Ísland best í heimi

Á dauða  mínum átti ég von en að ég táraðist af gleði yfir gengi Strákanna okkar á Olympíuleikunum,  ótrúlegt lið og  eins og ég sagði um daginn eftir leikinn við pólverja,  þá  hef ég ekki miklar áhyggjur af Spánverjum.  Eg  hef heldur ekki miklar áhyggjur af  leiknum við Frakka,  við  kunnum alveg að vinna þá og við munum vinna  þá  á  sunnudagsmorguninn, sannfærandi.  Samspil þjálfarans og  aðstoðarmanna hans, svo og trú  fyrirliðans á  þessum strákum,  hvatningin og samheldnin sýna  okkur hvað hægt er að gera,  þegar  rétt er að málum staðið.   Enn og aftur til hamingju allir  Íslendingar og  Strákar  takk fyrir að  þetta jákvæða  innlegg  í  þjóðarbúskapinn. 

Hreinar línur í  handboltanum og  ég hef fengið hreinar línur  á fleiri stöðum í  vikunni.   Það  er gott að  hafa hreinar línur í  lífinu,  ekki  vera að velta sér uppúr einhverju;  efa mundi,  efa sé,  efa mundi vaxa epli á hverju  tré,  ástandi.   Ég  er  miklu meira  fyrir hreinar línur og  er  í raun þakklátur fyrir  að hafa  fengið  þær.   Þá  veit  maður hvar maður stendur gagnvart  fólki og  getur hagað sér í samræmi  við  það. 

Framundan hjá mér eru nokkur þétt verkefni sem ég þarf að  vaða  í  og sem betur fer er ég ágætlega undirbúinn bæði líkamlega og andlega  og  ég ætla eins og landsliðið  í  handbolta,  alla leið, það kann að vera að ég tapi einum og einum leik á leiðinni en það er ekki það sem skiptir máli, að tapa aldrei, heldur hvernig þú stendur upp eftir hvert tap og heldur áfram.

Ég  hlakka hrikalega til  sunnudagmorgunsins  og  hafið það eins og þið viljið þangað til.

Magnús G. Cool

stundum þarf maður að hvíla sig á bekk í löngum hjólatúrum.

HR á Hjólinu 010


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll elsku kallinn minn !  Voðalega er langt síðan að ég hef kíkt inn á síðuna þína   Ég les það að það er búið að vera nóg að gera hjá þér í sumar, algjör útivistarfíkill.  Frétti af þér á Ungl.landsmótinu við vorum þar, Óttar okkar 12 ára var að keppa í fótbolta og skák, sem að gekk mjög vel.  Svo urðu þeir í 2.sæti í 5.flokki á Ísl.mótinu í fótbolta.  Af mér og mínum er allt gott að frétta, Ási og Friðbjörn eru að veiða í Miðfj.á núna og fara held ég aftur í hana í sept. Þú hefðir frekar átt að koma til mín í kaffi, þegar að þú fórst í Lýsuvötnin, ég hefði SKO örugglega bakað stóra HNALLÞÓRU með miklum rjóma og alles....ummm.... Jæja, Maggi minn ég mátti til með að kasta á þig kveðju, vonandi hittumst við fljótlega elsku dúllan mín :) 

P.s. Bíddu, bíddu, ég gleymdi einu til hamingju með fótboltadrenginn þinn, flott hjá þeim :)   Hann hefur þessa fótboltahæfileika ekki frá þér er það ?? smá púki í mér hehe !!

Magga skólasystir þín :) (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 22:55

2 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Takk fyrir heimsóknina  Magga mín,  alltaf  hressilegt að heyra í þér,  alveg gæti ég hugsað mér að vera í Miðfjarðaránni núna   en  ekki í boði  þetta árið.   Fótboltagenin  í  drengnum eru auðvitað frá mér  sástu mig aldrei á takkaskónum  ????   ´Njóttu lífsins og haltu áfram að vera eins og þú  ert,  það  fer  þér vel..

Þið  stelpurnar eigið að skipuleggja hitting í hádeginu í  haust, klára nú  það  mál  .....

Verðum í sambandi..

Magnús Guðjónsson, 23.8.2008 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband