Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Leyfum rykinu að setjast..

Nú þegar þessum hamförum fer að ljúka þá koma auðvitað eftirskjálftarnir og ég hef heyrt tölur um að allt að 50-60 % af íslensku atvinnulífi verði gjaldþrota og stöðvist á næstu mánuðum með tilheyrandi vandræðum fyrir okkur sem landið byggjum.  Ég ætla svo sannarlega að vona að þetta sé allt saman tóm vitleysa eins og  við flest héldum með bankana fram í lok september s.l. 

Ég hinsvegar las ansi góða grein í dag eftir  Jóhann J. Ólafsson sem hann skrifaði í Fréttablaðið og þar lýsir hann aðdraganda og ástandinu býsna vel, hvet  alla til að lesa þessa grein.  ´

 Ég er hrifinn af framkvæmd Hermanns  hjá  N1 að nota loksins þjóðfánann sem sameiningartákn og ég legg nú bara til að lögum um þjóðfánann verði breytt og notkun hans leyfð við fleiri tilefni en nú er gert, en þó þannig að virðingar við fánann verði auðvitað gætt áfram. 

Á tímum eins og þeim sem nú eru að ganga í garð er nauðsynlegt að huga vel að heilsunni og næra sig vel og rækta líkama og sál.  Ég  var svo heppinn fyrir rúmum 6  árum að fá á öxlina engil sem hvíslaði í eyrað á mér að ég yrði að breyta til, áframhaldandi lífsstíll yrði mér að tjóni langt fyrir aldur fram ef ég aðhefðist ekkert.  Ég hlustaði og byrjaði hægt og rólega að byggja mig upp, fyrst líkamlega, tók svo næringuna fyrir og fór að nota fæðurbótarefni og próteindrykki frá Herbalife.  Svo fór ég að rækta sálartetrið betur og viti menn,  ég  er miklu betur á mig kominn núna en ég var fyrir 15 árum.  Mér líður í raun alveg frábærlega og það er svo feikilega gott á tímum sem þessum að vita að maður er uppá sitt besta, við góða heilsu og það muna auðvelda manni að takast á við framtíðina. 

Ef þið viljið góða og ódýra næringu, stútfulla af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum, þá smellið að krækjuna hér fyrir neðan og ég mun glaður leiðbeina ykkur. 

Skyndibiti fyrir gáfað fólk;

www.heilsufrettir.is/sonata

Hafið það eins og þið viljið

Magnús G. Whistling


Frábær sigur á Laugardalsvelli í kvöld.

Það var skemmtilegt að vinna landsleikinn í kvöld, þó að fótboltinn hafi kannski ekki verið mjög fallegur sem leikinn  var, en það skiptir bara engu máli þegar við vinnum leikina.  Það var gott að fá þennan sigur inní umræðununa og gefur okkur orku og eitthvað að gleðjast yfir.  Ég fór svo beint í Kórinn eftir leik og lék mér með nokkrum öðrum í klukkutíma í fótbolta.  Neita þvi ekki að það tekur á að hlaupa, tækla og vera tæklaður í klukkutíma en mikið helvíti er þetta gaman.  Okkur vantar ennþá nokkra til að fylla tímann, endilega látið mig vita ef þið viljið koma kl 2100 á miðvikudögum..

Takk strákar í landsliðinu fyrir þennan sigur.

 Hafið það eins og þið viljið

Magnús G.  Smile


Tók mér hálfgert fréttafrí um helgina

Ég var að verða svo deprimeraður og reiður í lok síðustu viku að ég tók mér eiginlega frí frá fréttum að mestu, þó ég hafi séð Egil Helgason missa sig í Silfrinu, ótrúlegt að horfa á jafn reyndan mann fara svona með gullið tækifæri. Mér fannst reyndar þetta mikið auglýsta viðtal fara fyrir ofan garð og neðan vegna stjórnleysis, stjórnandans sem greinilega var mjög reiður.   Það var fínt að kúpla sig aðeins út og reyna að ná áttum í öllum þessum holskeflum sem á okkur dynja.  Ég  er enn sannfærðari en áður að nú verðum við að nýta tækifærið til að gefa uppá nýtt og koma á vitrænum leikreglum í landinu.   Ég  þurfti á smá læknishjálp að halda í síðustu viku og datt inná einkarekna heilsugæslustöð í Kópavogi og ætlaði að fá tekinn úr mér saum.   Mér var sagt að það væri hægt fyrir 2.200 kall af því að það væri læknir sem myndi taka sauminn og að ég þyrfti að bíða í  ca. klukkutíma erftir þjónustunni.  Ég nennti ekki að bíða og sennilega rukkar líka læknirinn fimmfalt þetta verð svo að ég ákvað að taka samfélagslega "kreppuábyrgð" og fá vinkonu mína til að æfa saumatöku úr olnboga. Við hittumst á almenningssalerni á Grand Hóteli þar sem hún mætti með smáskæri og plokkara og  saumarnir hurfu á 2 mínútum. 

Ég byrjaði svo aftur í "ræktinni"  í morgun í Nautilus í Versölum og ætla að vera duglegur með badmintoninu og fótboltanum og göngutúrunum mínum.   Markmiðið er að ná þvi að geta skokkað nokkuð létt eina 10-20 km og synt 1500 - 2000 metra skriðsund svo ég geti tekið þátt í þríþraut á næsta ári án þess að ganga alveg frá mér..

Smelli inn mynd af samstöðu í kreppunni. 

Hafið það eins og þið viljið

Magnús G.  Whistling

STS OKT 2008 003


Nýja Ísland

Hvernig verður nýja Ísland ?  Það verður nákvæmlega eins og við viljum hafa það sjálf.  Við erum svo heppin að hafa kosningarétt og við getum valið okkur fólk til forystu.  Ég  hef verið stuðningsmaður flestra ríkisstjórna sem setið hafa á Íslandi frá því að fór að spá í pólitík og ég meira að segja batt vonir við þá sem nú situr.  Það fer um mig hrollur þegar ég hugsa um aðgerðarleysi þessara ríkisstjórna gagnvart aðdragandanum að þeirri stöðu sem nú er komin upp.  Þegar ég tala um ríkisstjórnir í þessum pistli þá á ég líka við stofnanir ríkisins, eins og Fjármálaeftirlit og Samkeppniseftirlit, sem hefur sýnt sig að eru handónýtar stofnanir, svo ekki sé nú talað um blessaðan Seðalabankann sem rúinn er öllu trausti og menn brosa bara útí annað þegar hann er nefndur, allir nema Geir Haarde. 

Ríkisstjórnir, stjórnarandstaða og Forsetinn sjálfur,  bera öll  mikla ábyrgð á því að hafa leyft 10 - 20 mönnum, sem hefur verið hampað um allt, að skuldsetja þjóðina með þeim hætti sem uppá yfirborðið er að koma.  Ég ætla að vona að þeir sem hafa leyft þessu að gerast, með bundið fyrir augun, skammist sín og hafi hljótt um sig þegar IMF verður búinn að taka yfir hér á næstu dögum.  Það er engin önnur leið fær en aðstoð frá IMF og satt best að segja hugnast mér það bara ágætlega.  Þeir munu setja skýrar reglur og það er það sem við þurfum núna skýrar reglur. 

Almenningur getur tekið höndum saman og komið sér upp nokkurskonar Samvinnufélögum til að sjá um grunnþætti í þjónustu, eins og verslun, flutningum, tryggingum, samgöngum, sjávarútvegi, bankastarfssemi  ofl.  Látum það aldrei, aldrei aftur gerast á Íslandi að hópur manna sem kemst fyrir í einum Econline nái hér öllum verðmætum þjóðarinnar á sitt vald og geti kúgað þjóðina með þeim hætti sem við erum að upplifa þessa dagana.  Þetta er ekkert annað hrein og klár kúgun og andlegt ofbeldi sem þjóðin er að ganga í gegnum.  

Ég er tilbúinn til að fara í stríð til að varðveita hagsmuni þessarar þjóðar til framtíðar og við verðum að skipta út öllu settinu,  líka Steingrími Joð og Guðna Ágústssyni,  ekki bara núverandi stjórnarflokkum heldur líka stjórnarandstöðunni, hún hefur brugðist. 

Nú er tækifærið  til að stokka allt upp og gefa uppá nýtt,  auðlindir þjóðarinnar eiga að vera þjóðareign ekki einkaeign einhverra nokkurra einstaklinga sem eru búnir að veðsetja allt sem hægt er að veðsetja  margfalt.  Við eigum ekki að hafa alla smásöluverslun og önnur viðskipti  í höndum öfrárra  aðila sem hafa okkur að fíflum og skammta sér og okkur lífsafkomu,  þetta var systemið fyrir 100 árum,  hendum því aftur eins og við gerðum þá og slítum af okkur hlekkina.

Endurskipuleggjum Ísland núna,  það verður ekki annað betra tækifæri til þess.

Hafið það eins og þið viljið og vonandi verður gott veður um helgina.

Magnús G. Halo

Þjóðfáninn SÍS  GAMLI   lifir 

Ég set inn merki samvinnuhreyfingarinnar til að minna okkur á gildi samvinnu og semheldni á komandi misserum og árum.  Samvinnuhreyfingin átti stóran þátt í að þessi þjóð varð bjargálna á síðustu öld, við getum endurtekið það sem við kunnum.

 

 

 


Hryðjuverkaógn !!!

Að nýta sér lög um hryðjuverkaógn gagnvart smáþjóð norður í Atlanshafi, sem á tvö lítið Varðskip og hefur engan her nema þessa örfáu sérsveitarmenn lögreglunnar, er náttúrulega galið.   Höfum þó eitt í huga að einu stríðin sem Breska Heimsveldið hefur opinberlega tapað eru Þorskastríðin og ég er einn af hinum stoltu hermönnum þjóðarinnar sem sigraði í því síðasta.  Ég held að "vinir" okkar Bretar séu að nota okkur sem blóraböggul og senda skýr skilaboð til allra banka í Bretlandi um að haga sér í samræmi við þeirra vilja, annars ...... 

Ég var að hlusta á Ágúst Ólaf núna rétt áðan á MBL.IS  og þó ég sé nú ekki oft sammála þeim samfylkingarmönnum, þá var ég álgjörlega sammála honum,  við verðum að skipta um stjórn og stjórnendur í Seðlabankann í dag og það hlýtur að verða efni blaðamannafundar á eftir að tilkynna það.  Ég held að gáleysislegt tal DO í Kastljósinu í vikunni hafi haft miklu meiri áhrif en okkur grunaði  og nú er kominn tími til að gefa þjóðinni langþráða hvíld frá honum.  Við verðum að byggja Nýja Ísland upp án þeirra sem bera ábyrgð á stöðunni sem nú er uppi.  Það er flótti frá raunveruleikanum að skrifa þetta allt á einhverja alheimskreppu á fjármálamarkaði,  vissulega kom hún skriðunni af stað.  

Það hafa verið framin fjármálaleg hryðjuverk á Íslensku þjóðinni og við eigum að fara að dæmi Breta og nýta okkur fordæmi þeirra í ljósi hryðjuverka  og frysta allar eigur þeirra sem ábyrgð bera á stöðu bankanna og þeirri staðreynd að menn hafa tekið þúsundir milljóna að láni í útlöndum með ábyrgð þjóðarinnar og geti svo bara hugsanlega hlaupið frá því. 

Ég vil að lokum gera orð Winston Churchill að mínum;

Velgengni er geta okkar til að halda áfram ferðinni í gegnum ófremdarástand

Við megum ekki gefast upp og munum aldrei gefast upp, nú sýnum við Bretum og öllum öðrum úr hverju við Íslendingar erum gerð. 

http://www.youtube.com/watch?v=shRLCaNreFE

Hafið það eins og þið viljið 

Magnús G.  Woundering

 


Á hvaða leið erum við ?

Er staðan eins góð og Davíð lýsti eða var hann bara að lýsa óskhyggju sinni um "Draumalandið" eftir aðgerðirnar sem menn standa í núna.  Glitnir kominn á framfæri ríkisins eins og Landsbankinn,  Kaupþing í Bretlandi komið í greiðslustöðvun.  Hvenær tekur ríkið Kaupþing yfir ?,  er annað hægt ?  Gengisskráningin  minnir á  ZIMBABWE, það veit enginn hver gengisvísitalan er og krónan sem öllu átti að bjarga í gær hefur neitt seðlabankann til að gefa gengið frjálst aftur, sem ég tel reyndar alveg ótrúlega aðgerð.  Það er engin eðlileg verðmyndun á markaði og þess vegna á ekki að vera frjálst gengi þessa daga.  Gordon Brown hótar okkur stríði í réttarsölum,  danir grínast með okkur sem þjóð, (frekar ósmekklegt að mér finnst),  því ekki höfum við gert annað af okkur en að kjósa yfir okkur mennina sem settu leikreglurnar.   Leikreglur sem komið er í ljós að voru svo rúmar að nokkrir einstaklingar, sem sumir eru nú Ríkisstarfsmenn á launum hjá okkur,  fóru þannig með að ekki bara við erum gjaldþrota heldur margar komandi kynslóðir.  Það er auðvitað ekki auðvelt að senda út þau skilaboð að ríkið ætlar ekki að bakka upp þetta rugl allt, einfaldlega vegna þess að við höfum ekki efni á því.  Annars er atburðarásin svo hröð þessa dagana og angistin svo mikil um allan heim að best er að segja sem minnst og bíða næstu daga. 

Ég hef ekki svo miklar áhyggjur af sjálfum mér, en ég verð að játa að ég hef áhyggjur af framtíð barnanna minna og við hvaða kjör og leikreglur þau munu búa í framtíðinni. 

Hvert við stefnum við ??

Hafið það eins og þið viljið.

Magnús G.  Blush


Ef ég heyrði rétt

í Kastljósinu í kvöld, þá sagði Davíð Oddsson,  sem reyndar talaði eins og forsætisráðherra, að búið væri að taka ákvarðanir um að greiða ekki erlendar skuldir Landsbankans og Glitnis en ábyrgjast allar innlendar skuldbindingar þessara banka.  Hvað með Kaupþing ?  eiga þeir bara að róa sinn sjó eða verður sá ágæti banki yfirtekinn í næstu viku ?  og  allar erlendar skuldir hans meðhöndlaðar með sama hætti.  Allt er þetta gert til að aðlaga bankakerfið, sem var náttúrulega alltof stórt fyrir þjóðarbúskapinn, að raunverulegri stærð hagkerfisins.  Það sem mér hugnast best í þessu er sú staðreynd að Ríkið ætli ekki að rembast við eitthvað sem það getur ekki og láta ævintýramennskuna bitna á komandi kynslóðum,  betra að gefast upp strax og játa sig sigraðan.  Ég er alveg sammála DO  um að sigurinn felst í uppgjöfinni og við verðum miklu fljótari að koma okkur á skrið aftur með þvi að gera þetta svona.  Þetta er að horfast í augu við raunveruleikann.

Mikið rosalega er ég þakklátur fyrir að hafa viðskipatækifæri  Herbalife þessa dagana, tækifæri sem veitir mér rétt til að starfa í næstum 70 þjóðlöndum,  tækifæri sem getur fært fólki þær aukatekjur sem á vantar nú þegar svona gríðarleg kjaraskerðing hefur orðið og  er fyrirsjáanleg. 

Heiðarlegt tækifæri fyrir heiðarlegt fólk. 

Ef þið viljið frekari upplýsingar þá smellið á krækjuna hér fyrir neðan og ég skal fræðar ykkur um þetta frábæra tækifæri .

 http://www.heilsufrettir.is/distrApply.php?distributor=sonata

 Það sem skiptir máli núna er að vera iðinn og fyrirhyggjusamur eins og maurarnir og ég set inn aðra krækju með vísdómi mauranna;

http://www.youtube.com/watch?v=rMGfyaLkwRQ&feature=related

Gangi ykkur öllum allt í haginn.. og hafið það eins og þið viljið..

Magnús G. Whistling

 

Maður en nú bara eiginlega hálfdofinn

á svona dögum.   Ég  bara sver það að ég átti alls ekki von á því að upplifa neitt því líkt og gengið hefur á  undanfarna daga og vikur í Íslensku viðskiptalífi.  Það er akkúrat ekki neitt sem maður getur gert í stöðunni annað en fara bara með æðruleysisbænina örlítið breytta og  bæta bara inn kæruleysi í staðinn fyrir æðruleysi.  Viðskiptabankinn minn til margra áratuga er bara horfinn í þeirri mynd sem hann var og  enginn veit hvað við tekur,  atburðarásin er svo hrikalega hröð að ég er ekki viss um að menn bara hangi með.  Alltí einu verður maður aftur kominn með íbúðalánin sín í Íbúðalánasjóð og guð má vita hvað verður um lífeyrissparnaðinn sem ég hef verið að leggja inní Landsbankann,  sem í síðustu viku var talinn vera traustasti banki á Íslandi.

Ég  henti fram í bloggfærslu hér fyrir nokkrum dögum, í  hálfkæringi, að við værum í viðræðum við Rússa um gjaldeyrisöflun til að tryggja gjaldeyrsforðann, að það sé hugsanlega raunin er nú bara ótrúlegt.  Alveg er ég sammála Geir Haarde að þegar vinir þínir bregðast þá leitar þú nýrra vina, því við þurfum svo virkilega á vinum að halda akkurat núna.  Það sannast hér eins og svo oft áður að ekki eru allir viðhlæjendur vinir.  Það er líka athyglivert að Norðmenn skuli hafa getað grafið sig útúr olígróðanum í dag og boðið aðstoð, ef eftir væri leitað,  nú þegar við erum komnir í samband við Rússa,  afhverju í andskotanum komu þeir ekki fram fyrr, eða voru okkar menn kannski með einhvern hroka við þá. 

Það þarf að nota  þetta tækifæri sem er að gefast til að hreinsa til,  hreinsa ruglið útúr íslensku viðskiptalífi og koma á eðlilegri hugsun og eðlilegum viðskiptaháttum og siðferði.  Ég  játa alveg að hafa verið orðinn smitaður af þessum glannaskap  og  jafnvel hampað sumum af þeim sem í ljós er komið að hafa leitt okkur sem þjóð út að þann þunna ís sem við nú erum á.   Stjórnvöld eru ekki alls ekki stikkfrí  í málinu og þurfa að axla sína ábyrgð að fullu og líka þeir sem bera ábyrgð að stöðunni eins og hún er.   Auðvitað er þetta hluti af alþjóðlegri Fjármálakreppu en staðan á Íslandi er svo miklu miklu verri en annarsstaðar  af því  er virðist.   Ég ætla að vona að okkur lánist að setja þannig leikreglur fyrir framtíðina að börnin okkar geti búið sátt og sæl og að allir hafi sömu möguleika til að blómstra og  að við verðum með raunverulega löggjöf um eignarhald á fjármálastofnunum, fjölmiðlum og um hringamyndun í viðskiptum.  Köngulóarvefirnir sem búið er að spinna eru margir hverjir svo flóknir að spunameistararnir eru löngu hættir að skilja þá.

Annars hef ég það bara gott og vona að þið hafið það eins og þið viljið.

Magnús G. Whistling

 


Súpueldhús á sjávarútvegssýningu

Mér fannst Eimskipsmenn ótrúlega næmir á ástandið á nýafstaðinni sjávarútvegssýningu í Smáranum og Fífunni í Kópavogi.  Þeir settu upp súpueldhús utan við höllina og buðu núverandi, fyrrverandi og verðandi útgerðarmönnum uppá heita súpu í frostinu, þvílík snilld.  Mér hefur alltaf fundist súpueldhús vera merki kreppunnar, þar sem fólk stendur í röð og fær súpuspón, gufuna leggur upp úr pottinum í frostinu og þessari stemmningu náðu þeir alveg í Kópavogi. 

Annars fannst mér menn almennt daufir á þessari sýningu, enda mikil óvissa um framhaldið og menn einfaldlega hræddir.  Ég held að ástandið sé vissulega ótryggt og að framundan séu erfiðleikar sem ekki allir munu lifa af fjárhagslega.  Hinsvegar held ég að enginn muni svelta í hel og að "kreppan",  verði ekki eins djúp og sumir hafa spáð og að hún verði ekki eins langvinn heldur.  Ég óttast að menn tali ástandið of langt niður, á sama hátt og menn töluðu ástandið of hátt upp áður.

Ég held að við sem þjóð verðum að sýna hvað í okkur býr núna, sýna að við séum með eitt hæsta menntunarstig í heimi og hamingjusamasta þjóð í heimi um árabil.  Látum ekki þennan "fjárskjálfta" setja okkur alveg út af sporinu, honum lýkur eins og öðrum skjálftum og við náum fyrri styrk. 

Ég var að horfa á nýjan skemmtiþátt með Ragnhildi Steinunni, flottur þáttur hjá henni og Bubbi stóð sig vel að vanda.  Mér fannst hann reyndar óvenju hógvær, rólegur og auðmjúkur.   Hann er greinilega að eldast og prógrammið sem hann talar svo oft um er að virka. 

Image

 

Hafið það eins og þið viljið og munið að það lætur enginn okkur líða illa án okkar samþykkis.

Magnús G. Whistling


Þessi vika er búin að vera alveg ótrúleg

Byrjaði á Glitnismálinu og svo hefur í raun hvert stórmálið rekið annað og dagurinn í dag enginn eftirbátur hinna.  Stóryrði hafa fallið um allt og alla, glæpamenn í útrás, þjófar í stjórnarráðinu og seðlabankanum, yfirvofandi vöruskortur í verslunum og fyrirsjáanleg einangrun landsins vegna eldsneytisskorts og ég veit ekki hvað og hvað ekki.  Eru menn að ganga af göflunum hér,  öfgarnar eru svo ótrúlegar í allar áttir og sveiflan svo gífurleg að þetta hefði einhverntíma kallað á læknishjálp.  Hvað hefur eiginlega gerst í raunveruleikanum ?   skyldi það vera að spákaupmennskan og græðgin sem ráðið hefur för svo margra hafi verið stöðvuð.  Menn ætluðu að græða svo mikið, svo Hrikalega mikið á svo skömmum tíma að allar leiðir voru notaðar til að framleiða "peninga/verðmæti" með allskyns millifærslum og krosseignarhaldi og flutningi á eignarhaldi á ímynduðum verðmætum og hvað nú ?  Hvar eru öll þessi verðmæti ?  Þau  eru hvergi, vegna þess að þau voru aldrei til nema í hugum einhverra og á einhverjum pappírum sem eru verðlausir af því að það voru engin raunveruleg verðmæti á bak við pappírana. 

Það getur vel verið að það verði harkalegur samdráttur og jafnvel kreppa, sem væntanlega mun neyða okkur inní  ESB, af því að það verður eina lausnin fyrir okkur og væntanlega verður það til góða fyrir börnin okkar, sem þá fá almennar leikreglur fyrir framtíðina, en ekki það gríðarlega óöryggi sem fylgir "setöppinu" sem við búum við í dag.   Eitt finnst mér hafa komið svo skírt í gegn þessa daga og það er hvernig viðskiptasiðferðið er orðið og ég held að þessi "tilbúna" kreppa sé tilkomin vegna þess lága siðferðis sem ríkir orðið í viðskiptum.  Græðgi og Óþolinmæðin eru svo mikil að menn svífast einskis til að græða sem mest, hvernig sem þeir fara að því og árangurinn er fyrir framan okkur, ástandið eins og það er í dag.  Auðvitað er ég ekki að alhæfa hér og sem betur fer eru ennþá grandvarir, þolinmóðir og heiðarlegir menn og konur ennþá í viðskiptum og á þeim munum við fljóta í gegnum þessa brotsjói sem framundan eru.

Ef  þetta ástand verður til þess að það verði hreinsun, þá verður það ekki til einskis.

Ég  heyrði einhversstaðar í gær eða dag að hugsanlega fengjum við aðstoð með gjaldeyri frá Rússum, hver ætli sé að "plögga" það,  kannski Davíð ??

Hafið það eins og þið viljið um helgina 

Magnús G. Wizard

P.S. og ég sem ætlaði aldrei að blogga um neitt annað en skemmtilega hluti, Já svona er lífið !!!!

Þetta tígrisdýr hér fyrir neðan er ALVÖRU  en einhverntíma voru spákaupmennirnir kallaðir "pappírstígrisdýr"

Bengal tígrisdýr


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband