur Jóhann Ólafsson framkvæmdastjóri, forsætisráðherra og upplýsingamálaráðherra (PR)
Jón Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra, seðlabankastjóri og Forstjóri NIB, utanríkis, dóms og kirkjumálaráðherra.
Jón Sigurðsson fyrrverandi, seðlabankastjóri, viðskiptaráðherrra og form. Framsóknarflokksins verði, fjármála og viðskiptaráðherra.
Vilhjálmur Egilssson framkvæmdastjóri SA verði Sjávarútvegs, landbúnaðar, iðnaðar og umhverfismálaráðherra.
Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi, verði heilbrigðis, félags og menntamálaráðherra.
Þessi stjórn á að sitja í umboði alþingis og stjórnmálaflokkarnir eiga að nota tímann til að "taka til heima hjá sér" og setja hagsmuni þjóðarinnar fram yfir flokkshagsmuni og hagsmuni einhverra einstaklinga. Ég verð eiginlega að segja að mér fannst það hálf ömurlegt að fylgjast með viðbrögðum fjölmiðlamanna við fréttum um veikindi Geirs og hvernig þeir gengu á erfaprinsa og prinsessur sjálfstæðisflokksins, nokkrum mínútum eftir þessi tíðindi.
Það skiptir sem betur fer miklu minna máli fyrir þessa þjóð hver er formaður sjálfstæðisflokksins í framtíðinni, heldur en verið hefur undanfarið.
Samfylkingin virðist nú bara hanga saman í kringum Ingibjörgu Sólrúnu og ekkert annað. Ég er löngu hættur að botna í þeim og hvaða hagsmuni þeir standa fyrir. Reyndar verð ég að segja að mér dauðbrá þegar ég sá ISG í sjónvarpinu á Laugardaginn, hún var ekki mjög frískleg og einhvern veginn fannst mér að hún ætti frekar að hvíla sig.
Hafið það eins og þið viljið
MG
Vilja taka að sér verkstjórnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óska Geir alls hins besta
23.1.2009 | 13:29
í baráttu sinni við það mein sem greinst hefur í honum. Þetta eru auðvitað sorglegar fréttir fyrir okkur öll og sérstaklega Geir og hans fjölskyldu. Ég mun senda honum mínar bestu hugsanir og óskir á þessum erfiðu tímum..
Geir: Kosið í maí | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Glæsilegt
22.1.2009 | 23:48
Appelsínugul mótmæli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Frábært framtak
22.1.2009 | 20:33
11 milljóna styrkur til Fjölsmiðjunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aðdáunarvert hjá
22.1.2009 | 20:30
þeim sem fóru og vörðu Lögreglumennina í nótt fyrir fámennum hópi "mótmælenda" sem sýndu af sér hrottaskap gagnvart fólki sem er að vinna sína vinnu. Lögreglumenn þessa lands eru borgarar eins og við og okkur öllum ber að sýna þeim tillhlýðilega virðingu. Ég tel að lögreglan hafi staðið sig með miklum sóma í þessu ófremdar ástandi og sinnt sínum skyldum vel. Auðvitað munu koma upp tilvik sem ágreiningur er um og verður um hvort einstakir lögreglumenn hafi stigið feilspor en þau eru örugglega færri en feilspor sumra mótmælenda, að horfa á "mótmælendur" hrækja á Lögregluna við stör er ósæmandi. Ef ég væri lögreglumaður og einhver hræki á mig, fengi hann einn á lúðurinn jafnvel tvo. Sýnum lögreglumönnunum virðingu og gefum þeim frið til að vinna sína vinnu og þá fáum við örugglega að vera í friði fyrir piparúða og táragasi.
Enn og aftur, ég tek ofan fyrir fólkinu sem tók af skarið í nótt og gekk fram fyrir skjöldu og varði allt of fáa lögreglumenn.
Munu hafa uppi á ofbeldismönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tíminn er liðinn
22.1.2009 | 13:12
sem þessi ríkisstjórn hafði til umráða. Mótmæli sem verið hafa undanfarna sólarhringa eru sennilega í umboði þorra þjóðarinnar, þó það mæti ekki allir á Austurvöll. Ég held að við verðum að fá starfsstjórn sérfræðinga til að taka til hendinni næstu vikur og mánuði, fólk sem ekki hefur flokkspólitíska hagsmuni af störfum sínum. Fólk sem kann til verka og hefur meiri skilning á verkefnunum en þeir sem nú sitja. Það er sorglegt að horfa á og hlusta á suma ráðherra ríkisstjórnarinnar reyna að réttlæta störf stjórnarinnar þessa dagana.
Ég sat með nokkrum mætum mönnum í gærmorgun og við urðum sammála um eftirfarandi utanþingsstjórn fram að næstu kosningum.
Ólafur Jóhann Ólafsson framkvæmdastjóri, forsætisráðherra og upplýsingamálaráðherra (PR)
Jón Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra, seðlabankastjóri og Forstjóri NIB, utanríkis, dóms og kirkjumálaráðherra.
Jón Sigurðsson fyrrverandi, seðlabankastjóri, viðskiptaráðherrra og form. Framsóknarflokksins verði, fjármála og viðskiptaráðherra.
Vilhjálmur Egilssson framkvæmdastjóri SA verði Sjávarútvegs, landbúnaðar, iðnaðar og umhverfismálaráðherra.
Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi, verði heilbrigðis, félags og menntamálaráðherra.
Ef einhver ráðuneyti eru eftir verður þeim skipt niður á ráðherranna.
Hér er á ferðinni fólk sem kann til verka og hefur skilning, reynslu og þekkingu til að takast á við þau risavöxnu verkefni sem framundan eru á næstu dögum og vikum ...
Hafið það eins og þið viljið
Magnús G.
Ekki hjá því komist að kjósa á þessu ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það að staðan sé svipuð og hjá öðrum bönkum
19.1.2009 | 17:12
Segir stöðu Landsbankans ekki hafa versnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)