Kominn heim í Kópavog..

Shellmótið að baki,  okkar  menn þ.e.a.s.  Breiðablik 1  lenti í 4 sæti  mótsins  og þeir  töpuðu  bara  einum leik  af 10 sem þeir  spiluðu,  gerðu  3  jafntefli  og  unnu  6  leiki.   Frábær  árangur.   Þessir  dagar í  Vestmannaeyjum  voru  ákaflega  gefandi og  skemmtilegir.   Nú  tekur  við  nýtt  tímabil  hjá  mér  frá og  með  morgundeginum..  Fríið  sem ég ætlaði  mér  alltaf að  vera  í  í  einn mánuð  er  nú  á  enda  og alvara  lífsins  tekur við.    Ég  er  enn  að  vandræðast  með  doða  í  vinstri  hendinni  sem  háir mér  töluvert  sérstaklega á  lyklaborðinu á tölvunni og við  allar  fínhreyfingar.  

Það  eru  tvö  gullkorn  sem  eru  mér  ofarlega í  huga  þessa  dagana  og  þau  eru; 

"Þú  verður að læra  þá  erfiðu lexíu lífsins, að ekki munu allir  óska þér góðs  (Dan Rather)  og svo; 

"Okkar stærsta stund er ekki að  tapa  aldrei, heldur að rísa upp eftir hvern ósigur.  (Confusius)

 Hafið  það  eins og þið  viljið 

Magnús G.  Tounge

Hvað  gerir maður ekki fyrir  knattspyrnumenn ?

Þjónusta í lagi

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Flottir strákar, til lukku með fótboltagarpinn þinn.  Takk fyrir síðast, kveðjur að austan

Solveig Friðriksdóttir, 2.7.2008 kl. 13:45

2 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Takk fyrir góðar  kveðjur Solla  og  bestu  kveðjur í  Fjarðarbyggð  hina  syðstu......

Magnús Guðjónsson, 2.7.2008 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband