Vakna þegar ég er búinn að sofa !!

Jæja  þá  er  ég  búinn að sofa,  reyndar  vaknaði  ég kl.  1100  alveg  úthvíldur og  fínn,  svaf eins og engill.   Ég er  nú  ekki búinn að fara á Ricks  bar  ennþá  og  fer  kannski "ef  ég  nenni"  eins og  Helgi Björns  söng  í  frægu Ítölsku (jóla) lagi  eftir  Zucchero  sem heitir Cosi Celeste, gott lag  hjá  báðum.  Ég  sagði í  bloggi  í haust að íslendingar  fara víða  og  ég verð að segja frá smáuppákomu hér á  hótelinu í  dag..  Ég  var að skjótast  niður  með lyftunni  og  hún  hentist uppá  9. hæð  og  inn kom ungur maður,  vestrænn í útliti, og  ég ávarpaði hann;  going down ?   og  hann svaraði;  ertu íslenskur ?  já  en þú, sagði ég, eins og  hálfviti, líklegt að maðurinn talaði  íslensku ef  hann væri franskur,  (ekki gleyma því að ég er  ljóska)   Maðurinn heitir Orri er Akureyringur og  flugmaður hjá  Atlanta.  Hann var  hér  eina  nótt vegna pílagrímaflugs  til Jeddah  í  Saudi Arabíu.  Við fengum okkur  tebolla  og  spjölluðum aðeins saman.  Það er  nánast rugl  þegar  maður hugsar útí  að  ég er í 6 milljón manna borg  með  hundruðum  hótela  að  ég  skuli rekast á  þennan  ágæta mann í lyftunni,   hann er hér eina nótt í fyrsta  skipti á ævinni  og  ég  líka í fyrsta skipti á hóteli í  Casablanca.  Ég  gladdist  yfir sigri Liverpool  í  dag, þeir eru náttúrulega langbestir þegar þeir eru í stuði eins og þeir voru í dag,  til hamingju allir poolarar..   Varð  vitni að   viðskiptum hér fyrir utan hótelið  í  dag,  hvort  þau  voru  lögleg  veit  ég  ekki,  er  ekki svo vel að mér í  lögum  hér,  en set inn mynd  til  skemmtunar  af  viðskiptunum  og  dæmi hver fyrir sig...

Hef  það  annars  frábært og  ætla  að halda áfram að chilla  fram á morgundaginn  og  fer  þá  heim til Laayoune  og  hlakka mikið til að koma heim.. 

Hafið það eins og þið viljið 

Magnús G. Police

Casa NOV 07 003


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú verður að útskýra þessa mynd eitthvað nánar, þetta sést ekkert voðalega vel.

Sigrún Ásta (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 09:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband