París Afmæli Agadir !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Jæja  þá  er maður kominn heim  aftur,  já  heim til Laayoune.   Það  er í  raun  ótrúlegt  hvað  það er alltaf gott að koma heim,  hvar  svo  sem það er á  hverjum tíma..  Ég  var í  viku  í  burtu,  fyrst  nokkra  daga í  París,  fór  þangað  á  miðvikudaginn fyrir viku,  hundveikur af flensu og  ég  lá eiginlega  í rúminu fyrsta  sólarhringinn,  sem var  í raun bara ágætt,  fékk fína hvíld líka útúr því.. Ég  var  á  alveg ótrúlegu  hóteli sem heitir Bellechasse  og  hér  fyrir  neðan  er krækjan á hótelið  http://www.lebellechasse.com/introduction_fr.php  sem er  náttúrulega  bara  ótrúleg upplífun að gista.. 

Á  afmælisdaginn  fór  ég  á  eitthvert  flottasta  veitingahús sem ég hef komið á,  þ.e.a.s. maturinn og þjónustan.  Af  10 mögulegum  fékk  maturinn  11  og  þjónustan 12,  nei nei  ég er ekkert  með sólsting,  þetta var bara svona  frábært.  Veitingahúsið er í eigu  Hélen  Darroze  sem  er  einhver  allra  besti  matreiðslumaður evrópu  í dag.  Þetta  var í  raun  bara  upplifun að borða  þarna og  ég get  mælt með þessu við hvern sem er,   Frábært  veitingahús..  www.relaischateaux.com/fr/search-book/hotel-restaurant/darroze/

Auk þessa  borðaði ég  á  elsta  veitingahúsinu í  París  og  öðru  frægu  Dúfna veitingahúsi  sem  ég  get líka  mælt  með  sem ágætu veitingahúsi  með  ágætri þjónustu..  en  allt  um mat.. það var  enginn skortur á  honum í París..  Að öðru  leyti  var París  frábær  að vanda,  veðrið  yndælt  sól og  22-25  gráður alla dagana, frábært gönguveður enda  gekk ég  mikið um París  og  kynntist fullt af nýjum  hliðum á henni í  þessari ferð..  Frábært  afmæli og  frábær  Parísarferð  í  frábærum félagsskap..  Ég  flaug  svo  til  Agadir  á  sunnudaginn  þar  sem ég  þurfti  að sýsla  nokkur mál  á  mánudag og þriðjudag  og  kom  svo  heim í  gærkvöldi..   Ég  kynntist  alveg  nýrri hlið  á  Ramadan  í  Agadir þar  sem ég  átti  fund (já viðskiptafund)  mjög  seint  að  deginum  og  ég  verð að segja  að  mér  leist strax frekar illa  á    þetta  því  mér  fannst  sá  sem ég var að  hitta frekar  ör  og  óstöðugur,  enda kom  á  daginn að hann missti alveg  stjórn á  sér og  kallaði  mig  öllum illum nöfnum og  hótaði mér  öllu illu og  sagði mér svo að fara  til   þið vitið,  pakkaði saman stóð upp og fór..  Allt  þetta upphlaup  af því að ég  stóð bara á  okkar óskum í  samnigunum..  Um  kvöldið  var mér svo boðið í  eina af þessum frábæru  Marokósku veislum  þar  sem troðið er í  mann  mat  þangað til maður er  orðinn fullur af mat...í  orðsins fyllstu merkingu.. Ég  fór  að ræða  uppákomu dagsins  við  félaga  minn  og  sagði  honum að mér  þætti  svona  frekar leiðinlegt að  hafa  svo áhrif  á  þennan viðsemjanda okkar að hann þyrfti  að grípa  í  þennan orðaforða  sem hann notaði,  hann sagði Magnus þú verður að  skilja  að það er RAMADAN   og þá   mega  menn segja  allt  sem þeim  dettur  í hug  og  svo  bara afsaka menn það með Ramadan..   Já  en,,,,,,  það  er  ekkert já  en  í þessu,   þetta  bara er  svona  og  þú verður bara að  lifa við það...  OK   sagði ég  og  ætla bara  að lifa  við  þetta, get  ekki  annað í  stöðunni,  enda alltí  lagi... 

Franskan  mín  er  alltaf  að  verða  betri og betri  og nú er alveg að byrja  tími og  ég  hlakka til að mæta í skólann  og  ég  er ánægður með kennarann minn..

Ég  skal svo  reyna að vera  duglegri að blogga á  næstunni, allavega  þangað til ég  fer til Íslands  á  hitt heimilið  mitt í Kópavogi eftir ca.  3 vikur ..  

Svo vil  þakka öllum fyrir  að heimsækja  síðuna mína  ég  er ferlega stoltur af þvi hvað  margir  heimsækja  síðuna mína  og  sumir  skamma mig fyrir  að blogga  ekki meira,  einhverjir hafa þá gaman af þessu  bulli  í mér.. 

Hafið það eins og þið viljið,  hér er sól og blíða,   SORRY  ætlaði ekki að segja  þetta 

Myndirnar eru  af stiganum uppí  Sigurbogann  og af  Listakonu á  Signubökkum  og ég keypti af henni vatnslitamynd, mjög  flotta  af húshluta sem stendur á árbakkanum..

Sjáumust  París 2007 ofl. 111 París 2007 ofl. 086

Magnús G.. Sick


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyþór Árnason

Að vera staddur í París á afmælisdaginn, það er ekkert slor! Til hamingju með daginn kallinn minn. Kveðja.

Eyþór Árnason, 26.9.2007 kl. 21:35

2 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Já  ég  skal segja þér það Eyþór að ég  get mælt  með þessu fyrir unga menn eins og okkur og  þakka þér fyrir kveðjurnar.  þú  kannski  skilar  fyrir mig kveðju  norður í  Skagafjörð,  ég  hef  því  miður ekki haft  tíma til að koma  þar  við á  þessu ári .. 

Best kveðjur

Magnús Guðjónsson, 26.9.2007 kl. 23:26

3 identicon

hæ hæ gaman að sjá að þú hlustir á það sem mar er að segja við þig en ein spurning kynntistu nýrri hlið á París eða?

hlakka til að vakna í fyrramálið og lesa nýtt blogg góðar kveðjur til þín

kv þórdís

þórdís (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 00:15

4 identicon

  • Bíddu,bíddu ert þú alltaf að éta (borða) þarna úti, er ekki nóg fyrir þig að gleypa þessar helv... herba...pillur ha ... Ég tek eftir að þú ert alltaf að segja frá góðu veðri, en ein spurning af hverju ert þú svona hvítur skrítið ha..
  • Ég hitti G.Vald. í gær, hann var í heimsókn fyrir vestan með framsóknargenginu Magga Stef. og fleirum. Ég sagði  honum að kíkja inn á bloggið þitt, hann þóttist ætla að gera það.
  • Ææii það er bara frábært að þér líður svona vel úti Maggi minn og allt gangi vel hjá þér.
  • Ég mátti til í að stríða þér aðeins þú veist hvað ég alltaf prúð og stillt !!!
  • Bið að heilsa þér kallinn minn og Ási minn líka !!
  • Sjúbbídú Magga bloggar krúttlegast

Margrét G.Scheving (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 23:38

5 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Halló  Halló,  hvað  ertu  nú  að skipta  þér af þvi  hvernig ég er á  litinn,  ég  er bara eins og ég hef  alltaf  verið  hvítur  og  saklaus.  Skipti  ekkert  litum efitir  því  hvar  ég er í heiminum..  manstu að  þessar  helv.  herba  pillur gera það að verkum að maður getur borðað  næstum allt  án  vandræða..  annars  takk fyrir  að fylgjast með mér  kæra  bekkjarsystir,  hlakka til að hitta þig þegar þú  verður búin  að skipuleggja  hitting  í Reykjavík í Nóvember ...  fyrir SVS  1982. 

MBK  (Magg  bloggar krúttlegast)  sjúbbídú  og  passaðu svo að  fjúka  ekki á  haf  út  í  brælunni fyrir  vestan  ...

Hafðu það eins og þú  vilt......

MG 

Magnús Guðjónsson, 28.9.2007 kl. 00:13

6 identicon

  •  Váá maður er bara hræddur ! Bara kjaftur á kalli !
  •  Það væri nú bara gargandi snilld að hittast í nóvember....díses...
  • Hafðu það gott elsku kallinn minn og njóttu sólarinnar með vörn nr.60 mundu það svo þú brennir ekki ! He! He!
  • mbk.Magga Scheving  

Margrét G. Scheving (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband