Páskadagur eins og hann á að vera.

Nú  er  þessi  frábæri  páskadagur að  kveldi  kominn  og  hann hefur verið mér afar góður.. Við  Hákon fórum í mat  til Mömmu  í  hádeginu (frábært  hjá  henni að bjóða okkur)  síðan  fór Hákon á Players  með  stóra  bróður að  horfa  á  Arsenal  tapa  fyrir  Chelsea  og  við  töpuðum  víst  líka  fyrr  í  dag fyrir  Man Utd.  þetta  er  kannski það  eins sem hefði mátt vera  allt  öðruvísi.  Ég  tók  fram  hjólið  mitt og  hentist  einn    klukkutímahring  í rigningunni  og  mikið  var það hressandi og  gaman  að  fara aftur út að hjóla.   Ég  fékk svo öll  börnin  mín í  mat til  mín í kvöld  og miðað við hvað  þau  borðuðu  mikið  þá  held ég að  eldunin á Gourmet lærinu  frá  Goða  gamla hafi  tekist vel.   Það  var  virkilega gaman að fá  öll  börnin  hingað  í  mat, og  þetta þarf ég að gera oftar  og heiti  því  hér með að gera það.   

Ég  vil  nota tækifærið og óska  öllum gleðilegra páska 

Hafið það eins og þið  viljið

Magnús G. Wink

í TUNGUDAL Smá


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Gleðilega páskarest karlinn   Nú er allt að komast í gang eftir dásamlegt frí og góða hleðslu á batteríin.

Solveig Friðriksdóttir, 24.3.2008 kl. 13:17

2 identicon

I´ll hold you to it ;)

Sigrún Ásta (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 14:43

3 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Sömuleiðis  Solla  og  bestu kveðjur á á slóðir Rótanna  í  Stöðvarfirði...  Sigrún mín stattu þig svo  í að  halda  gamla  manninum við efnið  með  matarboðin.

Hafið það svo eins og þið viljið..

Magnús Guðjónsson, 24.3.2008 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband