Við Hákon Örn...

ætlum að leggja land undir fót  á morgun  og  halda á  æskuslóðir  afa  hans í  Skagafirði,  nánar  tiltekið í  Blönduhliðina.   Við  erum búnir að fá  húsaskjól á Uppsölum  og  við  ætlum að  veiða í Norðurá  á  laugardaginn..   Mig  er  lengi  búið að langa  til að kíkja á þessa  á aftur.. en ég  reynda að  veiða þar fyrir 25 árum síðan  án  árangurs  enda búnaðurinn sem ég átti á þeim tíma  ekki vænlegur til árangurs.   Drengurinn  knái átti  hugmyndina  að  veiðferð  um helgina  og  við  förum í  Norðurá og freistum gæfunnar..

Síðan á sunnudaginn er  stefnt að  því að fara  í  Þorlákshöfn og  taka  þátt í golfmóti  fyrir  10 ára  á ULM  sem haldið er um helgina í Höfninni... Hákon er hörkugolfari  og  ég verð  caddy enda  kann ég lítið sem ekkert í golfi og er bara sáttur  við  það  ennþá  allavega.

Við  ætlum semsagt  að  leika okkur um helgina og  njóta þess að eiga hvorn annan  feðgarnir.

Hafið það eins og þið viljið  um þessa helgi og alltaf. 

Magnús G  Joyful

P1020506


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyþór Árnason

Góða ferð...

Eyþór Árnason, 2.8.2008 kl. 00:38

2 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Takk fyrir Eyþór  við  áttum frábæra ferð í Skagfjörð og fengum frábærar móttökur á Uppsölum eins og  við var að búast..

MG

Magnús Guðjónsson, 4.8.2008 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband