Kemur varla á óvart

að Josefsson vilji ekki bendla nafn sitt við þessa verklausu ríkisstjórn öllu lengur.  Maður er löngu hættur að vera hissa á þessu verkleysi, úrræðaleysi og kjarkleysi ríkisstjórnarinnar og orðinn sorgmæddur yfir því að þjóðin skuli hafa kosið yfir sig þennan þingmeirihluta.  En þjóðin fær víst ekki betri ríkisstjórn en hún á skilið og þetta er það sem kom uppúr kössunum þ. 25. apríl s.l.   Ég hef á tilfinningunni að Ísland sé að breytast í Kúbu norðursins,  hvert fyrirtækið á fætur öðru endar í ríkisseigu og þarfir þegnanna  eru hundsaðar.  Á dauða mínum átti ég von en ekki því að þurfa að lifa svona tíma í þessu fallega landi.

 


mbl.is Josefsson hótaði að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband