Markmið, til hvers að setja sér markmið ?

Mér  er  eitthvað  svo  hugleikið  þetta með  markmiðin  þessa  dagana,  kannski af  því að  ég er ekki búinn að klára  að  setja  upp markmiðin  mín  fyrir árið  2008.  Undanfarin  ár  hef  ég  sett mér  skýr  og  skriflega  markmið  um flesta  hluti,  heilsuna,  fjölskylduna, fjárhaginn ofl. ofl  og  ég  verð  að segja að þetta  hefur breytt ótrúlega miklu  fyrir mig.    Það  er  skemmtilegt hvað margir  eru farnir að gera  þetta  og  ná  þannig  fram  meiri  lífsgæðum fyrir  sig og sína.   Sagan segir að  u.m.þ.b.  4 %  jarðarbúa  setji  sér markmið  og  hin  96 %  vinni  svo hörðum höndum að  því að þessi 4%  nái  sínum markmiðum.   Máltækið  segir að  þeir  sem ekki setja  sér  markmið,   eru dæmdir  til að vinna  fyrir þá  sem  setja sér markmið. 

Málið  er  ekkert  flókið,  við  eigum val,  val um að vera  í  4%  hópnum eða  hinum  hópnum.   Annars  höfum við það  bara  gott  ég og strákarnir  Hákon og  Darri  sem  er í  gistingu hjá okkur núna,   Harry  Potter  æði  er  að  ganga yfir hér  hjá  okkur, bækurnar lesnar  og  myndirnar  skoðaðar  og  mikill  tími  fer í Harry  þessa  dagana.    Verð  aðeins  að  minnast á Skype´ið  þetta  undrakerfi  sem  gerir  okkur  nútímafólki  kleift að  vera í  sambandi  fyrir  mjög  lítinn tilkostnað.   Ég var að koma úr  fjölsímtali  við  tvo  gamla og góða  vini  til  margra  ára,  annar  býr  í  Canada og  hinn austur á  héraði og  við  vorum allir  inni  í  einu,  frábært  kerfi skype. 

Febrúar  byrjar  vel  og  ég hlakka til að takast á við mörg  krefjandi  verkefni sem  bíða  mín   og  ég er alveg  viss  um að Febrúar  verður mér góður  mánuður...

Hafið það eins og þið viljið og munið eftir markmiðunum..

Magnús G.  Whistling

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Já það geri ég svo sannarlega og man líka að vinna í átt að þeim, ekki má gleyma því. Ég ætla sko að vera með 4% ekki spurning enda allt að gerast eins og sagt er. Það var mikið gott að hitta þig á Kikk off deginum og þú hlýtur nú að vera stoltur með downlínurnar þínar, besta mætingin (fyrir utan ættmóðurina). Ég er stolt í það minnsta.

Solveig Friðriksdóttir, 4.2.2008 kl. 15:53

2 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Ég  var  rosalega stoltur af ykkur sem  mættuð  og  er stoltur af  öllum þeim sem ég  hef verið svo  heppinn að hafa  þau  áhrif  á,  að  í dag   er  líf þeirra betra  eftir en áður.   Við  skulum nú  bara  halda  þessari  stöðu í  HM grúppunni og vera  stolt saman.

Hafðu það svo eins og  þú vilt....

Magnús Guðjónsson, 5.2.2008 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband