Frábær dagur að kveldi kominn..

ég er búinn eiga frábæran dag,  fór á fund í morgun og í hádeginu fékk ég  afmælissönginn frá ca. 100 manns á  Grand Hótel,  takk fyrir það kæru vinir..  Fór svo á einhverja mögnuðustu Sportráðstefnu sem haldin hefur verið á Íslandi fyrr og síðar með ca. 1000 manns í stóra salnum í Háskólabíó,  þar sme afreksmenn í íþróttum og venjulegt fólk sagði okkur hvernig við getum látið drauma okkar um betra líf rætast.   Luigi Gratton  næringarráðgjafi  LA Galaxy,  liðið hans Beckham,  gaf okkur góð  ráð og  vinkona mín hún Else Lautala sem er 3 faldur heimsmeistari í fitness sagði okkur hvernig hún æfir og nærir sig. 

Í kvöld fór ég svo út að borða með börnunum mínum, Helgu barnsmóður minni og fjölskyldu Steinars tengdasonar míns og  áttum við frábært kvöld saman.  

Dagurinn fyrir mig var fullkominn og  það er örugglega enginn þakklátari en ég fyrir þessa glæsilegu Sportráðstefnu í dag,  sem er afsprengi af lítilli hugmynd sem fór í loftið í byrjun ársins 2007. 

Þetta var ein af afmælisgjöfunum sem ég fékk í  dag..

http://www.herbalife-h3opro.com/is/

Hafið það eins og þið viljið.

Magnús G. Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir gærdaginn pabbi minn :)

Æðislega skemmtilegur dagur og best er hvað þú skemmtir þér vel ;)

Sigrún Ásta (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 08:28

2 Smámynd: Fríða Bára Magnúsdóttir

Til hamingju með daginn

Fríða Bára Magnúsdóttir, 22.9.2008 kl. 09:23

3 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Takk fyrir samveruna þessa mögnuðu helgi.

Solveig Friðriksdóttir, 22.9.2008 kl. 14:23

4 identicon

Hæ frændi til hamingju með daginn í gær....

Kveðja Ásdís og Jóhannes Árni.

Ásdís frænka (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband