13. september

Talan 13 hefur alltaf  verið í einhverju uppáhaldi hjá mér,  ég veit eiginlega ekki af hverju en það skiptir engu máli,  hún er bara í uppáhaldi.  Í  dag  reikar hugurinn til systur minnar  sem er að ná þeim merka áfanga að verða 50 ára  í dag,  innilega til hamingju með daginn  kæra  Svanhvít,  ég  skil  ekkert í þér að þú skulir ekki halda veislu.  Í  dag  reikar líka hugurinn austur á Tannastaðatanga víð Ölfusá, þar sem  ég var við veiðar með föður mínum fyrir 22 árum síðan og hann féll snögglega frá,  fékk hjartaáfall eftir að hafa verið búinn að setja í 3 laxa í beit.   Það er nú varla hægt að hugsa sér að fara við betri aðstæður.  Blessuð sé minning hans.   

Ég  var  svo heppinn i fyrrakvöld að ætla í bíó og fór inná netið að kíkja á hvaða myndir væru í boði og endaði á því að kaupa mér 2 miða á tónleika með Herði Torfa.   Ég er búinn að vera hrifinn að söngvunum hans Harðar í áratugi og oft hef ég ætlað á tónleika með honum.  Nú gerðist það og tónleikarnir voru í einu orði sagt  frábærir.  

Í dag er Hollvinadagur Bifrastar, Samvinnuskólans og það verður ball með Upplyftingu á Bifröst í kvöld,  ég á margar góðar minnigar frá Bifrastarárunum og ætli ég skelli mér ekki bara uppí Bifröst  seinnipartinn og upplifi eitthvað af þeirri frábæru stemmningu sem var í Bifröst.  vona bara að Magga Scheving mæti. 

Breiðablik á spila í dag við Fram og vonandi vinna okkar menn og tryggja sig nokkuð nálægt toppnum þetta árið,  annars  fer nú alveg að koma að því að Breiðablik þurfa að vinna annaðhvort Íslandsmeistartitil og eða  Bikarinn,  þetta er allt of gott lið  til að hafa aldrei unnið titil. 

Áfram Breiðablik

Hafið það eins og þið viljið um helgina..

Magnús G.  Halo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll og blessaður   Ég var á hælinu í eina viku og var að koma heim í dag :) Ég var í endurkomu hjá þeim til þess að fara yfir stöðuna hjá mér eftir slysið, mín er bara góð, búin að synda 8 km. þessa vikuna ganga 40 km. Hörkunagli hún Magga :) Ég hefði sko alveg viljað að vera upp á Bifröst og dansa af mér rass..... Mættu margir af okkar fólki ? Það er allt frábært að frétta hjá mér og ég er alltaf glöð í MÍNU HJARTA :) Hafðu það gott Maggi minn    

Magga skólasystir þín :) (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband