Tölvupósturinn.... fimmti hluti... kannski sá síðasti...
16.12.2007 | 13:38
Jæja nú er ég farinn að halda að þessu tölvupóstsdrama sé að ljúka einu sinni fyrir allt.. enginn póstur kominn síðan síðdegis í gær og vonandi er þessu bara lokið núna.. og starfsmenn hýsisins búnir að ná tökum á málinu.. og færi ég þeim bestu þakkir fyrir það ..
Annars er allt gott að frétta af mér, er að undirbúa heimferð á miðvikudaginn, ganga frá gögnum og koma sem allra flestu frá áður en jólin koma.. Ég er búinn að vera ótrúlega duglegur í ræktinni minni hér undanfarnar vikur, farið á hverjum einasta morgni núna í 16 daga í beit og aldrei minna en 35 mínútur og uppí 100 mínútur í hvert sinn. Það er ótrúlega gott að hafa tækin svona við svenherbergisdyrnar og komast ekki hjá því að sjá þau þegar maður skrönglast framúr á morgnana.. Ég finn mikinn mun á ekki lengri tíma en þessum og formið hefur lagast, þó ég hafi ekki verið í slæmum málum fyrir, en þá má alltaf bæta sig..
Ég ætla að nota tækifærið og senda góðar kveðjur austur á Eskifjörð, þar sem ég veit að tvær góðar vinkonur mínar ætla að syngja á árlegum Jólatónleikum í Eskifjarðarkirkju í dag eða kvöld, ég er ekki í vafa um að þetta verða frábærir tónleikar enda frábært listafólk á ferðinni, gangi ykkur vel og verið stolt af því að viðhalda þessari frábæru menningu sem er svo mikils virði fyrir landshluta eins og Austurland..
Hér er nú bara sól og hiti að vanda, einhverjar 25+ gráður og mikið venst þetta veður vel..
Hafið það eins og þið viljið þessa síðustu daga fyrir jólin og skelliði Skrámi endilega undir geislann.
Magnús G.
Athugasemdir
Heill og sæll, gott að þeir náðu að stöðva þessar sendingar, þetta var æsispennandi framhaldssaga hehe. Værir þú til í að meila á mig nýja heimilisfangið eða í það minnsta addressu sem ég get sent jólakorið á ? Kv
Solveig Friðriksdóttir, 17.12.2007 kl. 10:22
Kæri "Skrámur", mikið svakalega hrikalega ofsalega er ég glöð að heyra að framhaldssögunni er lokið og vona bara að dagatalið verði þér og þinni fjölskyldu til eintómrar hamingju árið 2008.
Takk fyrir góðar kveðjur í okkar garð f. tónleikana, þeir voru frábærir, þó ég segi sjálf frá og það mættu um 150 manns, sem við vorum svakalega ánægð með!
Sendi þér kópí ef það lukkast!
Þú hefur það svo bara um jól og áramót og ég hlakka til að sjá þig á nýju ári. Kv. Díana Mjöll.
Life will never be the same...!!, 18.12.2007 kl. 10:12
Tek undir með Díönu.
Tónleikarnir voru MEGA !
Vináttukveðjur, Svana
Svana (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 21:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.