Ekki grunaði mig að

Nýja Kaupþing stæði svona tæpt, að það gæti bara hugsanlega fellt þá að viðskiptvinir gamla SPRON myndu vilja fara yfir í annan banka.  Staðan er greinilega tæpari en forysturmenn í Ríkisstjórninni hafa viljað láta í ljós í aðdraganda kosninga. 
mbl.is Óttast áhlaup á Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Já Magnús, þetta virðist vera mjög tæpt

Jón Snæbjörnsson, 6.4.2009 kl. 10:57

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þetta eru stórmerkilegar upplýsingar og umhugsunarefni fyrir alla viðskiptavini Nýja Kaupþings, hvort heldur þeir voru fluttir nauðungarflutningum eða eru þar að eigin ósk.

Marinó G. Njálsson, 6.4.2009 kl. 10:58

3 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Stefán minn, ég stunda enga ritskoðun, en því miður þurfti ég að loka fyrir frjálsar athugasemdir inná síðuna mína á síðasta ári.  Ástæðan var sú að andlega vanheill maður nýtti sér þessa síðu til að koma óorði á fólk sem ekki tengdist síðunni á nokkurn hátt og bar enga ábyrgð á henni.  Þetta er einungis varúðarráðsstöfun til verja ekki síst umræddan einstakling.  Ég geri ráð fyrir að þú hafir skilning á þessu..

Magnús Guðjónsson, 6.4.2009 kl. 11:16

4 Smámynd: Eyþór Eðvarðsson í Vilnius

Ef ég skil þetta mál rétt, þá tekur ríkið (Nýja Kaupþing) yfir skyldur SPRON gagnvart viðskiptavinum SPRON, alls 83 milljarða. Líklega gerði enginn ráð fyrir því að þeir þyrftu að fara að greiða út hugsanlega fleiri milljarða af því fé, til baka inn í SPRON svo fljótt.
Ekki  veit ég heldur hvað bönkunum hefur verið lagt til mikið fé af hendi ríkisins, en ekki þykir mér ólíklegt að þær fjárhæðir sem Nýja Kaupþing er ábyrgt fyrir gagnvart viðskiptavinum SPRON gangi hratt á lausafé Nýja Kaupþings ef viðskiptavinir SPRON kjósa að færa sig til baka.

Ég hélt að fólk almennt gerði sér grein fyrir því að staða nýju bankanna er ekki sterk. Annað kæmi á óvart. Hér er verið að bjarga því sem bjargað verður og eflaust lítið meir að sinni.

En hitt er mér óskiljanlegt að Finnur Sveinbjörnsson, sem setti ICEBANK á hausinn í góðærinu skuli vera bankastjóri Nýja Kaupþings og nú þar með ICEBANK. Kannski vegna þess að hann er mágur Ingibjargar Sólrúnar.
Athyglisvert væri að fá vitneskju um það hvernig að ráðningu hans var staðið..

Eyþór Eðvarðsson í Vilnius, 6.4.2009 kl. 18:20

5 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Ég hélt nú Eyþór að nýju bankarnir störfuðu eftir lögum um lausafé og ríkissjóður hlýtur að tryggja bönkunum nægt lausafé í gegnum Seðlabankann.  83 milljaðar er nú ekki stórar upphæðir í þessu samhengi öllu saman.  Það er held ég flestum ljóst að nýju bankarnir standa á brauðfótum alla vega ennþá, hvað sem verður í framtíðinni  og auðvitað verða menn að fara að gera eitthvað fleira við þessa banka á næstu dögum og vikum annað en að vera einhverjar greiðslumiðlanir fyrir smásöluverslunina í landinu.  Það verður að efla bankana  og koma þeim í að vinna fyrir fólk og fyrirtæki í landinu,  þannig að þessir þúsundir starfsmanna nýtist í eitthvað af viti .. 

Magnús Guðjónsson, 8.4.2009 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband