Fluttur í Ásakórinn............................

Jæja  jæja  þá  er ég  fluttur í  Ásakór  9  íbúð  303,  kominn  með  símann og  netið og  og  kössunum fækkar á  gólfinu.   Ég  get  nú  bara  ekki minnst á  þessa flutninga án þess að  þakka  börnunum mínum   öllum  fyrir hjálpina,   Hákoni  fyrir  burð og  kannski sérstaklega  fyrir að vera góður á  meðan á öllum hamaganginum   stóð.   Sigrún  Ásta,  vann  með  mér  alla helginu eins og  SLEGGJA  Í  HELV'ITI og  hún  fær frábærar þakkir  fyrir fórnfýsi og  dugnað.    Steinar tengdasonur fær  frábærar þakkir  fyrir  allan burðinn  og  hjálpina.  Friðjón   Kristjánsson  fyrir burðinn á  borðinu og  þunguhlutunum á  laugardaginn  og  Guðjón  Már  fyrir hjálpina við að koma öllu á  sinn  stað innandyra,  en hann átti  ekki mikið heimangengt um helgina vegna  vinnu.  Víð  Hákon sváfum hér  á  Laugardaginn  og  við  sváfum  mjög  vel   og  okkur  dreymdi  ekkert  sem mér er sagt að sé  betra en að dreyma eitthvað slæmt..  Íbúðin er  mjög  skemmtileg   og  ég er  mjög  ánægður  með  íbúðina  og  staðinn, svona  í  jaðri  bæjarins  og  stutt í náttúruna.   Það  er  gott útsýni  til  Esjunnar og  í Hvalfjarðarkjaftinn  og  út á sundin blá og  svo  í  suður  uppí  Rjúpnahæðina og  suðureftir  í  átt að Heiðmörkinni.  Ég kláraði  að  þrífa Gullsmárann  í  kvöld  og  fékk  frábæra  hjálp  frá  Völu  valkyrju og  vorum  við  ekki nema  rétt um klukkutíma að  þrífa allt, inní  alla skápa  og  ryksugað og skúrað  útí  öll  horn..

Við  Hákon ætlum að halda uppá  afmælið  hans á  Sunnudaginn  hér  í  Ásakór   og  bjóða  bestu vinum hans.  

Miðað  við síðustu  fréttir af  vígstöðvunum í  Reykjavík  þá  sannast það enn og aftur að  "ÞAÐ ER GOTT AÐ BÚA Í  KÓPAVOGI"  og  ég  er viss  um  að þið sem ennþá  búið í Reykjavík eruð velkomin  í  Kópavog, það er nóg  pláss,  ef ég man rétt þá eigum við land austur undir Hornafjörð..

Það eru auðvitað allir velkomnir í heimsókn í Ásakórinn..

Hafið það eins og þið viljið...

Magnús G..Whistling

Flutningar 2008 003


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Halldórsson

Til lukku með íbúðina, aðalatriðið er að rata í Kopavogi :)

Sigurður Halldórsson, 23.1.2008 kl. 00:36

2 identicon

 Til hamingju með íbúðina ! Já, Maggi minn, það er sko yndislegt að eiga góð og hjálpsöm börn og tengdabörn  

Hafðu það gott og gangi þér vel með afmælið á sunnudaginn.

Sjúbbídú

Magga Scheving. 

Margrét G. Scheving (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 08:06

3 identicon

til hamingju með að vera búin að koma þér fyrir, fer að koma og kíkja ;)

Sigrún Ásta (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 12:24

4 Smámynd: Solveig Friðriksdóttir

Til lukku með nýju íbúðina og að vera fluttur.

Solveig Friðriksdóttir, 23.1.2008 kl. 15:41

5 Smámynd: Fallega fólkið í Leeds

Til hamingju með íbúðina Maggi minn, hlakka til að koma og skoða. 

Kveðja

Halldóra

Fallega fólkið í Leeds, 23.1.2008 kl. 22:27

6 Smámynd: Eyþór Árnason

Það er gott að hafa góða hjálparmenn þegar maður stendur í flutningum. Til hamingju. Kveðja

Eyþór Árnason, 23.1.2008 kl. 22:35

7 Smámynd: Magnús Guðjónsson

Kærar  þakkir  fyrir  allar  góðar  óskir,  ekkert  mál að rata í  Kópavogi  Siggi  minn og  ef  þú  lendir í vandræðum  færðu  þér bara  GPS.  Það  er  gott að búa  í  Kópavogi..

Hafið það eins og þið  viljið

MG.

Magnús Guðjónsson, 24.1.2008 kl. 11:57

8 identicon

Til hamingju Maggi! Vona að það fari vel um þigá nýjum stað.

kveðja úr Funalindinni  

Ásgeir Ben (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband