Tölvupósturinn....annar hluti.....

Litlar  breytingar hafa  orðið  á  og þó  tölvupósturinn  kemur  ekki  alveg  eins oft  og á  tímabili,  kannski að  hann hafi lent  í  veðrinu og  honum gangi illa  að berjast  á  móti rokinu sem skekur  allt  og  feykir öllu um koll þessa  stundina.   Það er bara  ágætt í  logninu og  27 gráðunum hér á meðan þetta gengur yfir Ísland..  En  Tölvupósts  dramað   er búið að fá  Málsnúmer  hjá  hýsi  sendandans  og  var það staðfest við mig með tölvupósti  í  morgun...   Ég  róaðist rosalega  við að þetta  er komið  með  málsnúmer  og  að  það á að fara að vinna í málinu og ég  sem hélt að  það væri  bara  skrifræði  hér í  Afríku..  en ég  er bjartsýnn  að  eðlisfari og  stóra fyrirtækið  fær að njóta  vafans  alveg þar til  þolinmæðin brestur eða  þeir bara klára sig af málinu..   Skrámur er mér  ennþá  hugleikinn...  meira  seinna ................

Hafið það eins og þið viljið

Magnús G.  Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æji ég er svo glöð að þú ert búinn að fá málsnúmer

Vala (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 15:16

2 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Ekki bara  málsnúmer   það var meira að segja  Case Number  á  ensku sko  þannig að þetta var nú  ekkert smá  töffaralegt.  En  það nöturlega er nú samt  að pósturinn heldur áfram að koma  og ég er farinn að halda að sá sem fékk upplýsingarnar hjá stóra fyrirtækinu  skilji ekki ensku og  viti þessvegna  ekki að Case Number er  Málsnúmer  og  hafi þess vegna  ekkert gert í málinu annað en að leggja til að meilnum sé eytt úr tölvu  sendandans.   Næst byðja þeir sennilega um að  tölvunni verði  eytt  bara svona til öryggis.   Ótrúlegt  mál  og  virðist bara ekki ætla að taka  nokkurn enda.. Sagan  hans  Skráms  er  bara að  verða djók hjá  þessum  ósköpum....    Hafðu það annars eins og þú vilt....

Magnús G.

Magnús Guðjónsson, 14.12.2007 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband