Íshokkí er íþrótt sem ég er kynnast

þessa dagana í gegnum yngri son minn sem er byrjaður að æfa aftur með SR (Skautafélagi Reykjavíkur).  Nú um helgina er mót og hefur þeim í 5 flokki  B  gengið mjög vel, unnið 2 leiki og gert einn jafntefli.   Næsti leikur verður kl 0730 í fyrramálið (þetta er náttúrulega íþrótt fyrir töffara og þessvegna mæta menn á þessum tíma),  mæting kl. 0700  og  ekki veitir af til að klæða sig í allar brynjurnar og varnarbúnaðinn.  Ég er aðeins að byrja að skilja íshokkí  og reglurnar sem þeir spila eftir.  Þetta er náttúrulega eins og allar keppnisíþróttir mjög spennandi. 

Smelli inn mynd af drengnum í gallanum ..

Hafið það annars eins og þið viljið

Magnús G. Cool

  ÍSHOKKÍ MÓT NÓV. 2008 017


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Life will never be the same...!!

ein spurning......... eiga gallarnir að vera svona stórir?

Life will never be the same...!!, 16.11.2008 kl. 13:22

2 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Ég held hann sé bara í passlegum galla, þannig að gallinn er ekkert of stór, hann er bara svona mikill,  enda eru gæjarnirnir í brynjum innanundir og með olnbogahlífar og hné legghlífar og fyrir bragðið verða þeir helvíti massaðir að sjá.  

Magnús Guðjónsson, 16.11.2008 kl. 16:53

3 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Flottur karlinn

Solveig Friðriksdóttir, 16.11.2008 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband