Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Shaq er búinn að "setja" niður

rúmlega 5000 vitaskot á ferlinum og guð má vita hvað hann er búinn að skora mörg stig og taka mörg fráköst á ferlinum.   Shaq er frábær íþróttamaður og búinn að vera í fremstu röð í allavega 15 ár ef ég man rétt.  "Shaq attack"   
mbl.is Shaq hefur „klúðrað“ yfir 5.000 vítaskotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öryggisnetið brást

sagði Páll Skúlason heimspekingur og fyrrverandi Háskólarektor.  Til þess að vera svolítið í markaðshyggjunni áfram þá verð ég nú að segja að að ég var alveg að  "kaupa" skoðanir hans á ástandinu á Íslandi í dag.   Ég er hjartanlega sammála honum um að öryggisnetið, stjórnvöld, ríkisstjórn og embættismanakerfið okkar brást okkur borgurum þessa lands og þá á ég enn og aftur við alla þingmenn hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu.  Það er sorgleg staðreynd að þingmenn og forystumenn í stjórnmálum á Íslandi eru rúnir öllu trausti og það er ekkert persónulegt, það er bara staðreynd.  Við þurfum nýtt fólk inní stjórnir flokkanna og nýtt fólk eða endurnýjað umboð og traust þeirra gömlu til að takast á við uppbyggingu á ríkinu á nýjan leik.  Við þurfum að byggja upp nýtt og betra Ísland með nýja hugmyndafræði, hugmyndafræði sem gengur út á miklu meiri jöfnuð og miklu meiri samvinnu og jafnari skiptingu á tækifærum og verðmætum landsins sem er eign okkar allra,  ekki bara nokkurra.  "Gróðærið" er búið og þessi gengdarlausa samkeppni allra um allt er komin á endastöð.  Ég er búinn að halda því fram í mörg ár að samfélag eins og okkar getur ekki byggst á því að það séu þrír einstaklingar sem ráða öllu vöruverði á Íslandi og geti skammtað okkur lífsskjörin í gegnum verðtrygginguna.  Það er ekki hægt að búa við það að þeir sem ráða öllum flutningum, fjármálastarfssemi, útflutningsstarfssemi, innflutningsstarfssemi, tryggingum, fjölmiðlum og verslun,  komist fyrir í lítlilli rútu, eins og meðal hljómsveit sem er á leiðinni á sveitaball.

Við verðum að hefja stjórmálin til vegs og virðingar á nýjan leik,  það verður að koma þeirri hugsun inn að stjórnmál eru ekki fag, heldur lýðræði og við verðum að fá fólk til þáttöku í stjórnmálum á nýjan leik til að gera þau áhugaverðari fyrir þegna landsins.  Það þarf nýja hugsun og hún kemur bara með því að fólk taki þátt og komi hugmyndum sínum á framfæri.

Annað sem verður mér hugleiknara með hverjum deginum sem líður er þessi hugsun um hver hornsteinn hins nýja Íslands gæti verið.  Það er ljóst að það kerfi sem við byggðum á og flest trúðum að væri af hinu góða brást og skilur okkur eftir með svo sárt ennið að sumir jafna sig aldrei.

Ég fæddist fyrir tæpum 50 árum austur á fjörðum,  ég ólst upp á miklu samvinnuheimili, enda var faðir minn Kaupfélagsstjóri hjá Kf. Fáskrúðsfirðinga, sem átti og rak bæði verslun, útgerð, fiskverkun og sláturhús.  Þetta ágæta Kaupfélag lifir enn góðu lífi og er undir trausti stjórn, kaupfélagsstjóra sem aldrei hefur misst sjónar á grunngildin í samvinnuhugsjóninni,  sem er hin samfélagslega ábyrgð og arðsemin í að taka samfélagslega ábyrgð.  Hægt væri að nefna önnur frábær fyrirtæki eins og Kf. Skagfirðinga og Kf. Strandamanna á Hólmavík, svo einhver séu nefnd.  Sláturfélag Suðurlands og MS  sem í það minnsta voru samvinnufélög ef þau eru það ekki ennþá.  Reynsla mín af samvinnuhugsjón og þvi að fólk taki sig saman um að leysa sameiginlega verkefni, kallar fram æ sterkari hugsun um að lausnin fyrir okkur gæti verið fólgin í nýjum samvinnufélögum, þar sem allir hafa fjárfesta hagsmuni af því að allir séu við sama borð og njóti réttlætis og að lýðræði sé virkt með þá grundvallarhugsjón að einn maður sé eitt atkvæði. SÍS gamli og Kaupfélögin urðu undir í baráttunni við hin nýju viðhorf í viðskiptum og kannsi fór eins og fór af því að aðhaldið frá samvinnufélögunum skorti, þ.e.a.s.  aðhaldið frá fólkinu, því engin eru samvinnufélög án félaganna.

Eygló Harðardóttir þingkona hefur undanfarið talað mjög fyrir endurvakningu samvinnufélaga og á hún allan minn stuðning vísan í þeirri umræðu enda trúi ég því að "sagan endurtaki" sig og að samvinna og samvinnuhugsun verði það kemur okkur útúr þeim ógöngum sem við erum í.  Ég held að við Íslendingar séum í grundvallaratriðum miklir samvinnumenn enda hefðum við aldrei geta byggt þessa litlu eyju hér norður frá ef við værum ekki samvinnumenn.

Ég held að heimspekingurinn Páll Skúlason hafi mikið til síns máls þegar hann telur að framtíð Íslands liggi fyrst og fremst í gildum samvinnunnar og endurvakningar á þeirri góðu hugsjón.

Vinnum saman

Magnús G. Whistling

SÍS  GAMLI     


Stöndum við bakið

á þeim félagasamtökum sem við teljum að séu best að peningunum komin.  Ég hef alltaf keypt mína flugelda af Hjálparsveitunum og tel að ég hafi varið þeim peningum vel og ég hef alltaf notið þess að skjóta upp flugeldunum og aldrei séð eftir eyðslunni í þá.  Ég tel reyndar að ég sé búinn að græða heilmikið á því að eyða í flugelda, ég allavega tapaði ekki þeim peningum í bankahruninu mikla. 

Kaupum flugelda eða setjum upphæðina sem við myndum annars eyða í flugelda til annarra góðgerðarmála, eins og mæðrastyrksnefndar, SÁÁ, Samhjálpar, Hjálparstofnunar Kirkjunnar eða einhvers góðs málefnis.

 


mbl.is Flugeldasalan hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóladagur

Mikið er ég feginn að við skulum halda Jól á hverju ári.  Gera vel við okkur í mat, klæða okkur upp, gefa hvert öðru gjafir, tala hlýlega til hvers annars og njóta góðvildar.  QE II  eða Elizabeth  drottnig Breta fluttu óvenju fallegt ávarp þessi jólin og minnti á þá sem eru fjarri fjölskyldum sínum þessi jólin og líka á þá sem eru farnir úr þessum heimi og við minnumst á stundum sem þessari. 

Hugur minn leitar  rétt ár aftur í tímann,  þegar ég fékk þær sorglegu fréttir að slys hefði orðið um borð í skipi sem ég hafði  með að gera, niður í Afríku.  Því miður létust menn í slysinu og voru kallaðir frá fjölskyldum sínum á Jóladegi fyrir réttu ári síðan.   Þessi atburður mun aldrei líða mér úr minni og ég hef ekki komist hjá því að hugsa oft til þeirra ágætu manna sem létu lifið í slysinu,  blessuð sé minning þeirra og ég bið fjöskyldum þeirra Guðsblessunar.  

Mér er oft hugsað til  Jóladaganna 7 í röð sem ég eyddi á sjó,  þegar ég var unglingur og ungur maður.  Oft hugsaði maður heim þessa daga og sakanaði þess að vera ekki í faðmi fjölskyldunnar, en þessir dagar eru nú hluti af því sem gerir mann að því sem maður er,  reynsla sem ég vildi ekki vera án.  Það var ekki alltaf mikil helgi yfir þessum dögum en sumir voru góðir og aðrir minna spennandi fyrir 15 -22 ára ungling. 

Einn er sá atburður sem ég hugsa alltaf til á Jóladag, en það er þegar skipbrotsmenn af Surðurlandinu börðust fyrir lífi sínu Norðausutur af  landinu fyrir rúmum 20 árum.  Því miður komust þeir ekki allir heim úr þeim Jólatúr, en þeir sem komu heim vour og eru miklar hetjur í mínum huga.  

Jóladagurinn þetta árið er búinn að vera aldeilis stórkostlegur,  ég hef eiginlega ekki gert neitt nema njóta þess að vera til í Ölduróti lífsins.  Ég er þakklátur fyrir allar góðu kveðjurnar sem ég hef fengið og heimsóknirnar frá þeim sem mér þykir vænt um.  Nú ætla ég að enda þennan fína Jóladag með því að heimsækja móður mína og leyfa henni að gefa mér hangikjöt með kartöflustöppu að borða í kvöldmatinn. 

Farnist ykkur vel í glímunni við lífið, leyfið ykkur að njóta jólanna. 

Hafið það eins og þið viljið 

Magnús G.  Heart


Do they know it´s Christmas

hljómaði í eyrum mér í morgun í líkamsræktinni og á skjánum voru frægir poppsöngvarar að syngja hið frábæra lag til styrktar fátækum í Afríku.  Það er búið að endurútsetja lagið og það hefur ekkert annað en batnað við það.  Þegar ég horfði og hlustaði á þetta frábæra lag þá var mér hugsað til allra sem eiga bágt núna,  ekki bara í Afríku heldur líka hér á landi og annarsstaðar í heiminum.  Jólin eru mér alltaf mikilvæg og þetta er mér verðmætur tími og hefur orðið mun verðmætari eftir þvi sem árin hafa færst yfir mig. Þetta er gæðatími með fjölskyldunni og vinum sem maður hittir í kringum jólin og ég fer nokkuð afslappaður inní þessi jól.   Ég er svo heppinn að geta eytt enn einum jólum með börnumum mínum og öðrum nánum úr fjölskyldunni og  ég hlakka til aðfangadagskvölds eins og alltaf.  Hin árlega skötuveisla var í kvöld, Þorláksmessu,  og tókst með miklum ágætum,  skatan var óvenjulega góð þetta árið og allt kláraðist að þessu sinni enda alltaf fleiri og fleiri sem fá sér smá smakk.  Skemmtilegur þessi vestfirski siður að borða skötu á Þorláksmessu og hitta ættingjana svona rétt fyrir jólin,  skiptast jólapökkum og jólakortum og eiga afslappaða stund saman.  Ég vona og held að langflestir Íslendingar eigi gleðileg jól þessi jólin, þrátt fyrir allt sem á hefur dunið undanfarna mánuði og ég hvet okkur öll  til að hugsa til meðbræðra okkar,  sérstaklega í Afríku, þar sem ófriður ríkir, fátækt, hungur og farsóttir.  Ég hef verið svo lánsamur að fá tækifæri til að vinna og búa í Afríku og kynnast ástandinu af eigin raun, þó svo að ég hafi aldrei komið á svæði þar sem raunveruleg hungursneið herjar á samfélagið, nóg sá ég samt.

Ég er þakklátur fyrir að vera Íslendingur og stoltur af þjóðerni mínu.  Ég er þakklátur fyrir hvað við höfum það raunverulega gott hér á Íslandi og nú verðum við að standa saman og koma okkur útúr ógöngunum sem við erum komin í.  Ég mun hugsa til meðbræðra minna í Afríku þessi jólin og senda þeim góða strauma, ég mun líka hugsa til allra sem eiga um sárt að binda hvar sem er.

Ég sendi mínar bestu jólakveðjur til allra sem þetta lesa og hinna líka og óska öllum friðar á jólum.

Hafið það eins og þið viljið á jólunum. 

Magnús G.  Heart

 


Reiknaði einhver með ákvörðun

Ég veit ekki heldur hvaða ráðherrar ættu að víkja og þá fyrir hverjum.  Ég held að þetta sé nú bara það skynsamlegasta sem Geir gat gert að gera ekki neitt.  Vonandi áttar hann sig á því fljótlega að kosningar í vor eru eina raunhæfa lausnin sem við höfum í stöðunni.  Það verða allir þingmenn og allir ráðherrar að endurnýja umboð sitt frá þjóðinni til að takast á við það sem framundan er. 

Annars óska ég Geir og hinum í ríksstjórninni  Gleðilegra Jóla og vonandi ná þeir að hvílast eitthvað um hátíðirnar. 


mbl.is Geir: Engar ráðherrabreytingar fyrirhugaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bráðum koma blessuð

jólin og Henry var að skora annað markið fyrir Barcelona núna.  Ég er nú alveg að verða klár i Jólin þetta árið, búinn að þrífa allt í hólf og gólf, segja upp Íslenska furutréð sem ég keypti í Blómavali og ég er meira að segja kominn með SÖRUR í frystinn, ekki rosalega margar, en það eru alvöru SÖRUR.  Þetta verða fyrstu jólin mín hér í upphæðum Kópavogs, hef hingað til verið nær sjávarmáli og ég hlakka til aðfangadags sem ég eyði með börnunum mínum og Helgu minni ágætu fyrrverandi og móður og systur hennar,  hefðbundið aðfangadagskvöld og mér líkar það vel.  Ég er kominn með Skötuna á svalirnar og hlakka til skötuveislunnar á Þoláksmessu, sem er oðin alveg bráðnauðsynlegur hluti að jólapakkanum.   Ég reikna með ca. 25 í veisluna þetta árið, sumir að vísu bora pizzu en það skiptir engu máli, það er stemmningin að fá alla saman og gleðjast þessa 2 tíma sem veislan stendur. 

Hafið það eins og þið viljið fram að jólum og um jólin og áramótin

Magnús G. Whistling

 


Athyglisvert

Sjóræningjar á landi.   Annars án gríns þá eru þessar heimildir algerlega nauðsynlegar því það verður að koma böndum á þessa glæpamenn í Sómalíu sem eru búnir að ræna tugum eða  hundrðum skipa á undanförnum árum og í sumum tilfellum halda fólki í gíslingu mánuðum saman.  Það er nú nógu erfitt fyrir farmenn heimsins að sigla um þessi svæði svo þeir þurfi ekki að búa við þessa skelfilgu ógn líka..

 


mbl.is Mega elta sjóræningja á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær samvinna..

Frábært video með laginu Stand by me.   Mér finnst það eiga ansi vel við þessa dagana.  Njótið lagsins og boðskaparins.

http://www.youtube.com/watch?v=Us-TVg40ExM

Hafið það eins og þið viljið

Magnús G.  Woundering

 


Vonbrigði

Ég hef nú aldrei haft neitt sérstakt dálæti á DV, en ég hélt að Reynir Traustason sem ég þekkti ágætlega hér áður fyrr léti ekki ekki svona hluti henda sig.  Ég  held að Reynir sé rúinn trausti almennings eftir þessa uppákomu.  Blaðamaðurinn brást auðvitað trausti Reynis og braut trúnað við hann samkvæmt því sem ég hef heyrt.  Hvaða blaðamaður hefur ekki brotið "trúnað" þegar hann getur komið með jafnmikla frétt og þá að aðal og frægasti rannsóknarblaðamaður samtímans og núverandi ritstjóri DV stöðvar óþægilegar fréttir.  

Ég verð nú að segja að ég hélt að Reynir léti þetta ekki henda sig.  Ég ætla ekkert að ráðleggja Reyni hann er alveg maður til að taka rétta ákvörðun fyrir sig i þessu máli.

  Reynir Traustason, ritstjóri DV


mbl.is Íhugar málsókn gegn Kastljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband