Hjólað heim.....

Dagur 1.

Kominn á  Djúpavog  eftir  fyrsta  legg á  leiðinni  heim.  Það  gekk  ljómandi  vel í  dag,  lagði í hann kl.  1150 frá  Búðum  í  Fáskrúðsfirði  og  fór  á  Stöðvarfjörð  í  einni  lotu.  Hvíldi í  korter  og  hélt svo  áfram  sem leið lá  um Breiðdalinn og  suður í  Berufjörð..  100  km  lágu  í  dag  og  engin óhöpp eða óvæntar uppákomur  á leiðinni..  Náttúran  skartar sínu  fegursta og  maður  sér  náttúruna,  gróðurinn, lækina, fossana, fuglana  og  fegurð og mikilleik  fjallanna.   Fínn  dagur    kveldi kominn  og  ég  fer  að leggjast  til hvílu í litla  Gula tjaldinu mínu  sem  rúmar  mig  og  mig .. 

Dagur 2.

Fór af  stað  um 10 leytið  og hjólaði sem leið    yfir á Höfn og  kom þangað  um  2130  107  km  á  mæli,  veður  gott en  smá  vindur á köflum sem tafði mig  um eina 2  tíma.  Gist á tjaldsvæðinu á Höfn í  flottu  veðri..  Enn  í  nokkuð  góðu  formi  en  smá  doði í  vinstri hendinni  eftir  daginn..

Dagur 3.

Fór  frá  Höfn  um  11 leytið og  hjólaði í  vesturátt  án  þess að  hafa  ákveðinn  næturstað  í  huga,  endaði  á  Hótel Freysnesi  um   0030  eftir  135  km  vegalengd og  helvíti  var  gott að  taka bara  herbergi  í  nótt   enda  rigning  þegar ég  kom  þangað  og  ég  hefði  örugglega  ekki getað  tjaldað  vegna  doða  í  vinstri  hendinni  sem  hefur  aukist nokkuð  mikið..  Ég  var  heppinn  í  gær      vera  hreinlega  ekki drepinn,  fékk  bíl á  móti mér  rétt vestan  við  Smyrlabjörg  og  hann stefndi  bara  beint  á  mig  og  ég  alveg úti í  kanti mín megin.  Ég  held að bílsstjórinn hljóti að hafa sofnað  eða  verið í annarlegu ástandi,  þetta  er  það  svartasta  sem ég hef  séð  á  öllum þessu hjólaferðum mínum  og  ég var  ansi lengi að jafna mig  á  þessari  uppákomu.  Annars  hef  ég það  fínt    öðru leyti en  höndin  ergir  mig  mikið,  á mjög  erfitt með    t.d.  skrifa  vegna  doða í  2  fingrum og  smá stjórnleysi  á  höndinni,  sennilega  klemmt  taug,  sem  jafnar  sig  aftur .

Fróður  maður  sagði  mér að ég væri hálfnaður  til  Reykjavíkur  frá  Fáskrúðsfirði hér  í  Freysnesi

Ég ætla  að leggja í hann um 12  leytið  og  fara vonandi  á Klaustur  í næsta  legg.

 

Hafið  það  eins og þið  viljið  

Magnús G  í  Freysnesi  Whistling

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá frábært hjá þér Magnús. Kraftur í kallinum :)

Inga Rós (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 13:09

2 identicon

Þú ert hetjan mín

Eins gott að ísbjörninn er hinummegin á landinu. fjúff

hafðu nú samt augun opin, aldrei að vita hvort það séu fleiri.....

Sigrún Ásta (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 14:50

3 Smámynd: Eyþór Árnason

Flott hjá þér og góða ferð áfram. Fyrst það eru ísbirnir fyrir norðan þá er aldrei að vita nema þú rekist á tröllskessur við Lómagnúp!

Eyþór Árnason, 16.6.2008 kl. 23:09

4 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Takk fyrir  þessar  góðu  kveðjur  og  já  mikið  ísbjarnarfár  á  skaga,  ég  var nú  reyndar að hjóla fyrir 3 árum  á svæði  ísbjörns  nr. 1  í  skagafirði  þetta árið.  Ég  hefði nú  ekki  viljað  fá  handtak  frá  honum  blessuðum.  Annars  hefur  þetta gengið  vel  hjá  mér  og  Tröllskessan  í  Lómagnúpi  blés  mér  vestur á  Klaustur í  gær..  og bað  að heilsa þér  Eyþór. 

Hafið það svo eins og þið viljið á  þjóðhátiðardaginn  í  dag...

MG

Magnús Guðjónsson, 17.6.2008 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband